Fréttablaðið - 14.06.2004, Side 2

Fréttablaðið - 14.06.2004, Side 2
2 14. júní 2004 MÁNUDAGUR BELGRAD, AP Þjóðernissinninn Tomislav Nikolic hlaut flest at- kvæði í forsetakosningunum í Serbíu og Svartfjallalandi sem fram fóru í gær. Samkvæmt fyrstu tölum hlaut Nikolic rúm- lega 30% atkvæða en helsti keppi- nautur hans, Boric Tadic úr flokki umbótasinna, var með rúmlega 27% fylgi. Ljóst er að kjósa þarf að nýju milli þeirra tveggja þar sem kjör- inn forseti þarf að hafa 50% greiddra atkvæða á bak við sig. Mun síðari umferð forsetakosn- ingana fara fram 27. júní. Millj- arðamæringurinn Bogoljub Karic, sem er hliðhollur ríkiss- stjórn landsins, var þriðji með tæplega 19% atkvæða. Kjörsókn var um 45% og er búist við að staðfestar tölur um atkvæðaskipt- ingu liggi fyrir í dag. ■ Fíkniefnasalar gera út frá Selfossi Sýslumaðurinn á Selfossi segir vel fylgst með fíkniefnamálum í umdæmi lög- reglunnar. Þrjú sjálfstæð mál sem leiddu til upptöku fíkniefna komu upp fyrir helgina. Innbrot hafa einnig verið tíð í mánuðinum. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi hefur staðið í ströngu að undan- förnu. Meðal mála vikunnar hjá má nefna upptöku á þrjátíu grömmum af hassi og nokkra gramma af amfetamíni í kjölfar þess að lögreglan stöðvaði konu á bíl undir áhrifum lyfja. Þá fannst nokkuð magn fíkniefna, umbúðir til sölu þeirra, skotvopn, skotfæri og önnur vopn við húsleit á Þor- lákshöfn. „Það hefur verið ákveðin þróun í þá átt að menn gera út héð- an, segir Ólafur Helgi Kjartans- son, sýslumaður á Selfossi, en einnig séu heimamenn að verki. Ólafur Helgi segir að kannski séu dæmin ekki það mörg að það borgi sig að draga alvarlegar ályktanir. Hann treysti sér ekki til að segja hvort um raunveru- lega fjölgun glæpa sé að ræða. „Þetta er kannski nær því sem mann hefur grunað því miður undanfarin ár að þetta væri miklu meira neðarjarðar en fólk tryði,“ segir Ólafur Helgi. Hann segir skýringuna hugsanlega tvenns konar. „Annars vegar er það að þessi fíkniefnamál séu frekar að koma upp á yfirborðið en áður og hins vegar það að lög- reglan hér sé einfaldlega að ná betri árangri en fyrr.“ Ólafur Helgi segir lögregluna ekki hafa verið í átaki. „Við erum alltaf að fylgjast með þessum málum eins og sést af því að í fyrra voru gerðar upptækar tvær gróðrastöðvar sem voru að rækta kannabis.“ Ólafur Helgi segir seg- ir það fara eftir því hvernig menn reki sínar fíkniefnastarfsemi hvort auðveldara sé að fylgjast með henni í minni bæjarfélögum. „Mínir menn eru mjög áhuga- samir. Þeir fylgjast vel með,“ seg- ir Ólafur Helgi. gag@frettabladid.is Barni rænt með bíl: Enginn í haldi LÖGREGLAN Maður sem stal bíl með sofandi barni við Sóltún er enn ófundinn. Lögreglan í Reykjavík fer með rannsókn málsins. Hún yfirheyrði mann í gær sem ekki reyndist sá rétti. Kjartan Vilbergsson, faðir barnsins, segir tvö vitni hafi verið að atburðinum. Kona sem var í íbúð fyrir ofan orlofsíbúðina sem fjölskyldan gisti í sá manninn taka bílinn og vitni við Hallgríms- kirkju sá hann yfirgefa bílinn með hraði stuttu síðar. Maðurinn lét lögregluna sjálfur vita af stað- setningu bílsins. ■ Ráðamenn í Írak drepnir: Tveir á sólarhring BAGDAD AP Tveir háttsettir emb- ættismenn voru drepnir í Írak um helgina. Þeir voru báðir ráðnir af dögum í höfuðborg landsins Bagdad en menningarfulltrúi írakska menntamálaráðuneytis- ins, Kamal Jarrah, var skotinn fyrir utan heimili sitt í Gasalíja- hverfinu og aðstoðarutanríkisráð- herra landsins, Bassam Kubba, var myrtur á leið sinni til vinnu. Auk þeirra tveggja var írakskur landafræðiprófessor, Sabri al Bayati, skotinn til bana er hann var á leið frá háskólasvæðinu í Bagdad á sunnudagsmorgun. Að sögn búðareiganda í nágrenninu var hleypt þremur skotum af byssu áður en al-Bayati féll í göt- una. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR „Nei, mér ekki kunnugt um neina klíku í Ráðhúsinu, en valdþreytu R-listans þekkja allir.“ Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi Frjálslyndaflokks- ins. Helgi Hjörvar hefur lýst yfir áhyggjum af að það sé að verða til lítil klíka í Ráðhúsi Reykjavíkur. SPURNING DAGSINS Ólafur, ert þú í Ráðhúsklíkunni? Ferðamenn á Vatnajökli: Bjargað til byggða BJÖRGUN Björgunarsveit frá Höfn í Hornafirði kom að þeim stað sem tveir pólskir ferðamenn óskuðu hjálpar á Vatnajökli á sjöunda tímanum í gær. Mennirnir hófu göngu sína yfir jökulinn á þriðju- daginn, en slæmt veður í gær batt enda á ferðina. Þeir hringdu því úr gervihnattasíma og óskuðu eftir aðstoð, en þeir voru orðnir þrekaðir og sólbrunnir þegar björgunarsveitir náðu til þeirra. Þorsteinn Þorkelsson, sviðsstjóri Björgunarsviðs Landsbjargar, sagði að mennirnir hafi verið vel búnir. Þeir komu til Hafnar í Hornafirði í gærkvöldi. ■ – hefur þú séð DV í dag? Nágrannar í Fellunum hóta hver öðrum lífláti Samherji selur í Hraðfrystistöð Þórshafnar: Tryggir áframhaldandi rekstur ÚTGERÐ „Markmiðið með kaupun- um er að tryggja framgang fyrir- tækisins og áframhaldandi rekst- ur,“ segir Björn Ingimarsson, for- maður stjórnar Fræs ehf. og sveitarstjóri Þórshafnar á Langa- nesi, en félagið hefur keypt ráð- andi hlut í Hraðfrystistöð Þórs- hafnar af Samherja. Fræ er í eigu bæjarfélagsins en Björn segir ekki stefnumál bæjarfélagsins að standa í at- vinnurekstri. „Það er ekki stefnan að eiga áfram ráðandi hlut í Hrað- frystistöðinni og sjá um rekstur fyrirtækisins,“ segir Björn og bætir því við að viðræður verði við fjárfesta sem vænlegir séu fyrir þennan rekstur. „Hagsmunir okkar og hugsanlegra fjárfesta verða að fara saman og ég sé ekk- ert því til fyrirstöðu.“ Hraðfrystistöðin er að mati Björns mikilvæg fyrir bæjarfé- lagið. „Þetta er stærsti vinnuveit- andinn og margföldunaráhrif fyr- irtækisins á atvinnulíf bæjarins eru mikil. Við viljum hafa hönd í bagga með að tryggja framgang fyrirtækisins og þess vegna tók- um við þá ákvörðun að kaupa ráð- andi hlut í því.“ Hlutur Fræs ehf. er upp á 34,2% en nafnvirði hans er um 168 milljónir. ■ Fornleifar í Egyptalandi: Grafhýsi finnast EGYPTALAND, AP Ástralskir forn- leifafræðingar grófu upp 5.000 ára gamlan grafreit með tuttugu heillegum grafhýsum í Egypta- landi í gær. Egypsk yfirvöld sögðu við at- burðinn að Christian Kohler, leið- angursstjóri ástralska hópsins, hafi bent á mikilvægi þess að svæðið yrði varðveitt en grafhýs- in fundust í mjög þéttbýlu og fá- tæku iðnaðarhverfi í Helwan, 25 kílómetra frá Kaíró. Sum grafhýsanna eru lítil og fábrotin en önnur eru stærri og geyma mjólkurgifssteins-, kalk- steins-, leir- og koparpotta og -pönnur. Áður hafa tvö stór kalk- steinsgrafhýsi fundist í Helwan, frá árunum 2.575-2.134 fyrir Krist. ■ ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON Sýslumaður á Selfossi treystir sér ekki til að segja hvort glæpum í bænum hafi raunveru- lega fjölgað. Þar hafa að undanförnu mikil fíkniefni verið gerð upptæk af lögreglu sem og vopn. Innbrot verið tíð í mánuðinum og bílaþjófnaður á laugardag. DÆMI AF MÁLUM LÖGREGL- UNNAR Á SELFOSSI SÍÐUSTU FJÓRA DAGA: ■ Nokkuð magn fíkniefna, umbúðir til sölu þeirra, skotvopn, skotfæri og önnur vopn fundust við húsleit í ein- býlishúsi á Þorlákshöfn á föstudag. ■ Þrjátíu grömm af hassi og nokkur grömm amfetamíns fundust í kjölfar þess að lögreglan stöðvaði konu undir áhrifum lyfja á fimmtudag. ■ Sautján grömm af kannabis fundust við húsleit eftir að kona um fertugt var stöðvuð undir stýri á fimmtudag. ■ Jeppa stolið á Selfossi og fellihýsi við sumarbústað við Nesjar á laugardag. SAMHERJI SELUR Bæjarfélagið ætlar að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækisins með kaupunum. Forsetakosningar í Serbíu: Enginn fékk hreinan meirihluta FLEST ATKVÆÐI Þjóðernissinninn Tomislav Nikolic hlaut flest atkvæði. KAMAL JARRAH Var skotinn fyrir utan heimili sitt í Bagdad í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. UMFERÐARSLYS Lögreglunni á Sauðárkróki bárust tilkynningar um tvö umferðarslys með skömmu millibili í gær. Á fimmta tímanum fór bíll út af við Mann- skaðahól, rétt fyrir utan Sauðár- krók, með þeim afleiðingum að bifreiðin gjöreyðilagðist. Einn farþegi var í bílnum ásamt öku- manni og voru þau bæði flutt á sjúkrahús en meiðsl þeirra voru talin minniháttar. KALKSTEINS- LISTAVERK Ástralski rann- sóknarhópurinn fann fyrr í vik- unni þessa plötu með myndletri.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.