Fréttablaðið - 16.06.2004, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2004
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Umferðaróhöpp við
Sauðárkrók:
Þrír bílar
ónýtir
SAUÐÁRKRÓKUR Tveir bílar ultu á
einni og hálfri klukkustund í um-
dæmi lögreglunnar Sauðárkróki síð-
degis á sunnudag og sá þriðji keyrði
út af vegi í Norðurárdal í Skagafirði.
Kona á miðjum aldri þríhand-
leggsbrotnaði í bílveltu við Sauð-
árkrók. Nota þurfti klippur til að
koma konunni út úr bílnum og var
hún flutt á sjúkrahús þar sem hún
fór í aðgerð. Hin veltan varð rétt
fyrir utan Hofsós við Mannskaða-
hól. Þar voru erlendir gestir á
bílaleigubíl á ferð. Þeir hlutu
minniháttar áverka. Allir bílarnir
þrír eru ónýtir. ■
Á LEIÐ ÚR RÉTTARSAL
Shabina Begum segir að sér sé neitað um
skólagöngu og að iðka trú sína.
Ensk skólastúlka:
Kjóllinn
bannaður
LONDON, AP Fimmtán ára íslömsk
stúlka fær ekki að klæðast hefð-
bundnum kjól og slæðu íslamskra
kvenna í skólanum sem hún
stundar nám við í London.
Stúlkan var send heim úr
skólanum í september 2002 fyrir
að klæðast jilbab, síðum kjól sem
hylur allan líkamann utan hendur
og andlit. Síðan þá hefur hún ekki
mætt í skóla. Hún og fjölskylda
hennar höfðuðu mál á hendur
skólanum en dómari felldi í gær
þann úrskurð að skólinn væri í
fullum rétti að banna henni að
klæðast kjólnum. ■
Gordon Brown:
Lengst allra
í embætti
BRETLAND Enginn breskur stjórn-
málamaður hefur setið lengur
samfellt í stóli fjármálaráðherra
en Gordon Brown. Í gær hafði
hann gegnt embættinu í sjö ár og
44 daga.
Sky-fréttastofan rifjaði af
þessu tilefni upp skilgreiningu
Browns á breskum fjármála-
ráðherrum. Þeir skiptust í tvo
hópa, annars vegar þá sem klúðr-
uðu málum, hins vegar þá sem
forða sér tímanlega úr fjármála-
ráðuneytinu.
Stutt er síðan skoðanakönnun
YouGov leiddi í ljós að fleiri Bret-
ar töldu að hann yrði betri forsæt-
isráðherra en Tony Blair. ■