Fréttablaðið - 16.06.2004, Síða 23
Tómatuppskriftir:
Innihalda bragðaukandi efni
5MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2004
Ferskir ávaxtadrykkir eru ágætt mótvægi við allan bjórinn sem fylgir fótboltanum.
Hér eru tvær uppskriftir sem kalla fram það besta í þeim sem nenna að gera al-
mennilega kokkteila! En ef fólk vill spara sér vinnuna eru barþjónar á veitingastöð-
um á borð við Hverfisbarinn, Thorvaldsen, Sólon og Vegamót tilbúnir í slaginn.
[ FERSKIR SUMARDRYKKIR ]
Finlandia Pineapple
3 cl Finlandia
mynta
hrásykur
ananaskurl
3 cl ananassafi
lime
—hrist með klaka og síað—
mulinn ís
Finlandia Strawberry
3 cl Finlandia
1 stk. jarðarber
3 bátar lime
mynta
3 cl jarðarberjaliíkjör
hrásykur
—hrist með klaka og síað—
mulinn ís
soda/sprite
FRÁ ÁRINU 1878 hefur Stowells sérhæft sig í því að
finna einstök vín sem endurspegla einkenni hvers vín-
gerðarlands en Stowells of Chelsea er eitt öflugasta vín-
fyrirtæki heims og framleiðir vín í 10 þjóðlöndum. Hér á
landi fást fjölmargar gerðir vína frá Stowells og hafa
kassavínin sérstaklega verið vinsæl. Stowells Vin du Pays
du Gard er franskt vín, Miðjarðarhafslegt í stíl með
þroskuðum og sólríkum ávöxtum. Létt og með mildri
endingu. Vínið þolir smá kælingu og er tilvalið með létt-
ari réttum. Hentar vel með kjötréttum, ostum og paté.
Hefur verið lækkað um 200 kr. á grilldögum.
STOWELLS:
Miðjarðarhafslegt í stíl
Vín með grillmatnum
MARRONE MOSCATO D´ASTI frá Gian Piero Marrone í héraðinu
Piedmonte nyrst á Ítalíu er létt og freyðandi vín, tilvalið eftirrétta-
vín en villandi er að flokka það sem freyðivín eins og hið ítalska
spumante. Moscato hentar vel með kökum, eftirréttum eða bara
eitt og sér. Afar gott sem fordrykkur, vín í brúðkaup og móttökur.
Það hefur lágt alkóhólmagn, er ljúffengt með góða mýkt í bragði,
óviðjafnanlega blómaangan og mjög fínar bólur sem gera það að
verkum að vínið er örlítið freyðandi. Best er að drekka þetta vín
ungt en vínið er látið gerjast í stáltönkum. Til að viðhalda fersk-
leika og angan vínsins er það geymt í hitastýrðum kerjum þang-
að til það er sett á flöskur. Versti óvinur Moscato-vína er að
geyma þau í hita, best er að geyma flöskurnar á vel kældum stað
og varðar fyrir miklu ljósi. Best er að drekka vínið við 6-7˚.
Verð í Vínbúðum 790 kr.
Marrone Moscato d´Asti:
Létt og freyðandi
BLUSH EÐA ROÐAVÍN hafa lengi notið mikilla vinsælda, sér-
staklega sem samkvæmisvín. Cypress White Zinfandel er úr zin-
fandel-þrúgunni sem er óvenjulegt fyrir ljóst vín en vínið hefur
ferskleika hvítvíns, karakter rauðvíns og lífleika rósavíns. Fallega
laxableikt að lit með ilm af jarðarberjum og rifsberjum. Aðeins
freyðandi með vott af sætu. Í eftirbragði er skemmtileg sýra sem
gerir það að verkum að vínið er ekki bara gott til drykkjar eitt og
sér heldur fer ljómandi vel með grilluðum fiski og þá sérstak-
lega laxi. Einnig koma ýmiss konar salöt vel til greina, þá gjarn-
an með furuhnetum, sólþurrkuðum tómötum og grilluðum laxi.
Kynningarverð á grilldögum í Vínbúðum 890 kr.
