Fréttablaðið - 04.05.2004, Blaðsíða 40
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Skrímslin í
Abu Ghraib
50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við
skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur
fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13A, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 5,95% 6,50% 7,50% 8,00% 8,50%
30 ár 5.960 6.320 6.990 7.340 7.690
40 ár 5.470 5.850 6.580 6.950 7.330
4.960 5.420 6.250 6.670 7.080
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Afborgun-
arlaust
H
im
in
n
o
g
h
a
f/
90
40
12
4
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Skelfilegt ástand þarna í Írak,andvarpar kona ein í heita pott-
inum og við hin tökum undir. Mikið
getur mannskepnan verið grimm í
þriðja heiminum þar sem allt er svo
frumstætt enn og skammt á veg
komið í siðmenningarlegri þróun.
Óskaplegt að Bandaríkjamenn skuli
ekki fara að leikreglum og virða
Genfarsáttmálann um meðferð á
stríðsföngum. Æ, já, það er hræði-
legt. Sáuð þið myndirnar? Já, pott-
ormar sáu þær og setur hljóða í
ráðaleysi sínu.
VIÐ ERUM guðs útvalda þjóð,
segir leiðtoginn í vestri og leiðir
veröldina til frelsis. Frónverjar
sitja í heiðursstúku, en stríð er ekki
kappleikur. Genfarsáttmálinn virk-
ar ekki eins og reglur frá alþjóðu
ólympíunefndinni. Í mannskepn-
unni býr skrímsli sem vaknar af
svefni í öllum styrjöldum. Ein-
hverjir spyrja sig þessi dægur
hvort friðvænlegra sé í veröldinni
og hvort hernaðaraðgerðir hafi orð-
ið til þess að handsama hryðju-
verkamenn, róa þá og leiða af villu
síns vegar. Er hægt að reka illt út
með illu eða er hafin markviss
fjöldaframleiðsla á skrímslum?
STUÐNINGSMENN stjórnar-
herrans í vestri hafa gagnrýnt
harðlega að sjónvarpsstöðvar birti
myndir af föllnum bandarískum
hermönnum og lesi upp nöfn þeirra
– gagnrýnt að bandarískra ung-
menna sé minnst sem látið hafa líf-
ið í fjarlægri heimsálfu. Þeir telja
slíkt afhæfi vera áróður gegn
Íraksstríðinu og þar af leiðandi
and-bandarískar aðgerðir.
ABU GHRAIB fangelsið í Írak
breyttist eftir að ógnarherrann
Hússein flýði ofan í sína rottuholu.
Þar voru sett upp vatnsklósett og
sturtur og gólfin flísalögð, en pynt-
ingarnar héldu áfram. Nýir fangar
fluttu inn og ný skrímsli urðu til.
Þar sem við sitjum í heitum potti
spyrjum við hver beri ábyrgð.
Kannski er það einn hershöfðingi
og nokkrir dátar – kannski sjálft
höfuðið sem limirnir dansa eftir. En
við erum staðföst og viljug, svo
viljug að við fáum þakklætissímtal
frá þeim sem öllu ræður. Hvernig
kom það til að við gerðumst stuðn-
ingsaðilar í þessu stríði? spyrja
pottverjar undrandi. Erum við líka
staðföst og viljug í Abu Ghraib? ■
www.li.is
sími 560 6000
Einstæð sælkera- og vínsmökkunarferð til Búrgúndíhéraðs í Frakklandi þar
sem Vörðufélagar geta látið dekra við sig í mat og drykk. Fararstjórn verður
í höndum Halldórs E. Laxness sem er sérfróður um héraðið.
• Gist verður á söguslóðum rétt fyrir utan Troyes í Búrgúndí
• Matarveislur á hverju kvöldi þar sem Vörðufélagar kynnast ótrúlegri
vín- og matargerðarlist héraðsins
• Ferð til Troyesborgar þar sem borgin og ýmsir markaðir verða skoðaðir
• Vínsmökkunarferð sem endar í ótrúlegri sælkeraveislu á herragarði hjá
kampavínsframleiðanda
Verð frá 67.730 kr. á mann í tvíbýli auk 10.000 ferðapunkta
Verð frá 81.095 kr. á mann í einbýli auk 10.000 ferðapunkta
Sælkeraferð fyrir Vörðufélaga
til Búrgúndí 3.-6. júní
Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar og
þjónustugjöld, rúta til og frá flugvelli sem og í allar
skipulagðar ferðir, gisting í 3 nætur á hótel Novotel***,
morgunverður, kvöldverður og drykkir með mat,
íslensk fararstjórn.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá
söluskrifstofum Icelandair eða Fjarsölu í
síma 50 50 100 (mán.-fös. kl. 9-17, lau.
kl. 9-17 og sun. kl. 10-16).
Þú getur fengið upplýsingar um punktastöðuna þína á www.icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
44
91
05
/2
00
4
Panta þarf fyrir 10. maí.