Fréttablaðið - 31.07.2004, Qupperneq 22
Ef þú vilt kaupa hagkvæman bíl þá er ekki óvitlaust
að skoða Toyotu Corollu. Hann var valinn hagkvæmasti
bíllinn í könnun sem Money Magazine, tímarit CNN, gerði
á dögunum.
Varahlutir sem
þú getur
treyst á !
sími 577 1313 • kistufell@centrum.is
✔ Pakkningarsett
✔ Ventlar
✔ Vatnsdælur
✔ Tímareimar
✔ Viftureimar
✔ Knastásar
✔ Olíudælur
✔ Legur
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
TANGARHÖFÐI 13
Vélaviðgerðir
Vélavarahlutir
- P Ú S T Þ J Ó N U S TA -
SÓLTÚN 3 - SÍMI 562 1075
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Bílaframleiðandinn General
Motors hefur gefið út þá yfirlýs-
ingu á nýr og smærri Hummer-
jeppi sé væntanlegur á götuna.
Nýi jeppinn mun henta fleirum
en risastóru, herjepparnir og
heitir H3.
Vélin í H3 mun vera 3,5 lítra
og fimm sýlindra. Kaupendur
geta valið um sjálfskiptingu eða
gírskiptingu í H3 og munu allir
bílar vera með stöðugleikabúnað
þannig að þeir fipast ekki í beygj-
um. Fleiri aukahlutir munu prýða
þennan almúgabíl og General
Motors hyggur á að frumsýna
hann á bílasýningum við upphaf
fjórða ársfjórðungs. ■
Hummer-jepparnir eru ansi vígalegir en nú mun vera á leiðinni smærri útgáfa af
þessari glæsikerru.
Nýr Hummer á leiðinni:
Minni og meðfærilegri
Niðurstöður úr árlegri könnun
könnunarfyrirtækisins J.D. Power
og þýska bílatímaritsins MOT sýn
að eigendur Toyota eru ánægðast-
ir allra bílaeigenda í Þýskalandi.
Þetta er þriðja árið í röð sem
þýskir bílaeigendur eru ánægðast-
ir með Toyota og hefur bílafram-
leiðandinn þó nokkra yfirburði
fram yfir þá bíla sem næstir
koma. Toyota Corolla fékk flest
stig eða 859 og í öðru sæti var
Toyota Avensis með 847 stig.
24.483 bílaeigendur tóku þátt í
könnuninni með því að leggja mat
á frammistöðu bílsins og þjón-
ustuaðila eftir tveggja ára
reynslu. Alls voru 77 þættir teknir
til skoðunar í könnuninni, svo sem
þægindi, öryggi og hönnun. Að
þessu sinni voru 119 gerðir af 28
bílategundum skoðaðar í könnun-
inni.
Nánari upplýsingar um könn-
unina er hægt að finna á heima-
síðu J.D. Power, jdpower.com. ■
Reynir Jónsson, eigandi Fjalla-
sports ehf. á Íslandi, hefur rekið
útibú frá fyrirtækinu í Noregi
síðan árið 2000. „Það er rétt, við
erum að breyta jeppum bæði
fyrir Íslendinga og Norðmenn.
Við erum búnir að vera duglegir
að kynna þetta fyrir Norðmönn-
unum en hér heima höfum við
breytt mörgum svona jeppum og
hefur útkoman verið góð. Núna
er svo komið að fyrsta Hyundai
Terrasan jeppanum á að fara að
breyta þarna úti,“ segir hann en
umboðsaðilar þar ytra fréttu í
gegnum þá íslensku hversu
óvenju vel þessi jeppi liggur
gagnvart miklum breytingum.
Reynir er búinn að hafa jeppa-
breytingar að atvinnu í þrettán ár
en fyrirtæki hans, Fjallasport
ehf., er sex ára gamalt og er fyrir-
tækið án efa leiðandi í jeppabreyt-
ingum á Íslandi. En er landinn
ekki löngu kominn fram úr Amer-
íkönum í þessum bransa?
„Það er enginn vafi á því að
Íslendingar eru komnir í fremstu
röð í heiminum í dag í jeppabreyt-
ingum. Það sýnir sig best á því að
Ameríkanar hafa heilmikið verið
að leita í þekkingu okkar hér
heima á þessu sviði. Munurinn á
okkur og þeim eru að þeir eru
meira að breyta jeppum til sýnis
en við gerum það til að nota jepp-
ana og auka öryggi þeirra,“ segir
Reynir.
Hann segir það útbreiddan
misskilning að aðeins jeppakallar
sem fara á fjöll láti breyta jeppun-
um sínum. „Í dag er það langmest
fjölskyldufólk sem lætur breyta
jeppum sínum til að auka þægindi
hans og öryggi og einnig til að
ferðast um bæði sumar og vetur á
hálendinu. Það eru líka margir
sem gera þetta til að gera jeppann
fallegri, svo það er allur gangur á
þessu,“ segir hann.
halldora@frettabladid.is
„Íslendingar eru án efa komnir í fremstu röð í heiminum í dag í jeppabreytingum. Það sýnir sig
best á því að Ameríkanar eru heilmikið farnir að leita í þekkingu okkar á þessu sviði,“ segir Reynir.
Ný bílakönnun:
Eigendur Toyota ánægðastir
Reynir Jónsson:
Breytir jeppum fyrir Norðmenn
Hraðakstur í Svíþjóð:
Öryggismynda-
vélum fjölgað
Til stendur að fjölga öryggismyndavél-
um á stærstu vegum í Svíþjóð um
rúmlega helming eða úr 330 mynda-
vélum í 700. Útreikningar sýna að um
fjögur hundruð þúsund manns munu
nást á filmu á ári eftir þessa fjölgun á
myndavélum. Á
síðasta ári var tek-
in mynd af aðeins
tíu þúsund manns.
Hver myndavél
getur tekið allt að
250 myndum á
dag og munu allar
myndir skrást sjálf-
krafa í höfuðstöðv-
arnar sem staðsettar verða í borginni
Kiruna. Stjórnmálafylkingar í Svíþjóð
hafa deilt um kostnað verkefnisins
sem mun vera um fjórir milljarðar ís-
lenskra króna. Lögreglan hefur hins
vegar bent á að með þessu nýja kerfi
verði vinna þeirra á helstu vegum Sví-
Svíþjóðar markvissari og öruggari. ■