Fréttablaðið - 14.06.2004, Qupperneq 22
22 14. júní 2004 MÁNUDAGUR
Franskt drama
af bestu gerð
Zinedine Zidane skoraði tvö mörk þegar komið var fram yfir venju-
legan leiktíma og tryggði Frökkum sigur, 2–1, á Englendingum.
EM Í FÓTBOLTA Franska landsliðið
sýndi í gærkvöldi hvers þeir eru
megnugir þegar þeir sneru
töpuðum leik gegn Englendingum
í unninn í uppbótartíma. Frank
Lampard kom Englendingum yfir
með skalla á 38. mínútu og þrátt
fyrir að David Beckham léti
Fabien Barthez, markvörð
Frakka, verja frá sér vítaspyrnu á
73. mínútu, virtist fátt benda til
þess að Frakkar næðu að skora og
jafna leikinn. Allt þar til ein
mínúta var kominn yfir venju-
legan leiktíma. Þá braut
framherjinn Emile Heskey á
Zinedine Zidane rétt utan teigs og
Zidane lét sig ekki muna um að
skora beint úr aukaspyrnunni,
óverjandi fyrir David James,
markvörð Englendinga. Tveimur
mínútum síðar átti Steven
Gerrard, miðjumaður Englend-
inga, síðan skelfilega sendingu
aftur á David James, Thierry
Henry komst inn í sendinguna og
var felldur af James. Markus
Merk, hinn geðþekki þýski
tannlæknir, dæmdi umsvifalaust
víti og úr því skoraði Zidane sig-
urmark leiksins. Nokkrum sekún-
dum síðar var flautað af – við
höfum sennilega orðið vitni af
bestu endurkomu allra tíma í
knattspyrnusögunni.
Frakkar voru allan tímann mun
meira með boltann en
Englendingar börðust hetjulega
og gáfu engin færi á sér. Það er
varla hægt að segja að Frakkar
hafi fengið færi í leiknum en það
var mikið reiðarslag fyrir þá
þegar Frank Lampard skallaði
aukaspyrnu Davids Beckham í
netið á 38. mínútu, þvert gegn
gangi leiksins. Frakkar sóttu
áfram fram að hálfleik en komust
lítið áleiðis gegn sterkri vörn
Englendinga með Ledley King
sem besta mann.
Í síðari hálfleik hélt sama
mynstur áfram því Frakkar voru
meira með boltann en
Englendingar beittu hættulegum
skyndisóknum. Úr einni þeirra
náði Wayne Rooney að krækja í
vítaspyrnu. Hann stakk varnar-
menn Frakka af og gat Mikael
Silvestre ekki gert annað en að
brjóta á honum. Eins og áður
sagði tókst Beckham ekki að
skora úr vítaspyrnunni, Fabien
Barthez, markvörður Frakka,
stökk eins og köttur í hornið og
varði glæsilega.
Lokakaflanum er svo lýst hér
að framan – franskt drama af
bestu gerð.
David Beckham, fyrirliði
Englendinga, viðurkenndi eftir
leikinn að vítaspyrnan sem hann
brenndi af hefði verið
vendipunkturinn í leiknum.
„Ef ég hefði skorað úr
vítaspyrnunni hefðum við unnið
leikinn. Ég viðurkenni það.
Vítaspyrnan var ágæt en þetta
var vel varið hjá Barthez. Við
áttum ekki skilið að tapa leiknum
því við vorum betri aðilinn nánast
allan leikinn.“
Zinedine Zidane, hetja Frakka,
þakkaði Fabien Barthez fyrir
sigurinn. „Fabien gaf okkur
vonina með því að verja vítið og
hélt okkur inni í leiknum,“ sagði
Zidane. ■
■ ■ LEIKIR
20.00 ÍBV og Stjarnan mætast í
Vestmannaeyjum í Landsbanka-
deild kvenna í knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
08.40 EM í fótbolta á RÚV. Leikur
Portúgala og Grikkja frá laugar-
deginum endursýndur.
10.40 EM í fótbolta á RÚV. Leikur
Spánverja og Rússa frá laugar-
deginum endursýndur.
12.40 EM í fótbolta á RÚV. Leikur
Frakka og Englendinga frá því í
gær endursýndur.
14.40 Helgarsportið á RÚV.
Endursýndur þáttur frá sunnu-
degi.
15.05 Spurt að leikslokum á RÚV.
Endursýndur þáttur frá kvöldinu
áður.
15.40 EM í fótbolta á RÚV. Hitað
upp fyrir leik Dana og Ítala í
myndveri.
16.00 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Dana og Ítala í
C-riðli EM í fótbolta.
18.30 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Svía og
Búlgara í C-riðli EM í fótbolta.
18.50 NBA-deildin í körfubolta á
Sýn. Sýnt frá fjórða leik Detroit
Pistons og Los Angeles Lakers í
lokaúrslitum NBA-deildarinnar í
körfubolta.
21.00 Beyond the Glory á Sýn.
Þáttur um körfuboltamanninn
Kevin Garnett, einn albesta leik-
mann NBA-deildarinnar.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.15 Spurt að leikslokum á RÚV.
