Fréttablaðið - 30.03.2004, Page 4

Fréttablaðið - 30.03.2004, Page 4
4 30. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR Notarðu spjallrásir á netinu? Spurning dagsins í dag: Eiga Íslendingar að leggja raforku- streng til Skotlands? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 57% 43% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Forsætisráðherra Ísraels sakaður um spillingu: Skipað að láta af hendi skjöl ÍSRAEL, AP Hæstiréttur í Ísrael hef- ur skipað Gilad Sharon, syni for- sætisráðherrans Ariels Sharon, að láta af hendi skjöl sem tengjast rannsókn á spillingarmálum sem faðir hans er grunaður um að eiga hlutdeild í. Forsætisráðherrann og sonur hans eru meðal annars grunaðir um að hafa þegið mútur frá ísra- elskum kaupsýslumanni í tengslum við ferðaþjónustu- verkefni í Grikklandi árið 1999. Ríkissaksóknari í Ísrael hefur komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að ákæra Sharon vegna málsins. Forsætisráðherrann neitar sök en stjórnarandstæð- ingar krefjast þess að hann segi af sér eða dragi sig í hlé á með- an dómsmálaráðherra tekur ákvörðun um hvort hann verði lögsóttur. Sharon hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að hvika frá áform- um sínum um að afnema land- nemabyggðir gyðinga á Gaza- ströndinni og draga ísraelskar hersveitir burt frá svæðinu. For- sætisráðherrann segist munu leysa upp ríkisstjórnina ef hún samþykki ekki áætlunina þegar hún verður lögð fyrir stjórnina um miðjan næsta mánuð. ■ Geta hafnað meðferð Dómstólar hafa ekki heimild til að dæma kynferðisbrotamenn í meðferð. Hægt að dæma misþroska kynferðisbrotamenn á hæli. DÓMSMÁL Dómstólar hér á landi hafa heimild samkvæmt hegningarlög- um til að dæma drykkjusjúka brota- menn til vistunar á viðeigandi hæli til lækningar. Þeir hafa hins vegar ekki heimild til að dæma kynferðis- brotamenn til meðferðar. Undan- skilið er þó ef sakborningar hafa verið andlega miður sín, svo sem vegna vanþroska, hrörnunar, kyn- ferðislegs misþroska eða annarrar truflunar þegar þeir frömdu brotið Þá er heimild í hegningarlögum til að dæma þá á „viðeigandi hæli“. Í lagaákvæði um brotamenn af þessu tagi er þó áskilið að ekki sé hægt að beita þessum úrræðum nema við- eigandi stofnun sé fyrir hendi. Slík stofnun er ekki til á Íslandi. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu dómsmálaráðherra, þar sem hann svaraði ítarlegum fyrirspurnum Guðrúnar Ögmunds- dóttur alþingismanns um gerendur í kynferðisbrotamálum og meðferð- arúrræði þeim til handa. Í skýrslunni kemur fram, að á ár- unum 1999–2003 var 171 einstak- lingur ákærður fyrir kynferðisbrot. Hinir ákærðu voru allir karlkyns. Af þeim voru 119 sakfelldir með dómi, 15 hlutu sektarrefsingu og 37 voru sýknaðir. Samkvæmt því hlutu því 134 dóm eða undirgengust sekt- arrefsingu. Skráðir brotaþolar í málum þess- ara 134 dæmdu kynferðisbrota- manna voru samtals 162. Þar af voru 151 kvenkyns og 11 karlkyns. Í flestum málunum var einn gerandi og einn þolandi. Í nokkrum málum voru þolendur þó fleiri en einn. Í einu máli voru þeir sex, í öðru fimm, í tveimur málum voru fjórir þolendur, í tíu málum þrír þolendur og í níu mál- um tveir þolendur. Af þeim 134 sakborningum sem sakfelldir voru á árunum 1999–2003 höfðu 11 verið ákærðir fyrir fleiri en eitt kynferðisbrot á því tímabili. Í 23 málum höfðu þolendur verið fleiri en einn. Í svari dómsmálaráðherra kemur fram, að dæmdum kyn- ferðisbrotamönnum 18 ára og eldri er „boðið upp á einstaklings- meðferð hjá sálfræðingi“. Síðan segir: „Ef áhugi viðkom- andi fanga er ekki til staðar er reynt að ýta undir áhuga hans til breytinga með hvatningarviðtali og fleira“. Engar tölulegar upplýsingar liggja fyrir um hve margir kynferð- isbrotamenn hafa gengist undir slíka meðferð né árangur mældur. jss@frettabladid.is Sjálfsmorðsárásir: Fjórtán fórust ÚSBEKISTAN, AP Að minnsta kosti fjórtán manns biðu bana og 26 særðust í sjálfsmorðsárásum í Ús- bekistan á sunnudagskvöld og mánudagsmorgun. Tíu fórust þegar sprengja sprakk í húsi íslamskra öfgamanna í héraðinu Bukhara á sunnudags- kvöld en þrír lögreglumenn og eitt barn létu lífið í sjálfsmorðsárásum á markaði í höfuðborginni Tash- kent á mánudagsmorgun. Þetta eru fyrstu sjálfsmorðárás- irnar í sögu Úsbekistan. Ríkissak- sóknari segir að íslamskir öfgamenn hafi staðið á bak við árásirnar og einn maður hafi þegar verið handtekinn. ■ SKÆRGULUR HÁKARL Vegna litarhaftsins á Mangó á litla mögu- leika á því