Cypress White Zinfandel:
Ljómandi með laxi
Vín með grillmatnum
Veisluvín
Íslensk tómatsúpa
1 íslensk gulrót (ef til er, annars 1 appel-
sínugul íslensk paprika, lítil)
1 gul íslensk paprika, lítil
25 g íslenskt smjör
800 g íslenskir tómatar, vel þroskaðir
2 tsk. ferskt íslenskt timjan, saxað
1 tsk. ferskt íslenskt rósmarín, saxað
nýmalaður pipar
salt
3/4 l íslenskt vatn
2-3 msk. íslenskur graslaukur, saxaður
íslenskur fetaostur til að setja út í
Gulrótin og paprikan skornar í litla ten-
inga.
Smjörið brætt í potti og gulrót og paprika
látnar krauma í því við fremur vægan hita
í nokkrar mínútur.
Tómatarnir saxaðir og settir út í ásamt
kryddjurtum, nokkuð miklum pipar og
salti.
Hitað að suðu og látið malla við hægan
hita í 25-30 mínútur.
Þá er súpan smökkuð til og söxuðum
graslauk dreift yfir. Tekin af hitanum og
látin standa 1-2 mínútur en síðan borin
fram ásamt fetaosti, sem hver og einn
setur út í eftir smekk.
Lykilatriði til að súpan verði góð er að
tómatarnir séu vel þroskaðir og rauðir og
að notaður sé mikill pipar til að krydda
hana.
Tómatsalat
4 tómatar, sneiddir
hálfur rauðlaukur, smátt saxaður
1 msk. ólífuolía
hálf msk. balsamedik
salt og pipar
Tómötunum er raðað á fat og stráð yfir
þá lauknum, olíunni, edikinu og kryddað
til.
Passar sérstaklega vel með grillmat eða
ristuðu brauði.
Hægsteiktir tómatar með mozzarellu
12 fallega rauðir tómatar
bréf ferskt timían eða oreganó
3-4 ferskar mozzarellukúlur
salt og pipar
ólífuolía
Skerið tómatana í tvennt, þvert á kjötið.
Dreifið timíani á pönnu, hellið ólífuolíu
yfir, salti og pipar. Setjið vægan hita undir
pönnuna
Raðið tómötunum á hana með hýðið nið-
ur og kryddið þá með salti og pipar.
Leyfið þeim að steikjast á annarri hliðinni í
um 30-40 mínútur. Hitinn má ekki vera
það mikill að kryddjurtirnar brenni.
Þegar tómatarnir eru tilbúnir skerið þá ost-
inn í hæfilega þykkar sneiðar, setjið þær
ofan á tómatana og kryddið með pipar.
Einnig er hægt að nota olíuna sem til fellur
af pönnunni og setja yfir tómatana.
Gott er að bera þennan rétt fram með fiski
eða kjúklingi eða bara einan og sér. Varla
þarf að bera sósu fram með þeim rétt.
Tómatar eru bragðmestir ef þeir fá að
þroskast á plöntunni og ekki síst ef þeir eru
ræktaðir úti undir berum himni í mikilli
sól. Bragð tómatanna breytist töluvert við
eldun og verður sætara og mildara.
Tómatar eru frábærir í samansoðna
rétti þar sem þeir draga mjög auðveldlega
fram bragð annars hráefnis auk þess sem
þeir innihalda sitt eigið bragðaukandi efni.
Þar sem tómathýðið er ómeltanlegt og
nokkuð seigt reynist oft nauðsynlegt að af-
hýða tómata fyrir matreiðslu. Auðveldasta
aðferðin til að ná hýðinu af er að bregða
tómötunum fyrst í sjóðandi vatn og svo í
kalt vatn.
Við sósugerð er óþarfi að afhýða
tómatana, auðveldara er að sjóða þá í sós-
una, merja þá, sjóða áfram og sía svo sós-
una ef hún á að vera örðulaus. Algengustu
sósurnar eru auðvitað tómatsósan, sem er
alveg örðulaus, pitsu- og pastasósur eru
minna síaðar og að lokum er það salsasósan
sem er ekkert síuð.
Næringargildi niðursoðinna tómatvara
er eitthvað skert miðað við ferskt hráefni
auk þess sem ýmiss konar viðbótarefnum
er oft blandað saman við, til dæmis sykri,
salti og jafnvel rot- og þráavarnarefnum.
Eftir suðu má frysta tómata bæði í heilu
lagi og sem mauk.
Hér á eftir fara uppskriftir að gómsæt-
um tómatréttum. ■