Fréttablaðið - 31.07.2004, Page 35
Það verður allt iðandi af lífi í Ár-
bæjarsafni um helgina. Dagskrá-
in er fjölbreytt fyrir þá sem kjósa
að njóta þess sem Reykjavík hef-
ur upp á að bjóða þessa mestu
ferðahelgi ársins.
Leikjadagskrá fyrir börnin
hefur verið skipulögð í dag en
þeim gefst einnig kostur á að setj-
ast á hestbak klukkan 14. Græn-
metismarkaður verður einnig í
gangi, handsaumuð dúkkuföt til
sölu og útsaumaðir vettlingar.
Sunnudagurinn í safninu ber yfir-
skriftina Pósturinn kemur en
póstlest mun fara um svæðið og
gefst gestum kostur á að fylgjast
með póstinum færa íbúum gömlu
húsanna bréf. Lummur verða síð-
an á boðstólum fyrir svanga en
húsfreyjan í Árbænum verður
iðin við baksturinn. Frídagur
verslunarmanna, mánudagurinn,
verður síðan tileinkaður leikjum
og leikföngum fyrri tíma með
skemmtilegri barna- og fjöl-
skyldudagskrá. Farið verður í rat-
leik og gamla hópleiki, leikið með
leggi og skeljar, stultur og húla-
hringi, sippubönd og ótal margt
fleira.
LAUGARDAGUR 31. júlí 2004 27
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar leikur fyrir dansi í Klúbbn-
um við Gullinbrú í kvöld. Húsið
opnar klukkan níu en bandið byrj-
ar að spila upp úr ellefu. Að sögn
Geirmundar verður vonskuveður
á Suðurlandinu um helgina og
engin ástæða til að leita langt
yfir skammt að góðri skemmt-
un. „Við lofum góðu stuði, tök-
um Geirmundarsveifluna
landsþekktu og önnur lög í bland
ef fólk biður um. Hljómsveitin
er þekkt fyrir að eyða ekki
tímanum í pásur og ég
ráðlegg fólki að koma
snemma svo það nái
sér í borð. Við höfð-
um til stórs aldurshóps og þetta
verður dúndur dansiball!“
Á sunnudagskvöldið heldur
Geirmundarsveitin í Skagafjörð-
inn og spilar á árlegu balli í Ár-
garði. ■
Geirmundur við
Gullinbrú
GEIRMUNDUR
VALTÝSSON Hljóm-
sveit hans heldur
stórdansleik í Klúbbnum
við Gullinbrú í kvöld.
ÁRBÆJARSAFN Fjölbreytt dagskrá verður
alla helgina.
Leggir, skeljar og
húlahringir Á þriðjudögum
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is