Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 4
4 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR Góð afkoma hjá Burðarási: Græddi meira en bankarnir VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið Burðarás, móðurfélag Eimskipa- félagsins, hagnaðist um tæpa sjö milljarða á fyrri helmingi ársins sem er meiri hagnaður en nokkurt fyrirtæki hefur skilað á fyrri helmingi ársins. Hagnaður annars ársfjórðungs var rúmir tveir milljarðar króna. Eimskipafélagið hefur sett sér metnaðarfull markmið um betri af- komu. Baldur Guðnason forstjóri Eimskipafélagsins boðar vöxt og betri nýtingu fjárfestinga félags- ins. „Markmiðið er að auka arð- semi félagsins um yfir milljarð króna á næstu tveimur árum og að félagið vaxi um 40 til 50 prósent.“ Burðarás kynnti samhliða upp- gjörinu stefnumótun sína. Mark- mið félagsins er að fjárfesta að stærstum hluta, eða um 65 pró- sent í óskráðum félögum, innlend- um og erlendum. Þá stefnir Burðarás að því að um fimm pró- sent heildareigna verði í nýsköp- unarfyrirtækjum. Friðrik Jó- hannsson segir að þær fjárfest- ingar verði að mestu hérlendis. „Ekki vegna þess að við séum svo þjóðernissinnuð, heldur eru þetta fjárfestingar sem krefjast þess að maður sé vakinn og sofinn yfir þessum fjárfestingum.“ Uppgjörið og stefna Burðaráss fór vel í markaðinn og hækkuðu bréf félagsins um tíu prósent í gær. ■ FLUTNINGAR „Strandsiglingum við Ísland verður að mestu hætt þeg- ar þetta verður að veruleika,“ seg- ir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Eimskip hefur ákveðið hætta strandsiglingum frá og með 1. desember að því er fram kemur í fréttatilkynningu vegna sex mán- aða uppgjörs félagsins. Flutningaskip Eimskipa, Mána- foss, hefur siglt með vörur hring- inn í kringum landið með viðkomu á tíu stöðum auk Reykjavíkur í hverri viku. Áhöfn Mánafoss telur alls sextán manns og mun óhjá- kvæmilega koma til uppsagna að sögn Baldurs Guðnasonar, for- stjóra Eimskipa. Þó verði reynt að leysa málið á annan hátt með til- færslum innan fyrirtækisins. „Það er aukin eftirspurn eftir landflutningum þar sem menn vilja daglegar ferðir og hraðari tíðni,“ segir Baldur. „Eftirspurn eftir strandflutningum hefur hins vegar minnkað, auk þess sem starfsemi kísilverksmiðjunnar á Mývatni verður hætt en það hefur verulegan samdrátt í för með sér fyrir strandflutningana.“ Mánafoss er leiguskip og hefur eigendum þess verið tilkynnt að því verði skilað að sögn Baldurs. „Þetta þýðir auðvitað að áhöfnin missir vinnuna og þús- undir tonna af varningi, sem áður var fluttur með skipinu, flyst inn á vegina,“ segir Jónas en Mána- foss flytur árlega um 140.000 tonn af varningi. „Einn fullhlaðinn flutningabíll slítur vegunum á við 40.000 fólks- bíla,“ segir Stefán Ásgrímsson, ritstjóri blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda, og bendir á að meiri umferð á vegunum hafi að sjálfsögðu í för með sér aukið vegslit. Stefán nefnir einnig að saman- burður félagsins á þungatakmörk- unum á Íslandi og í öðrum Evr- ópulöndum hafi leitt í ljós að hér séu leyfðir mun stærri og þyngri vöruflutningabílar en í löndunum í kringum okkur. helgat@frettabladid.is Grunaður um ölvun: Þjóðverji í farbanni RANNSÓKN Þýskur maður sem slas- aðist í umferðarslysi á Krísuvík- urvegi á Laugardag fyrir viku síð- an lést í fyrradag af sárum sínum. Ökumaður bílsins, sem grunaður er um ölvunarakstur, hefur verið úrskurðaður í farbann til 27. ágúst en hann er einnig Þjóðverji. Fimm Þjóðverjar voru í bíln- um þegar hann hafnaði utan vegar og valt en þeir hafa dval- ist hér á landi við störf tíma- bundið. Maðurinn sem lést kastaðist út úr bifreiðinni þegar hún valt. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði er rannsókn máls- ins langt kominn. ■ HERMENN Bandarísk hernámsyfirvöld eru ásökuð um að halda ekki nógu vel um fjármuni í Írak. Hernámsliðið í Írak: Illa haldið um fjármuni WASHINGTON, AP Bandarísk yfir- völd í Bagdad eyddu hundruðum milljóna íraskra dollara án þess að halda nógu vel utan um hvert peningarnir fóru, að sögn endur- skoðenda ríkisstjórnarinnar. Embættismenn hernámsliðsins í Írak höfðu engin gögn til að rétt- læta 25 milljóna dollara, um 18 milljarða íslenskra króna, kostnað við að skipta út fyrrum gjaldmiðli Íraka. Þá segir í skýrslunni að yfirvöld hafi greitt nærri 200.000 dollara, fimmtán milljónir ís- lenskra króna fyrir fimmtán lög- reglubíla sem enginn veit hvort voru nokkurn tímann afhentir. ■ Er rétt að hafa búðir opnar á frídegi verslunarmanna? Spurning dagsins í dag: Á að birta álagningarskrár opinberlega? