Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 31. júlí 2004 Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Helgarferðir 3 eða 4 nætur í allt haust. Dublin, borgin sem Íslendingum finnst gaman að skemmta sér í! ...Dublin bí›ur flín The Merry Ploughboys Lifandi borg með fjörugu mannlífi. Stuð og stemmning í Dublin, komdu með. Sértilbo› Ferðir til Dublinar 4., 11. og 25. nóvember. Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu, íslensk fararstjórn og allir flugvallar- skattar. M.v. að 2 fullorðnir ferðist saman. 37.810 kr. netverð. Sértilbo› Du bli nar- f er ði r í al lt h aust ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S PL U 2 54 38 07 /2 00 4 Þórsmörk var önnur hátíð á sjöunda áratugnum sem vakti mikla lukku meðal landans. Hátíðin var afskap- lega vinsæl enda haldin á einu falleg- asta svæði sem Ísland á. Árið 1967 spilaði stórhljómsveitin Sonet í Þórs- mörk og er Óttari Felix Haukssyni tónlistarútgefanda og poppara með meiru ýmislegt minnisstætt. „Um- boðsmaðurinn okkar reddaði okkur giggi í Þórsmörk ásamt hljómsveit- inni Toxic sem var topphljómsveit á þessum tíma. Við ætluðum aldeilis að meika það og ekki spilltu launin. Tíu þúsund krónur á manninn og fríar ferðir og uppihald. Reyndar var einn hængur á, því hjálparsveit skáta vildi að við værum fjórir í hljómsveitinni, en við vorum bara þrír. Þetta var samt frábært tækifæri, að spila fyrir sjö eða átta þúsund manns ásamt einni af bestu hljómsveitum landsins þannig að við fengum Nonna úr Pops til liðs við okkur,“ segir Óttar sem gerði sér miklar vonir um hátíðina. „Ég ætlaði að vera í flottum fötum og gera eitthvað brjálað upp á sviði, eins og brjóta gítar. Síðan ætlaði ég að fá mér rosa flott sólgleraugu og næla mér í dömu. Veðrið var gott þegar við komum í Þórsmörk og vel fór á með okkur strákunum í Toxic,“ segir Óttar en útihátíðin var ekki bara skemmtun því þar hitti Óttar gamlan óvin sem ætlaði þá í hann eftir ballið sökum þess að Óttar hafði eitt sinn stolið af honum dömu. En Óttar læddist óséður af sviðinu og var óhultur í bili. „Næsta daga hafði ég hægt um mig og lifði í sífellum ótta við fjandmann minn. En um kvöldið átti Sonet að enda ballið og þá var ég allur farinn að hressast. Reyndar mætti Nonni í Pops ekki þannig að við vorum bara þrír sem var miklu betra. Ég skimaði eftir dömunni á ballinu og fann hina einu réttu. Ég læddist af sviðinu eftir ballið og elti hana inní skóg. Þegar ég loks sá hana sá ég líka að það var ann- ar sem var á undan mér til hennar og það var fjandmaður minn,“ segir Ótt- ar en útihátíðin 1967 lifir í fersku minni enn þann dag í dag. ■ Óskiljanlegur, svartur blettur Útihátíðin Uxi ‘95 var haldin árið 1995. Aðsóknin á tón- leikana var minni en búist var við og var neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun um það kennt. Mikið var talað um að hátíð þessi yrði nefnd dóphátíð þar sem fíkniefna- neytendur myndu sökkva lengra niður í neyslu sína og þeir sem væru ekki fíkniefnaneytendur myndu verða það eftir hátíðina. Þegar allt kom til alls fór hátíðin vel fram að mati lögreglu og skipuleggjanda hátíðarinnar. Hátíðin fékk mikla athygli erlendis og komu hingað níu blaðamenn og sex sjónvarpsmenn, til dæmis frá tónlistarstöðinni MTV. Um fimm þúsund manns sóttu hátíðina og var veður með eindæmum gott. Öll skipu- lagning var til fyrirmyndar og gestir höguðu sér skikkanlega. Hátíðin hefur aldrei verið haldin aftur og því miður hefur hún haft svartan blett á sér síðan hún var og hét. ■ Einar Bárðar skekur samfélagið Þúsundir unglinga flykktust á hátíð Einars Bárðarson- ar í Eldborg á Snæfellsnesi árið 2001 og var sú hátíð helsti keppinautur þjóðhátíðar í Eyjum það árið. Mest- ur viðbúnaður lögreglu var við Eldborg og Eyjar en óhug vakti hve margar nauðganir voru kærðar á hátíð- inni einni saman, eða ellefu talsins. Um átta þúsund manns lögðu leið sína á Kaldármela og því miður skyggðu nauðganir og eiturlyfjanotkun á skemmtana- haldið sem var prýðilega skipulagt af mótshöldurum. Einn maður var handtekinn með nokkurt magn af smjörsýru á svæðinu og grunur lék á að eitthvað af smjörsýru hefði verið notað til ódæðisverka. Hljóm- sveitirnar í Eldborg vöktu samt lukku áhorfenda og mikið þótti koma til endurkomu hinnar margfrægu hljómsveitar Jet Black Joe. Almennt virtist fólk skemmta sér vel í Eldborg og því var hátíðin ekki alslæm þó hún hafi aldrei verið haldin aftur. ■ lilja@frettabladid.is ELDBORGARHÁTÍÐIN 2001 Hefur mjög slæmt orð á sér og varla hefur heimildarmynd- in um hátíðina hjálpað til með orðsporið. UXI ‘95 Fór mun betur fram en svartsýnir menn spáðu fyrir um. Fjandmaður stal dömunni ÓTTAR FELIX HAUKS- SON Sonet fór í Þórs- mörk 1967 þar sem hann tapaði stúlku til fjandmanns síns.    25

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.