Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 8
8 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR VEÐUR Ef fólk vill flýja vætu er Norðurland eini kosturinn, segir Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur, veðurfréttamaður um veðurspána fyrir helgina. „Það liggur ekki fyrir hvort það verði þurrt á sunnudag en það verður bjart á köflum í dag og á mánudaginn. Sunnudagurinn virð- ist ekki ætla að verða neitt sér- stakur.“ Sigurður á þó ekki von á neinu aftakaveðri annars staðar á landinu og segir veðrið í Eyjum til dæmis eiga eftir að verða fínt þó það verði ekki bjart. Það er helst á sunnudagsmorgun sem rigning gæti orðið veruleg við lægðarskil. Á Austfjörðum og Vestfjörðum má gera ráð fyrir skúraköflum en ekki miklum vind, það er helst á Vesturlandi sem vindur verður stífur. „Á höfuðborgarsvæðinu verða skúrakaflar, mest á sunnudag, en annars þurrt að kalla,“ segir Sigurður en bætir við að það sé engin ástæða til forðast lands- byggðina vegna veðurs og sjálfur ætlar hann á Þjóðhátíð í Eyjum. ■ Til Eyja Fyrsta flug Flugfélagsins til Vestmannaeyja fór í loftið korter fyrir þrjú í gær. Þá hafði ekkert verið flogið til Eyja frá því á miðvikudag. VERSLUNARMANNAHELGI Þjár vélar flugu til Vestmannaeyjar um þrjú leytið í gær. Ekki hafði verið flog- ið til eyjarinnar frá miðvikudegi og biðu um 500 manns eftir flugi. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flug- félags Íslands, segir allt flug hafi gengið að óskum nema til Vest- mannaeyja. „Við erum búnir að fljúga allt sem við þurfum til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarð- ar.“ Alls voru átta vélar á áætlun gærdagsins til Eyja. Örtröðin var mikil á flugvellin- um en þó ekkert á við það sem áður þekktist. Það er liðin tíð að fólk bíði klukkustundum saman á flugstöð- inni, segir Rúnar Árnason, starfs- maður kaffiteríunnar á Reykjavík- urflugvelli síðustu 18 árin. „Núna situr fólk heima hjá sér og horfir á textavarpið. Svo þegar það sér að það er orðið fært þá kemur það. Því miður fyrir mig,“ segir Rúnar því álagið á kaffiteríunni sé með hefð- bundnu sniði. „Menn eru að fá sér öl og baguette eða samloku eða eitthvað í þeim dúr,“ segir Rúnar. Karlahópur Femínistafélags Íslands var með starfsstöð á Reykjavíkurflugvelli og hvöttu farþega til að sýna ábyrgð og segja nei við nauðgunum. Þeir seldu frisbídiska, boli og gáfu barmmerki með slagorði barátt- unnar; nei. Sigvarður Huldarsson var einn þriggja frá hópnum á svæðinu og útbýtti barmmerkjun- um. Hann var nýkominn frá Þor- lákshöfn þar sem hann minnti far- þega Herjólfs á ábyrgð sína. „Fólk hefur tekið vel í þetta. Það eru þó margir sem segja að það sé kannski ekki veður til þess að nota frisbí mikið en við vonum að það skáni einhvað,“ segir Sigvarður. ■ SVONA ERUM VIÐ VÖRUÚTFLUTNINGUR ÍSLENDINGA Í JÚNÍ Sjávarafurðir 9.465 milljónir Landbúnaðarafurðir 426 milljónir Iðnaðarvörur 6.177 milljónir Aðrar vörur 258,5 milljónir Heimild: Hagstofa Íslands Á LEIÐ ÚR BÆNUM Mikil umferð var um Hellisheiði og á Norðurlandi í upphafi helgar. Umferðarstofa um helgina: Miðlar upp- lýsingum til vegfarenda UMFERÐARMÁL „Við erum í sam- bandi við lögreglu og Neyðarlín- una og viðum að okkur öllum upp- lýsingum sem ætla má að hafi aukið öryggi í för með sér og kom- um þeim á framfæri í umferðar- útvarpinu,“ segir Sigurður Helga- son hjá Umferðarstofu. Stofan viðheldur áratugagöml- um sið og starfrækir upplýsinga- miðstöð um umferðarmál um verslunarmannahelgina. „Við verðum hér alla helgina með bækistöðvar í Reykjavík og söfn- um að okkur gögnum um gang umferðarinnar. Sigurður segir að aðaláherslan sé lögð á að öku- menn aki á jöfnum og löglegum hraða, fari varlega í framúrakstur og noti öll öryggistæki. „Við send- um líka skýr skilaboð að ölvun- arakstur er óverjandi athæfi en við höfum á tilfinningunni að hann hafi aukist.