Fréttablaðið - 31.07.2004, Síða 39
LAUGARDAGUR 31. júlí 2004
FÓTBOLTI „Það er bara mikil til-
hlökkun á mínum bæ og virkilega
gaman að snúa heim og keppa við
Skagamenn. Lið undir stjórn
Ólafs Þórðarsonar hafa löngum
verið þekkt fyrir mikla baráttu og
þannig býst ég við að þetta verði
hörkuleikur,“ sagði Pétur Mart-
einsson, leikmaður íslenska lands-
liðsins og Hammarby í Svíþjóð, í
samtali við Fréttablaðið í gær.
Hammarby dróst gegn liði ÍA í
annarri umferð forkeppni Evr-
ópukeppni félagsliða, en Skaga-
menn slógu sem kunnugt er eist-
neska liðið TVMK Tallinn út úr
keppni fyrr í vikunni. FH drógust
gegn skoska liðinu Dunfermline
en það lið hafnaði í 4. sæti skosku
úrvalsdeildarinnar á síðustu leik-
tíð og komst nýlega í heimsfrétt-
irnar þegar Diego Armando
Maradona yngri var við það að
ganga til liðsins.
Þó að andstæðingarnir séu á
pappírunum töluvert sterkari en
íslensku liðin verður drátturinn
að teljast nokkuð góður, og þá sér-
staklega fyrir ÍA, sem slapp til að
mynda við að mæta firnasterku
liði Bröndby frá Danmörku.
Ferðalögin eru eins ódýr og kost-
ur er og möguleikinn á að sigra er
svo sannarlega fyrir hendi, en hel-
sti lösturinn er að bæði ÍA og FH
leika síðari leikinn á útivelli.
„Ég er bara nokkuð sáttur við
að mæta Dunfermline en við
fyrstu sýn þá eiga þeir að vera
með talsvert sterkara lið en við.
En við förum í einvígið til að
vinna og ætlum að reyna að hafa
gaman af,“ segir Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari FH. Lið hans átti í
litlum vandræðum með að leggja
hið skelfilega velska lið Hereford-
west.
En sér Ólafur þó ágætis kost í
því að hafa þegar mætt liði frá
Bretlandseyjum í keppninni?
„Dunfermline spilar ábyggilega
svipaðan bolta nema hvað þeir eru
miklu betra fótboltalið. Ég veit lít-
ið sem ekkert um liðið en við mun-
um ábyggilega senda mann út til
að sjá þá spila áður en við mætum
þeim,“ segir Ólafur.
Um möguleika liðs síns gegn
Skagamönnum segir Pétur að þeir
séu sýnd veiði en ekki gefin.
„En ef við spilum samkvæmt
eðlilegri getu þá tel ég að við
vinnum þetta einvígi. Við eigum
að vera með betra lið en það getur
samt ávallt brugðið til beggja
vona í Evrópukeppni,“ segir hann
og bætir við að leikmenn ÍA geti
ekki búist við neinni greiðastarf-
semi af sinni hálfu. „Rétt eins og
liðið í heild sinni fer ég í alla leiki
til að vinna. Ég er auðvitað liðs-
maður Hammarby og engu skiptir
að ég kem frá Íslandi. Þetta er
mín vinna og ég mun bara spila
minn venjulega leik og láta finna
fyrir mér,“ segir Pétur, sem hefur
verið fastamaður í vörn Hammar-
by í sænsku úrvalsdeildinni í sum-
ar og gengið vel.
„Mér líður mjög vel hérna,
klúbburinn er töluvert sterkari en
þegar ég var hér síðast og það er
mun fagmannlegra að öllum mál-
um staðið. Metnaðurinn er mikill
að komast lengra í Evrópukeppn-
inni og ég er bjartsýnn á að það
takist.“ ■
Íslendingaslagur í UEFA-
bikarnum á Akranesi
Skagamenn drógust gegn Pétri Marteinssyni og félögum í Hammarby í
2. umferð forkeppninnar. FH-ingar mæta skoska liðinu Dunfermline.
FYRIRLIÐINN Á FULLRI FERÐ Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, sést hér á fullri ferð með boltann í Evrópuleiknum gegn velska
liðinu Haverfordwest á fimmtudaginn. FH-ingar mæta skoska liðinu Dunfermline í næstu umferð en Skagamenn leika gegn sænska
liðinu Hammarby sem er með landsliðsmanninn Pétur Marteinsson innanborðs.