Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 93 stk. Keypt & selt 19 stk. Þjónusta 42 stk. Heilsa 6 stk. Skólar & námskeið 1 stk. Heimilið 12 stk. Tómstundir & ferðir 13 stk. Húsnæði 22 stk. Atvinna 9 stk. Tilkynningar 4 stk. Bílar stjarnanna BLS. 3 Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 31. júlí, 213. dagur ársins 2004. Reykjavík 4.32 13.34 22.34 Akureyri 3.59 13.19 22.36 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Það eru ekki margir sem aka um götur borgarinnar á litlum bílum eins og Rover Mini. Pétur Ívarsson er meðal þeirra en hann á fjörutíu ára afmælisútgáfu af Rover Mini árgerð 1999. „Austin Mini var framleiddur frá 1959–1999 og er þetta skemmtileg afmælis- útgáfa af bílnum sem er reyndar sá eini sinn- ar tegundar hér á landi. Þessir síðustu bílar sem komu á markaðinn voru framleiddir sem hip og kúl bílar fyrir ríka fólkið úti sem notaði hann sem fjórða bíl. Er þetta jafnframt síð- asta árgerðin af gamla Mini áður en BMW byrjaði að framleiða nýja útlitið. Minnir þetta mann á gömlu Matchbox-bílana sem maður átti sem krakki, svona silfurgrár með rauðu leðri að innan,“ segir Pétur. Hann segist ekki vera neinn bíladellukall þó að hann hafi gaman af litlum bílum eins og þessum. „Það var þannig að ég var að rölta úr Kringlunni einhvern tímann og sá Mini keyra fram hjá og þá beit ég það bara í mig að mig langaði í einn slíkan. Bílinn flutti ég síðan til landsins í mars árið 200 frá Þýskalandi en hann keypti ég af systur minni sem var búsett þar,“ segir hann. Pétur segir bílinn ekki vera notaðan sem fjölskyldubíl þar sem hann henti frekar illa í það. „Ég nota hann eingöngu sem sumarbíl því á veturna legg ég honum. Hann eyðir mjög litlu en ég er nú samt alltaf að setja bensín á hann þar sem bensíntankurinn í hon- um er mjög lítill. Hann er ekki keyrður nema tuttugu og sjö þúsund kílómetra og hefur ekk- ert bilað síðan ég keypti hann,“ segir Pétur. Hann segir mikla athygli fylgja bílnum „Maður má helst ekki líta til hliðar þegar mað- ur stoppar á rauðu ljósi því það er horft svo mikið á bílinn. Sumir vilja alls ekki vera í bíln- um því þeim finnst þetta óþægilegt en öðrum finnst þetta einstaklega skemmtilegt og fá bíl- inn lánaðan til að taka einn Laugaveg. Mér og strákunum mínum, þeim Viktori Orra og Kristófer Orra, finnst bíllinn hins vegar mjög flottur og gaman að keyra um á honum. Mér finnst þetta líka klárlega skemmtileg- asti bíllinn sem ég hef átt en kannski ekki sá þægilegasti að keyra því hann er bæði hastur og frekar þungur í stýri,“ segir Pétur. halldora@frettabladid.is bilar@frettabladid.is Bræðrunum Viktori Orra og Kristófer Orra finnst bíllinn mjög flottur og gaman að aka um í honum. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í BÍLUM Mazda 323F GTI V6 2.0 árg. ‘96. Gler- topplúga, gott lakk, 150 hö! Dekurbíll. Stgr. Tilboð! Uppl. í s. 698 0777. Sófalist Fallegar yfirbreiðslur fyrir sófa og stóla. Opnum eftir sumarleyfi 3. ágúst. www.sofalist.is Síðumúli 20 2 hæð. S 553 0444. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Í dag eru 1.614 smáauglýsingar á www.visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Sænski bílaframleiðandinn Volvo birti upp- gjörstölur fyrir annan ársfjórðung á dögun- um. Greining- ardeild KB banka í Svíþjóð telur þær tölur vera af- bragðsgóðar. Til dæmis var rekstr- arhagnaðurinn tæplega fjörutíu prósent yfir það sem deildin spáði. Deildin hefur í kjölfar taln- anna gefið út nýtt verðmat þar sem forsendur hafa verið hækkaðar. Bílaframleiðandi hinna hraðskreiðu Porsche-bif- reiða ætlar að auka framleiðsluna gífurlega á næstunni. Innan þriggja ára stefnir fyrirtækið á að framleiða meira en hundrað þús- und bíla. Það er um þriðjungi meiri fram- leiðsla en nú er og tvöfalt fleiri bílar en verksmiðjan framleiddi á ári ef horft er áratug aftur í tímann. Porsche fer létt með þessa fram- leiðsluaukningu þar sem fjárhags- leg staða fyrirtækis- ins er ákaflega sterk. Hagnaður ársins í fyrra var tæplega níutíu milljarðar króna og gert er ráð fyrir auknum hagnaði á þessu ári. BMW 3 línan eða þrist- urinn er söluhæsti bíll bílaframleiðandans BMW frá upphafi. Bíllinn selst í svipuðu magni í Evrópu og á síðasta ári þó að hann sé kominn á sjöunda framleiðsluár. Bílaumboð BMW á Íslandi, B&L, hefur verið með tvær útgáfur á áhugaverðum kjörum, BMW 316 lifestyle og BMW 318 exclusive. Það eru ekki bara gæð- in sem einkenna þenn- an glæsilega bíl heldur er BMW líka ódýrari í rekstri og góður í endursölu. Rover Mini: Minnir á gömlu Matchbox-bílana

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.