Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 16
Þingmaðurinn og kvenskörung- urinn Kolbrún Halldórsdóttir á í nógu að snúast í sumar og er á kafi í vinnu á sjálfan afmælis- daginn, líkt og oft áður. Hún á eitt ár eftir í fimmtugt og segir aldurinn leggjast vel í sig. „Mér finnst svo rólegt og rómantískt að vera í bænum um verslunar- mannahelgina, ég á von á því að fara eitthvað út að borða og jafn- vel fá mér eðalvín með. Annars ætla ég að láta veðrið og stemn- inguna ráða ferðinni.“ Vegna anna segist Kolbrún ekki geta farið langt. „Ég ákvað að eyða sumrinu í að leikstýra sumaróperunni og er nú að kom- ast í frumsýningargírinn. Þetta er ofboðslega skemmtileg vinna og mikil vítamínsprauta fyrir mig sem hef verið í löngu hléi frá leikhúsi. Leikarar völdu ádeiluverkið Happy End eftir Elisabeth Hauptmann, einskonar hasarsögu þar sem skotið er í all- ar áttir. Verkið er gróteskt og fjallar um glæpagengi og her- deild hjálpræðishersins í Chicago en klíkurnar leiða sam- an hesta sína og bófarnir ganga til liðs við herinn. Það er spenn- andi að fylgjast með þessu kraft- mikla fólki takast á við verkið og sýna hvað í þeim býr eftir nám í tónlist og leik.“ Frumsýning Happy End er laugardaginn 7. ágúst og því þarf margt að smella á næstu dögum. Kolbrúnu þykir leiðinlegt að missa af sumarferð Vinstri græn- na sem skerst á við frumsýning- ardaginn enda hefur hún ekkert komist út á land í sumar. „Ferðinni er heitið að Langasjó og þaðan á að ganga á Sveinstind, ég hef aldrei komið þangað en verð að finna mér tíma til að vinna það upp. Ég er að skoða möguleikana á að ferðast aðeins í ágúst. Reyndar skrapp ég í viku tívolíferð til Kaupmannahafnar með manninum mínum og dóttur, kíktum á Bakken og í dýragarð- inn. Mér finnst það ætti að vera hálfgerð skylda íslenskra barna að kynnast gömlu höfuðborginni okkar, svona á þeim aldri sem þau eru að átta sig á tengslunum milli landanna.“ ■ 16 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR FRIEDMAN Bandaríski hagfræðingurinn Milton Friedman fæddist á þessum degi árið 1912. „Ég er hlynntur lögleiðingu fíkniefna. Samkvæmt gildum mínum þá hefur fólk rétt á að drepa sig ef það kærir sig um það. Mesti skaðinn sem hlýst af eiturlyfjum stafar af því að þau eru bönnuð.“ Bandaríski hagfræðingurinn Milton Friedman er einn helsti kenningasmiður frjálshyggjunnar. MERKISATBURÐIR 31. JÚLÍ 1498 Kristofer Kólumbus kemur að landi á eyjunni Trinidad á Karíbahafi í þriðju ferð sinni yfir Atlantshafið. 1703 Daniel Defoe höfundur Róbinson Krúsó settur í gapastokkinn fyrir meið- yrði. 1919 Stjórnarskrá þýska Weimar-lýð- veldisins lögð fram. 1928 Ljón MGM-kvikmyndasam- steypunnar Leo urrar í fyrsta sinn á und- an fyrstu töluðu mynd fyrirtækisins „Hvítir skuggar í Suðurhöfum“. 1941 Hermann Goering gefur Reynhard Heydrich fyrirmæli um að undirbúa hel- förina. 1991 Forseti Bandaríkjanna George Bush eldri og forseti Rússlands skrifa undir sáttmála um fækkun kjarnavopna. 1991 Bandaríska öldungaráðið greiðir atkvæði um hvort konur fái að fljúga orrustuþotum. 