Fréttablaðið - 24.03.2004, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2004
■ Draumanámið?
Senn fer vorið á vængjum yfirflóann og í kjölfarið hefst sum-
arleyfistími Íslendinga með til-
heyrandi utanlandsferðum. Ferðir
suður á bóginn halda velli sem
vinsælustu áfangastaðirnir, en
einmitt þar er gott að geta gripið
til tungumáls heimamanna sem
ekki allir eru talandi á enskri
tungu.
Til að geta beðið skammlaust
um reikninginn á veitingahúsinu,
eða spurt innfædda til vegar að
áhugaverðum stöðum, er bæði góð
og skynsamleg fjárfesting að
sækja tungumálanámskeið áður en
haldið er af stað. Mímir-símenntun
býður upp á sérstök vornámskeið
sem fram fara í maí og júní fyrir
ferðalanga sumarsins.
Námskeiðin standa í fjórar til
fimm vikur, en samanlagt eru
þau sextán til tuttugu klukku-
stunda löng. Kennt er tvisvar í
viku, jafnt á byrjendanámskeið-
um sem og framhaldsnámskeið-
um fyrir lengra komna. Að sögn
Sigríðar Einarsdóttur hjá Mími-
símenntun eru vornámskeið í
spænsku og ítölsku lang-
vinsælust ár frá ári, og kemur
það til af fyrirhuguðum ferðalög-
um fjölda nemenda á þær slóðir.
Auk spænsku og ítölsku er boðið
upp á vornámskeið í frönsku,
ensku, þýsku, dönsku og portú-
gölsku. Námsefnið er blanda af
málfræði og talþjálfun. Nám-
skeiðin kosta frá 17.200 til 21.500
krónur. ■
Tungumálanámskeið:
Að geta skammlaust
beðið um reikninginn
Á námskeiðinu öðlast nemendur færni og kunnáttu til að setja upp og
hafa umsjón með tölvum sem keyra á Windows XP stýrikerfinu. Að
námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða
meðalstórra tölvuneta. Innifalið í náminu er alþjóðlegt próf sem gefur
gráðuna „Microsoft Certified Professional“. Námskeiðið er góður
undirbúningur fyrir þá sem hyggja á áframhaldandi nám s.s. MCSA.
Þetta er síðasta MCP námskeiðið á þessari önn.
Kennt er mán. og mið. 18-22 og lau. 13-17
Námskeiðið byrjar 14. apríl.
Inntökuskilyrði
Nemendur þurfa að kunna góð skil á
notendaumhverfi Windows stýrikerfisins
og geta lesið ensku, þar sem stór hluti
námsefnis er á ensku. Reynsla af rekstri
tölvukerfa er ekki nauðsynleg.
Kennsluhættir
Námið byggir bæði á kennslu og verklegum
æfingum þar sem nemendur takast á við dæmi-
gerð vandamál sem upp kunna að koma. Einnig
fá nemendur aðgang að fjarnámsvef NTV þar
sem fyrir liggja verkefni auk ítarefnis.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
MCP XP NETUMSJÓN
Sýning í Borgarleikhúsinu:
Móðurskólar
að verki
Sýningin Móðurskólar að verkiverður opnuð í Borgarleikhúsinu
í dag. Sýnd verða verkefni móður-
skóla í Reykjavík í fjölmenningu,
leiklist, nýsköpun, vellíðan og sam-
kennd, fjölgreind, tungumálum,
tækni og vísindum, tengslum við
leikskóla og listasmiðju.
Á sýningunni verður sýni-
kennsla, fyrirlestrar, fagleg ráðgjöf
og ýmsar uppákomur. Sýningin
stendur til laugardags og stendur
frá 13-17 í dag, 11-16 á morgun og
föstudag og 11-14 á laugardag.
Meðan á sýningunni stendur
verður einnig opið hús í móðurskól-
unum sjálfum á tilteknum tímum. ■
Ef ég væri að setjast á skólabekk í dag, þá
færi ég sennilega í viðskiptafræði.
Ólafur Gíslason
ÆTLI ÖLDURNAR LEYFI BRIMBRETTI Í DAG?
Það getur komið sér vel í sumarfríinu að geta spjallað við heimamenn á þeirra eigin
tungu.
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
FSKS
Félag sérfræðinga
í klínisri sálfræði
Fræðsluerindi á vegum
Félags sérfræðinga í klínískri sálfræði
Haldið í Námunni, húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands,
Dunhaga 7. Átta fyrirlestrar á fimmtudagskvöldum í mars 2004,
kl. 20:15-22:00
Opnir fyrirlestrar allir velkomnir
Fimmtudagur 25.3.
Jákvæð sálfræði: Forvörn við þunglyndi.
Dr. Gunnar Hrafn Birgisson, klínískur sálfræðingur
Forvarnarstarf hjá börnum, unglingum og fullorðnum.
Dr. Eiríkur Örn Arnarson, klínískur sálfræðingur
Fundarstjóri: Oddi Erlingsson
Dagskráin er haldin með stuðningi
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins
og verkefni Landlæknisembættisins,
Þjóð gegn þunglyndi.
Aðgangseyrir kr. 500,-
Þunglyndi
Sálfræðilegt sjónarhorn