Fréttablaðið - 24.03.2004, Page 16
16 24. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
BÓLUSETT GEGN LÖMUNARVEIKI
Seinni hluti mikillar bólusetningarherferðar
hófst í Nígeríu í gær. Fyrri hluti hennar tak-
markaðist nokkuð af því að sveitarstjórnar-
menn í norðurhluta landsins bönnuðu
hana af ótta við að reynt yrði að eitra fyrir
landsmönnum.
Guðmundur Hallvarðsson vill breyta fánalögum:
Rýmri reglur á sumrin
ÞJÓÐFÁNINN „Ég vil að mönnum
verði heimilt að hafa þjóðfánann
uppi allan sólarhringinn yfir há-
sumartímann. Ég mun vinna að
málinu í sumar og leggja fram til-
lögu þessa efnis á haustþinginu,“
sagði Guðmundur Hallvarðsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Samkvæmt fánareglum má
ekki draga fána á stöng fyrr en
klukkan sjö að morgni og má hann
að jafnaði ekki vera lengur uppi
en til sólarlags og aldrei lengur en
til miðnættis. Ef flaggað er við
útisamkomu, opinbera athöfn,
jarðarför eða minningarathöfn
má fáni vera uppi lengur en til
sólarlags eða svo lengi sem athöfn
varir, en þó aldrei lengur en til
miðnættis.
Þessu vill Guðmundur breyta
þannig að heimilt verði að hafa
þjóðfánann uppi allan sólarhring-
inn frá miðjum maí og fram í
byrjun ágúst.
„Ég vil að við notum þjóðfán-
ann okkar sem oftast og mest. Við
sjáum það víða erlendis að fáninn
blaktir við hún á hótelum og við-
líka stöðum, ásamt þjóðfánum
annarra ríkja, allan sólarhringinn.
Ég finn fyrir miklum stuðningi
við þessar hugmyndir og er
ákveðinn í að vinna því fylgi á Al-
þingi,“ sagði Guðmundur Hal-
varðsson. ■
Alberto Fujimori:
Endurkoma
undirbúin
PERÚ, AP Fjórum árum eftir að þing
Perú samþykkti lög þess efnis að
Alberto Fujimori, fyrrum forseti
landsins, mætti ekki gegna kjörnu
embætti næstu tíu árin eru stuðn-
ingsmenn hans farnir að skipu-
leggja endurkomu hans.
Fujimori flýði frá Perú til Jap-
ans þegar hann hraktist úr emb-
ætti vegna ásakana um spillingu.
Þá hafði hann verið tíu ár við völd.
Nú hafa stuðningsmenn hans
stofnað nýjan flokk sem á að
bjóða fram í kosningunum eftir
tvö ár. Þeir hyggjast leita leiða við
að fá bannið við þátttöku Fuji-
moris í stjórnmálum stytt. ■
R
Ú
N
A
www.kodakexpress.is Sími 570 7500 www.hanspeterse
• 3.2 milljón pixla
• 3x Optical aðdráttur (35-105mm)
• 3,4x Digital aðdráttur (106-357mm)
• Tekur allt að 16 myndir í röð á 2 sek.
sem þú getur síðan valið úr,
t.d. íþrótta-, hesta- eða golfmyndir.
• Tekur video
• Allt niður í 1 cm nærmynd (macro)
• AA eða Li-ion hleðslurafhlöðumöguleikar
G 4
G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D
Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að þetta sé eina námskeiðið sem uppfylli
kröfur þeirra sem einhverja reynslu hafa í Photoshop. Kennt er á forritið með
með það í huga að það nýtist fólki í starfi. Námið hentar því þeim sem hafa
grunn en vilja fá dýpri þekkingu og skilning á nær óendanlegum möguleikum
þessa vinsæla verkfæris. Innifalið í náminu er alþjóðlegt próf sem gefur
gráðuna: - Adobe Certified Expert.
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að
hafa góða undirstöðuþekkingu á Windows umhverfinu
og reynslu af Photoshop eða að hafa lokið grunnnámi
í Photoshop. Mikið af námsgögnum eru á ensku.
Tími: Kennt er þriðjudags- og fimmtudagsmorgna frá
kl. 8:30-12:30. Námskeiðið hefst 30. mars og lýkur 28. maí.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
Mér finnst frábært hve mikil
áhersla var lögð á verklagið
og nauðsyn þess að þekkja
og skilja heildarmyndina.
Ég hafði talsverða reynslu en
komst fljótt að því hvað
þekking mín var takmörkuð. Viljum eiga
en skortir fé
SAMKEPPNISYFIRVÖLD „Ég dreg ekk-
ert í land með yfirlýsingarnar en
auðvitað er ekki loku fyrir það
skotið að hægt sé að endurskipu-
leggja innan stofnunarinnar og
auka þannig skilvirkni,“ segir
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar. Hann hefur lát-
ið hafa eftir sér að vegna mann-
eklu og fjárskorts geti stofnunin
ekki rannsakað mál að eigin frum-
kvæði eins og henni sé gert að
gera.
„Við höfum mikinn áhuga á að
eiga frumkvæði að málum sem
hafa vakið eftirtekt okkar og ým-
islegt í íslenskum viðskiptaheimi
gefur fullt tilefni til að ætla að
Samkeppnisstofnun skoði það
ofan í kjölinn. Staðan er hins veg-
ar sú að við eigum fullt í fangi
með þau mál sem eru hjá okkur í
dag og erum illa í stakk búin til að
bæta í sarpinn.“
Mannekla er ein ástæða þess
að rannsókn vegna hugsanlegs
samráðs tryggingafélaganna í
landinu er enn til skoðunar í stofn-
uninni. Vonir standa þó til að
henni ljúki innan tíðar en þá verða
tæp sjö ár síðan hún hófst. Önnur
120 mál bíða þá afgreiðslu hjá
þeim rúmlega tug starfsmanna
sem þar starfa við rannsókn mála.
„Það er óþolandi fyrir aðila
sem hlut eiga að málum að þurfa
að bíða mánuðum og jafnvel árum
saman undir grun um óeðlilega
viðskiptahætti,“ segir Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka verslunar og þjónustu, vegna
ummæla forstöðumanns sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofnun-
ar um að vegna manneklu og fjár-
skorts sé ekkert svigrúm hjá
stofnuninni til að rannsaka mál að
eigin frumkvæði.
„Við höfum ítrekað bent á þetta
gegnum tíðina og ég held að nauð-
AÐ NOTA FÁNANN SEM OFTAST
Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, vill að reglur um notkun
fánans verði rýmkaðar og heimilt verði að
flagga allan sólarhringinn yfir sumartím-
ann.
Samkeppnisstofnun segir ýmislegt í íslensku
viðskiptalífi kalla á skoðun samkeppnisyfir-
valda. Fjárskortur og mannekla hindri það.