“ Sigurður segir að mikil umferð hafi verið um bæði Hellisheiði og á Norðurlandi í byrjun helgarinn- ar en það sé ómögulegt að meta fyrirfram hvar hún verði mest um helgina. Upplýsingamiðstöð Um- ferðarstofu verður opin frá 10 til 18 í dag, 12:30 til 17 á sunnudag og frá 11 til 19 á mánudag. ■ FJÖRUTÍU ÁR EFTIR Hrannar Pétursson var á leið með félögum sínum á Þjóðhátíð í Eyjum. Hann valdi Eyjar þar sem þar yrði væntanlega mesta stuðið. „Ég hef undirbúið mig vel og ég er með allt klárt, regngalla og stuttbuxur, fyrir hvað sem gerist,“ segir Hrannar. Þeir vinirnir ætla að gista í tjaldi. Þeir töldu sig á kjöraldri fyrir Þjóðhátíð sem þeir segja vera fyrir 2-82 ára. „Það eru fjörutíu ár eftir ennþá,“ segir Hrannar. BARA GEÐVEIKT STUÐ Er hugmynd vinkvennanna Heiðu, Maríu og Huldu um Þjóðhátíð í Eyjum. Þær voru á leið á sína fyrstu Þjóðhátíð. „Ég ætla bara að skemmta mér,“ segir Heiða og bætir við: „Ég veit ekkert við hverju er að búast mig langaði bara að prófa þetta.“ Þær vinkonunar ákváðu að fara á Þjóðhátíð löngu áður en þær vissu veðurspána en hún dró alls ekki úr tilhlökkun- inni fyrir ferðinni. „Við erum á gistiheimili. Við ákváðum það sjálfar því við vildum alls ekki vera í tjaldi,“ segir María. MEÐ PABBA Í EFTIRDRAGI „Ég er að fara að heimsækja pabba minn og fara á Þjóðhátíð,“ segir Katla Þorvalds- dóttir. Hún er fimmtán ára gömul og á leið á sína fyrstu hátíð. Katla segir að mamma hennar hafi haft pínulitlar áhyggjur af henni en pabbi hennar verði með augun hjá sér og fylgist með hverju fótmáli. „Ég býst við stuði og mikið af fólki,“ segir Katla. „Það er dálítil stemning að það rigni.“ EGÓ AÐDRÁTTARAFLIÐ Ingólfur Grímsson er að fara í fimmta eða sjötta sinn á Þjóðhátíð. Hann segir Bubba og Egó ástæðuna fyrir því að hann sé á leið þangað nú. „Við vinirnir ákváðum endanlega að fara þegar við vissum af þeim en við vorum búnir að vera að pæla í því,“ segir Ingólfur. „Það voru tafir þegar veðrið var slæmt en núna er það skárra og því getum við farið.“ Ingólfur gist- ir í húsnæði: „Ég nenni ekki að standa í sukkinu í tjaldi lengur. Geri nóg af því hvort sem er.“ BIRGIR AF BJÓR Gunnar Sævarsson og Skarphéðinn Eymundsson þurfa vart að hræðast þurrk á Þjóðhátíð. Þeir eru vel birgðum búnir og með kassa af sterku, virki bjórinn ekki nægilega vel. STARFSFÓLK KAFFITERÍUNNAR [Jeesis, bróðir hennar Carlos og Patricia vinna með Rúnari Árnasyni í kaffiteríunni á Reykjavíkurflugvelli. Kallar Rúnar vaktina sína Spönsku vaktina en þau eru öll frá Venesúela. Rúnar hefur unnið á Reykjavík- urflugvelli í 18 ár: „Ég hef marga fjöruna sopið í þessum bransa.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R G ÍS LA SO N FEMÍNISTINN SEGIR NEI Sigvarður Huldarsson kvatti farþega til að sýna ábyrgð og segja nei við nauðgunum. Veðurspáin um helgina: Besta veðrið fyrir norðan ÚT Í EYJUM Heimamenn koma sér fyrir á Þjóðhátíð. Það má búast við vætu þar um helgina en það birtir á milli skúra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.