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 66,38% 33,62% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is MEÐ INNFLYTJENDUM Forsætisráðherrann tók á móti innflytjend- um frá Frakklandi. Ariel Sharon: Mega halda kjarnorku- vopnunum ÍSRAEL, AP Bandaríkjamenn hafa fullvissað Ísraela um að ekki verði hróflað við kjarnorkuvopn- um þeirra þó reynt verði að koma í veg fyrir að önnur ríki í Miðaust- urlöndum komi sér upp slíkum vopnum. Þetta lásu menn úr orð- um Ariels Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, á fundi Likudbanda- lagsins. Sharon sagði Bandaríkjamenn skilja að mikil ógn steðjaði að Ísrael sem yrði að geta varið sig. „Við höfum fengið skýr skilaboð Bandaríkjamanna um að ekki eigi að snerta við Ísrael þegar kemur að fælingarmætti þess,“ sagði Sharon. Ísraelar hafa aldrei viður- kennt að ráða yfir kjarnorkuvopn- um en fáir eru í vafa um að sú sé raunin. ■ VIÐ FLATEY Viktoría ætlar sér að synda yfir Breiðafjörð á tveimur vikum. Syndir yfir Breiðafjörð: Þriðjungi leiðar lokið BARNAHJÁLP Viktoría Áskelsdóttir hefur lokið þriðjungi sundferðar sinnar yfir Breiðafjörðinn en hún verður fyrst manna til að synda yfir fjörðinn. Viktoría kom í Flatey á mið- vikudag og hafði þá synt tæpa 22 kílómetra yfir fjörðinn en leiðin er alls 62 kílómetrar. Sökum slæmra skilyrða við Flatey ákvað hún að snúa sundleiðinni og syndir af- ganginn af leiðinni frá Stykkis- hólmi í Flatey en hún lagði af stað frá Brjánslæk 24. júlí og ætlar sér að ljúka sundinu þann 8. ágúst. Viktoría er 47 ára og syndir yfir Breiðafjörðinn til styrktar Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna. ■ LANDFLUTNINGAR Stór vöruflutningabíll slítur vegunum jafn mikið og 40.000 fólksbílar sem keyra sömu leið, segir ritstjóri blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Strandsiglingum Eimskips hætt Eimskip hefur ákveðið að hætta strandsiglingum. Varningurinn verður fluttur með landflutningum í staðinn. Stór vöruflutningabíll slítur veg- unum jafn mikið og 40.000 fólksbílar, segir ritstjóri blaðs FÍB. STEFÁN ÁSMUNDSSON Ritstjóri blaðs Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda. SVÍÞJÓÐ Síðasti fanginn af fjórum sem flúði úr fangelsi í Svíþjóð var handtekinn í gær. Tony Olsson sem dæmdur er fyrir rán og morð á tveimur lög- regluþjónum hafði falið sig í hlöðu á bóndabæ suður af Stokkhólmi. Hlaðan var skammt frá þeim stað sem flóttabíll þeirra félaga fannst og hinir þrír voru gripnir. Flóttinn hefur vakið upp óþægi- legar minningar í Svíþjóð. Olsson var einn úr hópi fanga sem innan múranna skipulögðu bankarán sem endaði með morði á tveimur lög- regluþjónum í Kisa fyrir fimm árum. Talið var að fangarnir hefðu nýtt æfingar á leikriti eftir Lars Norén sem fangarnir léku í þjóð- leikhúsinu í Stokkhólmi. Uppsetn- ingin var umdeild, bæði vegna þess að fangarnir boðuðu nasisma og einnig vegna þess að margir töldu að þjóðleikhús Svía væri að gera hetjur úr glæpamönnum. Flóttinn hefur vakið upp um- ræður um öryggisgæslu í sænsk- um fangelsum. Þótt fangarnir séu allir fundnir leitar lögreglan enn vitorðsmanna sem aðstoðuðu við flóttann. ■ AP M YN D Gasleiðsla sprakk: Tíu létust BRUSSEL, AP Að minnsta kosti tíu lét- ust og tvö hundruð særðust þegar stór gasleiðsla sprakk í iðnaðar- hverfinu Ghislenghien skammt suður af Brussel í gærmorgun. Atvikið átti sér stað með þeim hætti að verkamenn stungu gat í leiðsluna sem lá neðanjarðar. Gatið var um einn metri í þvermál og olli mjög öflugri sprengingu. Þeir sem slösuðust voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús auk þess sem nokkrir voru fluttir á sjúkra- hús í frönsku borginni Lille. Um fjörutíu hinna slösuðu eru í lífs- hættu. ■ Vísindamenn: Hákarlarnir fældir burt PÚERTÓ RÍKÓ, AP Vísindamenn segj- ast loksins hafa fundið áhrifaríka lausn til þess að fæla í burtu há- karla. Stöng sem gefur frá sér efnalausn er stungið í sjóinn og hrekur há- karlana burt á augabragði. Efnablandan er unnin úr lík- ömum dauðra hákarla sem safn- að var á fiskimarkaði í New Jers- ey en vísindamenn og sjómenn hafa lengi vitað að hákarlar halda sig fjarri finni þeir lykt af dauðum hákarli. Hákarlafælan hefur verið prófuð á Bahamaeyj- um með góðum árangri. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N HÁLEIT MARKMIÐ Burðarás og Eimskipafélagið stefna að stór- bættum rekstri og afkomu til framtíðar. For- stjóri Eimskipafélagsins vill sjá betri nýtingu eigna félagsins og meiri vöxt á næstu árum. Tvöfaldur morðingi á flótta: Faldi sig á hlöðulofti MORÐINGI Á FLÓTTA Tony Olsson var dæmdur fyrir morð á tveimur lögregluþjónum. Hann varð þekktur í Svíþjóð þegar hann lék í verki eftir Lars Norén á sviði. Hann var gripinn í gær eftir flótta úr fangelsi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.