Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.07.2004, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 31.07.2004, Qupperneq 37
NATALIE WOOD Ný ævisaga hennar þykir framúrskarandi. LAUGARDAGUR 26. júní 2004 37.810 kr. Netver› á mann frá Netver› á mann 49.730 kr. r. Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Amrey Diagonal 11. nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. 43.150 kr. Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is Plús Netver› á mann frá 57.855 kr. Netver› á mann Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Hótel Lieget í október í 2ja manna herbergi með morgunverði, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur á Hótel Albani 18. nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Florida Norte 21. október í 2ja manna herbergi með morgunverði, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. 49.930kr.r. Netver› á mann Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu, íslensk fararstjórn og allir flugvallar- skattar. M.v. að 2 fullorðnir ferðist saman. Bor gar D ublin Róm B úda pest Madr id Ba rcel ona ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON Listaverk í seilingarfjarlægð „Þar sem ég hef verið upptekinn við bókaskrif hef ég því miður ekki lagst upp í með mörgum höfundum síðustu mán- uði,“ segir Þorgrímur Þráinsson rithöf- undur sem er lesandi vikunnar. „Hef lok- ið 10% af Eleven Minutes eftir Paulo Coelho, lofar virkilega góðu og verður spennandi að sjá hverju karlmenn eru tilbúnir að fórna fyrir 11 mínútur með „glaðri“ konu. Er líka með listaverk í seil- ingarfjarlægð sem verður hvorki lesið né skoðað til fullnustu: Íslendingar eftir Sig- urgeir Sigurjónsson og Unni Jökulsdótt- ur. Snilldarverk. Las sérlega áhugaverða bók snemmsumars: Letting the Body Lead eftir Jenn Cromwell, unga banda- ríska konu sem leitar að sjálfri sér á Ís- landi og finnur líka margt annað. Er hrif- inn af Stefáni Mána og las Hótel Kali- fornía fyrir skemmstu. Góð saga. Bókin kom út 2001 og fékk flotta dóma, talin betri en Ísrael – saga af manni sem kom ári síðar, en ég er ósammála. Stefán Máni er stöðugt að klifra. Gríp stundum í Oscar Wilde stories og las nýlega smá- söguna The Selfish Giant. Annars les ég reglulega textana á geisladiski George Michael, Ladies and Gentlemen, og syng hástöfum þegar ég er einn á ferð. Meistaraverk, dulin skila- boð til fjöldans sem fæstir átta sig á. Svo má ekki gleyma barnabókunum sem ég les á hverju kvöldi fyrir börnin, Dreka- saga eftir Iðunni Steinsdóttur er frábær.“ [ LESANDI VIKUNNAR ] Þrjár ævisögur hafa komið út um Bram Stoker, höfund sögunnar um Dracula. Þekktust er bók Daniels Farson frá árinu 1975, The Man Who Wrote Dracula en þar var því haldið fram að Stoker hefði látist úr sífilis og verið í sérlega óham- ingjusömu hjónabandi með kyn- kaldri konu. Nú bætist fjórða ævi- sagan í hópinn, From the Shadow of Dracula: A Life of Bram Stoker, eftir Paul Murray en þar er gefið í skyn að Stoker hafi verið samkyn- hneigður. Stoker var Íri sem vann í tólf ár sem ritari hjá hinu opinbera. Hann lét af því starfi til að gerast um- boðsmaður og einkaritari leikarans fræga, Henry Irving. Það var í starfi sínu hjá Irving sem hann hóf að rita Dracula og einhverjir fræð- ingar hafa haldið því fram að Irving sé fyrirmyndin að Dracula, en því hafnar Murray í þessari nýju bók. Enn önnur