Fréttablaðið - 24.03.2004, Side 13
13MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2004
LÍKFUNDARMÁLIÐ Tomas Mala-
kauskas heldur því fram, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins,
að hann hafi ætlað að kalla á lækni
til að hjálpa Vaidas Jucevicius þeg-
ar hann var hvað veikastur.
Jucevicius lést skömmu síðar.
Malakauskas mun hafa sagt að
eftir að Vaidas Jucevicius lést hafi
Grétar Sigurðarson og Jónas Ingi
Ragnarsson pakkað líki hans inn í
plastpoka og filtteppi svo hægt
yrði að flytja líkið austur í Nes-
kaupstað. Sjálfur mun Mala-
kauskas hafa sagst viljað grafa lík-
ið í jörð nær borginni. Grétar, sem
er Norðfirðingur, fór með flugi á
Norðfjörð en Malakauskas og
Jónas Ingi fóru á bílaleigujeppa
með líkið vafið í teppið. Þeir urðu
veðurtepptir á Djúpavogi í tvo
daga og komust ekki til Norðfjarð-
ar fyrr en sunnudaginn 8. febrúar.
Malakauskas hefur sagt að þegar
þeir hafi komið til Neskaupstaðar
hafi engin leið verið að grafa líkið,
þar sem jörð var frosin. Í vand-
ræðunum fundu þeir engan stað
betri en sjóinn fram undan neta-
gerðarbryggjunni.
Malakauskas hefur sagt Grét-
ar og Jónas Inga hafa varpað lík-
inu í höfnina. Sjálfur vill hann
meina að hann hafi staðið álengd-
ar og hafi ekki vitað að Juce-
vicius hafi verið stunginn, til að
koma í veg fyrir að líkið flyti
upp, fyrr en eftir á. ■
NETAGERÐARBRYGGJAN
Tomas Malakauskas segir Grétar Sigurðarson og
Jónas Inga Ragnarsson hafa varpað líkinu í höfnina.
Líkfundarmálið í Neskaupstað:
Fundu ekki betri
stað en höfnina
Grunsam-
legar færslur
Alls fóru grunsamlegargreiðslur að upphæð fimm
og hálfrar milljóna króna milli
reikninga sakborninga og til og
frá Litháen mánuðina áður en
Vaidas, hinn látni Lithái, kom til
Íslands með fíkniefni innvortis.
Þá er einungis um að ræða
greiðslur er lögreglu þótti
ástæða til að spyrja nánar út í við
skýrslutöku en ekki allar færslur
á reikningum þremenninganna. Í
framburði sínum gefa sakborn-
ingarnir þrír engar haldbærar
skýringar á greiðslunum og neita
því að þær tengist á nokkurn hátt
fíkniefnasölu eða komu Vaidas
Jucevicius til Íslands. ■
PENINGAFÆRSLUR:
Tomas Malakauskas
INN
16. okt., greiðsla frá nafngreindri konu
í Litháen, 300.000 kr.
30. okt, greiðsla frá sömu konu, 300.000 kr
7. nóv., greiðsla frá Jónasi Inga
Ragnarsyni, 200.000 kr.
24. nóv., greiðsla frá Jónasi Inga Ragnarsyni,
200.000 kr.
Alls 1.000.000 kr.
ÚT
Á tímabilinu 7. nóv. til 1. des. tekur
Malakauskas út 194.000 kr. með debetkorti í
Litháen.
Alls 194.000 kr.
MMRO (einkahlutafélag sakborninga)
ÚT
24. nóv. greiðsla til Flugleiða, 53.760 kr.
(spurt hvort tengist ferðalagi Grétars
til Litháen)
2. des. greiðsla til nafngreinds karlmanns í
Litháen, 50.090 kr.
ódagsett greiðsla vegna húsaleigu
75.000.
5. janúar, greiðsla til nafngreinds karlmanns í
Litháen, 358.200 kr.
5. janúar, greiðsla til til nafngreindar
konu í Litháen, 179.500 kr.
Alls 716.550 kr.
Jónas Ingi Ragnarsson
INN
27. ágúst greiðsla frá Grétari
Sigurðssyni, 84.000 kr.
15. sept. greiðsla frá Grétari Sigurðarsyni,
50.000 kr.
15. sept. greiðsla frá Grétari Sigurðarsyni,
550.000 kr.
5. janúar leggur Jónas sjálfur inn í reiðufé
600.000 kr.
Alls 2.000.550 kr.
ÚT
2. desember greiðsla vegna neyðarvega-
bréfs fyrir Malakauskas og annað, 33.952 kr.
7. nóv. greiðsla til Malakauskas, 200.000 kr.
24. nóv. greiðsla til Malakauskas, 200.000 kr.
Alls 433.952
Grétar Sigurðarson
ÚT
27. ágúst greiðsla til Jónasar Inga
Ragnarssonar, 84.000 kr.
15. sept. greiðsla til Jónasar Inga Ragnars-
sonar, 50.000 kr.
15. sept. greiðsla til Jónasar Inga
Ragnarssonar, 550.000 kr.
15. sept. greiðsla til nafngreinds Íslendings,
400.000 kr. (greitt í reiðufé)
Alls 1.084.000 kr.