Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 HÅBOL kassar 39x26x17 sm 2 stk. 250,- GOSA KRAMA koddi 50x60 sm 690,- Allt undir sama þaki FNISS tímaritahirslur 3 stk 490,- LEDING ljósabraut 1.990,- POLARVIDE teppi 130x170sm 890,- JAGGA skrif/segultafla 56x82 sm 1.990,- ESPRESSIVO vinnulampi 890,- KONTRA cappuccino bolli+undirskál 350,- IK E 25 43 7 07 .2 00 4 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 4 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is KASSETT kassi 37x29x17sm 2stk 990,- VASEN vasi 20 cl RUSCH klukka 24,5 sm 290,- SVENNING skrifborðsstóll 2.950,- TOVE Sængurvarasett 150X210/50X60sm 790,- 190,- MÅLA Litakassi 690,- NYTTJA myndarammar 10x15sm - 2 stk 275,- - Ís um helgina! ALKOV Bastkarfa 60sm 1.490,- 50 kr. Ójá Loksins kom „ójáið“ fráÓlafi Ragnari, eftir að djöfulgangurinn varð svo mikill í köngurlónni að hún áttaði sig ekki á spunanum, hengdi sig í eigin þræði, en flugan sem vefurinn var ætl- aður flaug burt suðandi. ÞANNIG er húsflugan og herförin gegn henni. Hún er alltaf eftir, þótt rotuð hafi verið með borðtusku. Og eng- in leið að sjá hvort í eldhús- inu er sú ódrepandi, aftur- gengin fluga eða önnur ná- kvæmlega eins. Sama er hjá þjóð með stjórnmálamenn sem eru engir stjórnmála- menn, en vitleysa samfélags- ins leyfir þeim að busla enda- laust í embættunum. Ísland er paradís fyrir þannig flugur. Þær eru perlur í hinu pólitíska landslagi og furðu gegnir að engum detti í hug að gefa út myndabókina Flug- ur í íslenskum stjórnmálum. „EKKI var við öðru að bú- ast,“ sagði Halldór við „Ójái“ þess Ólafs sem flaug eitt sinn með „Óneii“ undan Ólajó, en heimkominn nú eftir hring- sól, maðkafluga Möðruvell- inga, í hvítum endurheimtum lit, hættur að suða um sósíal- isma. SÚRHEYSTÍÐ Halldórs Ás- grímssonar er að hefjast, áhugaverðs manns fyrir sálar- fræði stjórnmálanna, þeim hæfileika gæddur að sleppa alltaf mús undan fjalaketti og líklega gert það ævilangt. Við munum sjá Halldór blómgast með bros á vör. Hann á eftir að koma þeim á óvart sem þóttust sjá hann fyrir. Nýr tími hefst þegar hann beitir þeirri yfirvegun sem býr innra með honum í bland við stjórnvisku og ríka tilfinn- ingalega reynslu. HANN hefur þolað ýmislegt, flokkslega séð frá Steingrími Hermannssyni, og annað af hendi þess í ríkisstjórn sem má ekki lengur nefna á nafn. Þetta eru tveir ofríkismenn með ólíkan talanda en svipað- an uppruna og pólitískt sálar- líf. En meginvandi Halldórs verður að stríða við landlæga tugguþörf og sífellda klifun á stóriðju. Það er þjóðareðlið að þrá að komast á jötuna. Fyrst þá dönsku, svo herjötuna, sem verður rifin innan skamms, og núna er það áljatan. ÞANNIG er þörf lands- manna, að vera mátulega ófrjálsir og jarmandi undir al- veg sama hvaða erlendri stjórn. BAKÞANKAR GUÐBERGS BERGSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.