kenning er á þann veg að hið síða hvíta hár Dracula, sem lýst er í skáldsögunni, hafi Stoker fengið frá hinu silfur- hærða skáldi Walt Whitman sem Stoker þekkti og dáði mjög. Murray heldur því fram að Stoker hafi skapað útlit Dracula eftir kenning- um ítalsks mannfræðings og þess vegna gefið vampírunni gyðinglegt nef sem átti að benda til glæpa- hneigðar. Murray telur einnig að ýmsir merkir 19. aldar menn hafi sett mark sitt á sköpun Dracula, þar á meðal Alfred Tennyson, vegna þess hvernig tennur hans voru lagaðar, Gladstone, vegna þess að hann virtist ódauðlegur, og síðast en ekki síst skáldsagnaper- sónan og utangarðsmaðurinn Heathcliff í Fýkur yfir hæðir. Stoker var sex ár að skrifa Dracula og bókin var gefin út árið 1897. Hann skrifaði aldrei neitt sem komst í hálfkvisti við verkið og lést árið 1912. Ný bók um höfund Dracula BRAM STOKER Frægð hans byggir á einu verki, sögunni um Dracula, og nú er komin á markað fjórða ævisaga rithöfundarins. Ný ævisaga leikkonunnar Natalie Wood hefur fengið einkar góða dóma gagnrýnenda og þeir hrifn- ingarfyllstu segja hana frábæra. Wood lést 43 ára og enn leikur vafi á því hvort dauði hennar var slys eða hvort hún fyrirfór sér. Höfundur þessarar nýju ævisögu er Gavin Lambert en hann skrif- aði meðal annars skáldsöguna Inside Daisy Clover og Wood fór með aðalhlutverkið þegar bókin var kvikmynduð. Auk þess að vera rithöfundur hefur Lambert starfað sem kvikmyndagagnrýn- andi og hann var um langt skeið aðstoðarmaður og um tíma ást- maður, leikstjórans Nicholas Ray sem var einn af elskhugum Wood. Við ritun bókarinnar ræddi Lambert við vini og ættingja leikkonunnar og fékk aðgang að bréfum og dagbókum. Líf Natalie Wood var ekki dans á rósum. Móðir hennar var hálfgert skrím- sli sem ýtti kornungri dóttur sinni út í kvikmyndaleik og lét hana sjá fyrir fjölskyldunni. Wood þjáðist alla tíð af óöryggi og þegar hún komst á fullorðinsár reyndi hún tvisvar að fyrirfara sér. Ástarlíf hennar var skraut- legt og það vafðist ekkert fyrir henni að eiga í tveimur ástaræv- intýrum á sama tíma. Wood giftist leikaranum Robert Wagner þegar hún var kornung. Þau skildu en giftust aftur tíu árum seinna og eignuð- ust saman barn. Wagner hefur fram að þessu ekki viljað ræða opinberlega um hjónaband sitt og lát eiginkonu sinnar en við ritun bókarinnar ræddi hann opinskátt við Lambert og sagði við hann: „Þegar þú hefur sagt sannleikann um Nataliu eins og hann horfir við þér þá mun ég öðlast frið.“ Einn lykilmaður neitaði þó að tala við Lambert en það er leikarinn Christopher Walken. Walken, sem kann að hafa verið ástmaður leikkonunnar, var með henni og eiginmanni hennar á skútu þeirra þá örlagaríku nótt sem Wood drukknaði eða drekkti sér. Síð- ustu mánuðina sem hún lifði tók Wood reglulega inn svefntöflur og verkjatöflur og drakk óhóf- lega. Hún hafði neytt nokkurs magns áfengis skömmu áður en hún lést. Lambert dregur fram staðreyndir um lát hennar en sker ekki úr um hvort leikkonan féll fyrir borð af slysni eða henti sér í sjóinn. Forvitnileg ævisaga Heather skrifar sjálfshjálparbók Eiginkona Paul McCartney, Heather, situr nú við skriftir. Hún er að skrifa sjálfshjálparbók sem Penguin mun gefa út á næsta ári. Sagt er að Heather hafi aðstoðar- mann við skriftirnar. Bókin mun fjalla um mataræði, lífsstíl, vítamín og jóga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.