að fela sig. Sjaldgæfur hákarl: Skærgulur albínói SYDNEY, AP Afar sjaldgæfur hákarl er til sýnis í sædýrasafninu í Sydney í Ástralíu. Hákarlinn, sem hefur hlotið nafnið Mangó, er skærgulur að lit og nánast sjálf- lýsandi. Mangó, sem er tveggja ára albínói, flæktist í net fiskimanna í ósum árinnar Hawkesbury og var fluttur á sædýrasafnið. Vegna lit- arhafts síns á Mangó mjög erfitt með að fela sig og ætti hann því litla möguleika á að lifa af í sínum náttúrulegu heimkynnum. ■ -ráð dagsins Hendið furukönglum eða rifnum, þurrkuðum berki af sítrónu/appelsínu í arineldinn til að fá góðan ilm. Kenneth Peterson selur: Century kaupir allt Norðurál VIÐSKIPTI Bandaríska álfyrirtækið Century Aluminium mun kaupa Norðurál að fullu af fyrirtæki Kenneth Peterson, Columbia Ventures. Gengið hefur verið frá samningum þess efnis og munu nýir eigendur taka við félaginu 31. maí. Áður höfðu fyrirtækin kunngert að upphaflega myndi Century eignast 49,9% hlut sem síðan gæti aukist upp í 100% að vissum skilyrðum uppfylltum. Fyrirtækin tilkynntu að þessi skil- yrði hefðu nú verið uppfyllt. Heildarkaupverð fyrir allan hlutinn í Norðuráli er 150 milljón- ir dollara. Auk þess nema lang- tímaskuldir Norðuráls um 190 milljónum dollara. Samningurinn felur einnig í sér skilyrta greiðslu til Columbia Venture að upphæð 25 milljónir dollara við upphaf stækkunar í 180 þúsund tonn. Fyr- irhugað er að framleiðslan nái 180 þúsund tonnum árið 2006. For- svarsmenn Century hafa lýst vilja til að huga að enn meiri fram- leiðslugetu. „Við erum afar ánægð með að eignast 100 prósent í Norðuráli sem er álver á heimsmælikvarða. Eins og við höfðum sagt frá áður, þá er þessi viðburður marktækt skref í þá átt að ná markmiðum Century um að draga úr meðal- kostnaði við álframleiðsluna og að dreifa eignagrunni okkar land- fræðilega,“ sagði Craig Davis, stjórnarformaður og forstjóri Century Aluminium, í tilefni af samningnum. Sjá nánar bls. 12 NÝIR Í VIÐSKIPTALÍFINU Craig Davis, stjórnaformaður og forstjóri Century Aluminium, telur öllum skilyrðum fullnægt til þess að stíga skrefið til fulls og kaupa Norðurál að fullu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SHARON Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og sonur hans Gilad eru báðir grunaðir um að hafa þegið mútur af ísraelskum kaup- sýslumanni árið 1999. DÆMDIR KYNFERÐIS- BROTAMENN 1999–2003 Fæðingarár geranda Fjöldi 1920–1929 1 1930–1939 8 1940–1949 7 1950–1959 17 1960–1969 41 1970–1979 33 1980–1989 27 Samtals 134 ÞOLENDUR KYNFERÐISBROTA 1999–2003 Fæðingarár þolenda Fjöldi 1940–1949 1 1950–1959 7 1960–1969 4 1970–1979 14 1980–1989 92 1990–1999 44 Samtals 162 DÓMSMÁL „Ég vil láta dæma dæmda kynferðisafbrotamenn í meðferð, þannig að það sé liður í dómnum,“ sagði Guðrún Ögmunds- dóttir alþingismaður um ástæður fyrirspurnar sinnar til dómsmála- ráðherra. „Við verðum að hindra að fólk komi veikara út heldur en það fór inn. Það skiptir meginmáli.“ Guðrún sagði, að skýrsla ráð- herra sýndi glöggt hversu slakt kerfið hér væri þegar kæmi að meðferðarúrræðum fyrir þá sem dæmdir hefðu verið fyrir kyn- ferðisbrot. Endurskoða þyrfti refsilöggjöfina alla og setja fag- fólk með þekkingu á slíkum mál- um í þá vinnu. „Ég vil nefna, að það kemur fram í svarinu að þeir hafi val um hvort þeir fari í meðferðarviðtöl eða ekki. Þetta er þvílíkt ábyrgð- arleysi, að það nær ekki nokkurri átt,“ sagði Guðrún, sem er að undirbúa þingmál sem hún hyggst flytja á Alþingi í haust þess efnis, að íslensk löggjöf taki á því að skylda íslenska kynferð- isafbrotamenn í meðferð. Þessi fyrirspurn Guðrúnar er liður í upplýsingasöfnun hennar áður en hún flytur þingmál sitt. ■ Guðrún Ögmundsdóttir: Vil láta dæma menn í meðferð GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR Vill byltingu í meðferðarúrræðum fyrir kynferðisbrotamenn. Kjaradeila grunnskóla- kennara: Samninga- fundur í dag KJARAMÁL Samningafundur í kjara- deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga hefur verið boðaður klukkan níu í dag, en núgildandi samningar grunn- skólakennara renna út 1. apríl, eða eftir aðeins tvo daga. Lítið hefur þokast í samkomulagsátt á fundum að undanförnu. Rætt hef- ur verið um breytingar á vinnu- tíma og krafa er um hækkun byrj- unarlauna kennara upp í 250 þús- und krónur. Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakenn- ara, segist bjartsýnn á að samn- ingar náist. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.