1998 Nicolas Cage fær stjörnu með nafni sínu á gangstétt frægðarinnar í Los Angeles. KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Þingkonan sóar ekki tíma sínum í sumar, hún leikstýrir óperunni Happy End sem frumsýnd verður 7. ágúst. AFMÆLI: KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR ER ÖNNUM KAFIN Í VINNU Rómantískt að vera í bænum „Vikan sem leið var vægast sagt ömurleg! Ég datt úr olnbogalið á laugardagskvöld þegar ég var að bera risadrumb og hef verið heima í rúminu mínu síðan. Ég var settur í gifs frá fingrum og upp að öxl og get ekki einu sinni spilað Play- Station. Vinur minn lánaði mér samt leik í gær sem hægt er að spila með einni, hann ætti að duga í nokkra daga. Ég hef vaknað klukkan tíu og horft á japanskar bardagamyndir til sjö en það hefur verið hugsað vel um mig. Einn vin- ur minn mætti með kassa af bjór, kærastan mín kemur heim í hádeg- inu og gefur mér að borða. Ég er ekkert vanur að vera svona ein- hentur, það þarf að skera ofan í mig og allt! Vikan hefði átt að fara í að undirbúa hjólabrettamót sem Brim er að skipuleggja á Ingólfs- torgi þann 14. ágúst. Planið var svo að fara á Flúðir um verslunar- mannahelgina þar sem við fréttum af einhverri furðubátakeppni en það dettur að sjálfsögðu upp fyrir. Nú er sumar og maður á að vera í útilegum og að skemmta sér en ég verð bundinn í gifs næstu vikurnar fyrir það eitt að detta úr lið...“ ■ VIKAN SEM VAR: REYNAR DAVÍÐ DATT ÚR OLNBOGALIÐ REYNAR DAVÍÐ OTTÓSSON Hefði viljað nota vikuna í að skipuleggja hjólabrettamót en lá gifsaður í rúminu. Óvanur að vera einhentur AFMÆLI Helgi Thorvaldsson verður 75 ára mánu- daginn 2. ágúst. Af því tilefni mun hann bjóða vinum og vandamönn- um upp á kaffi, pönnu- kökur og kleinur milli klukkan 3 og 6 á af- mælisdaginn að Set- bergi við Stjörnusteina 22 á Stokkseyri. ANDLÁT Ágúst Guðjónsson múrari, Hjallaseli 33, Reykjavík, lést miðvikudagin 28. júlí. Erla Sóley Steinsdóttir, Hlíðarvegi 38, Njarðvík, lést fimmtudaginn 15. júlí. Út- för hefur farið fram í kyrrþey. Kristinn Vilhelmsson hljómslistamaður, Sikavej 20, Skibby, Danmörku, lést þriðjudaginn 27. júlí. Útför hans fer fram ytra. Sigurður Guðmundsson frá Otradal, Hrafnhólum 6, Reykjavík, lést miðviku- daginn 28. júlí. Sigríður Ellertsdóttir, dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, áður Engihjalla 1, Kópa- vogi, lést miðvikudaginn 28. júlí. Sigríður Matthíasdóttir, Hraunhóli, Brunasandi, lést laugardaginn 17. júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ágúst Guðjónsson múrari, Hjallaseli 33, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss miðvikudaginn 28. júlí sl. Útförin verður frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 5. ágúst kl. 15.00 Svanhvít Gissurardóttir, Anna K. Ágústsdóttir, Gunnar V. Andrésson, Gróa G. Ágústsdóttir, Guðmundur Hilmarsson, Gissur Þór Ágústsson, Sigríður Alla Alfreðsdóttir, Auður Ágústa Ágústsdóttir, Finnbogi Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn ÞETTA GERÐIST STOFNANDI JESÚÍTAREGLUNNAR DEYR 31. júlí 1556 Ignatíus Loyola stofnandi jesúítareglu rómversk-kaþólsku kirkjunnar dó þennan dag árið 1556. Jesúítareglan spilaði stórt hlutverk í gagnsiðbreytingunni sem hafin var af kaþólsku kirkj- unni til að stemma stigu við út- breiðslu hugmynda mótmæl- enda í Evrópu á 16. öld. Þegar Loyola dó voru starf- andi um þúsund jesúítaprestar í hreyfingunni. Hann var gerður að dýrlingi innan kaþólsku kirkjunnar árið 1622. ■ Fékk Biblíuna til aflestrar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.