Spjall og samantekt úr leikjum
dagsins á EM í fótbolta í umsjón
Þorsteins Joð.
EM Í FÓTBOLTA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Mánudagur
JÚNÍ
EM Í FÓTBOLTA Þrátt fyrir ungan
aldur er Stilian Petrov þegar
orðinn fyrirliði búlgarska lands-
liðsins. Hann er lykilmaður á
miðju vallarins og hefur getið sér
gott orð með frammistöðu sinni
hjá skoska liðinu Celtic.
Petrov er vinsælasti
knattspyrnumaður Búlgaríu og
má til gamans geta þess að
brúðkaup kappans í júní 2001 var
sýnt í beinni útsendingu í búlg-
arska sjónvarpinu.
Hann þarf að vera í toppformi
á EM í Portúgal til að Búlgarar
eigi möguleika í andstæðinga sína
þrjá sem fyrirfram eru taldir
vera sterkari. ■
■ FYLGSTU MEÐ
Búlgaranum
Stilian Petrov
■
Petrov er að mínu mati einn af bestu
miðjumönnum í Evrópu.
Plamen Markov, landsliðsþjálfari Búlgaríu
EM Í FÓTBOLTA Christian Wilhelms-
son var einn af bestu leikmönnum
belgíska liðsins Anderlecht á
síðasta tímabili en það var ekki
fyrr en á þessu ári sem hann
eignaðist fast sæti í sænska lands-
liðinu. Hann spilaði ekkert með
liðinu í undankeppninni en mjög
góð frammistaða hans á miðjunni
í vináttuleikjum gegn Englandi og
Portúgal á þessu ári gerði það að
verkum að ekki var hægt að
ganga framhjá honum.
Wilhelmsson, sem er 25 ára
gamall, gat sér fyrst gott orð í
norska liðinu Stabæk þar sem
hann spilaði með Tryggva Guð-
mundssyni. ■
■ FYLGSTU MEÐ
Svíanum Christ-
ian Wilhelmsson
■
Hann hefur vaxið mikið undanfarið ár og
er einn af lykilmönnum mínum.
Hugo Broos, þjálfari Anderlecht
B-RIÐILL
Sviss–Króatía 0–0
Frakkland–England 2–1
0–1 Frank Lampard (38.), 1–1 Zinedine
Zidane (90.), 2–1 Zinedine Zidane, víti
(90.)
STAÐAN Í RIÐLINUM
Frakkland 1 1 0 0 2–1 3
Króatía 1 0 1 0 0–0 1
Sviss 1 0 1 0 0–0 1
England 1 0 0 1 1–2 0
NÆSTU LEIKIR Í RIÐLINUM
England–Sviss Fim. 17. júní 16:00
Króatía–Frakkland Mið. 17. júní 18:45
■ STAÐA MÁLA
GIOVANNI TRAPATTONI
Búinn að velja byrjunarlið ítalska liðsins
sem mætir Dönum í dag.
Ítalska landsliðið:
Del Piero í
byrjar í dag
EM Í FÓTBOLTA Giovanni Trapattoni,
landsliðsþjálfari Ítala, ákvað að
veðja á Alessandro Del Piero í
byrjunarlið sitt gegn Dönum í
Guimares í dag og bauð ekki upp á
neinar óvæntar uppákomur þegar
hann tilkynnti lið sitt. Trapattoni
fer ótroðnar slóðir því þjálfarar
liðanna hafa hingað til tilkynnt lið
sín á leikdegi. „Þetta sýnir að ég
veit hvað ég vil en er ekki hroki,“
sagði Trapattoni.
Gianluigi Buffon verður í
markinu, Christian Panucci,
Alessandro Nesta, Fabio Canna-
varo og Gianluca Zambrotta í
vörninni, Cristiano Zanetti,
Simone Perrotta og Mauro Cam-
oranesi á miðjunni og Francesco
Totti, Alessandro Del Piero og
Christian Vieri leiða framlínu
liðsins. Trapattoni sagðist sann-
færður um að Del Piero gæti spil-
að á vinstri kantinum enda væri
hann frábær leikmaður. ■
Morten Olsen:
Dagsformið
skiptir öllu
EM Í FÓTBOLTA Morten Olsen, lands-
liðsþjálfari Dana, sagði á blaða-
mannafundi í gær að hann væri
rólegur fyrir leikinn gegn Ítalíu í
dag þótt hann gerði sér grein
fyrir því að ítalska liðið væri
mjög sterkt.
„Úrslit þessa leiks koma til
með að ráðast á forminu. Dags-
formið skiptir öllu því ég hef ekki
trú á því að liðin geti komið hvort
öðru á óvart leikfræðilega. Við
verðum að vera tilbúnir í þennan
leik annars verður okkur refsað
grimmilega,“ sagði Olsen.
Olsen tilkynnti ekki byrjunar-
lið sitt í gær og sagðist ætla að
bíða með það þar til skömmu
fyrir leik. ■
HETJUNNI FAGNAÐ
Bixante Lizarazu, Sylvain Wiltord og David Trezeguet fagna hér fyrirliða sínum og hetju
Zinedine Zidane en hann skoraði bæði mörk Frakka í uppbótartíma.