Tíminn - 10.09.1972, Qupperneq 8
TÍMINN
Sunnudagur 10. septembcr 1972
Menn og máUfni
Fyrsti sigurinn
í londhelgisdeilunni
Samningur islcndinga og Belga undirritaður. Við borðið sitja belgiski ambassadorinn, Einar Agústsson,
Andersen, amhassador. Að baki þeim standa aðrir fulltrúar samninga ncfndanna.
utanrikisráðherra
Hans
8
Samkomulagið
við Belga
Merkasti atburður s.l. viku, var
undirritun samkomulagsins við
Belga um takmarkaðar veiði-
heimildir innan hinnar nýju 50
sjómilna fiskveiðilögsögu is-
lands.
ljetta samkomulag er til stór-
ávinnings I'yrir okkur íslendinga,
þvi að i þvi felst raunverulega full
viðurkenning belgisku rikis-
stjórnarinnar á 50 milna fisk-
veiðilögsögu islendinga i verki,
þótt i samkomulaginu só þvi lýst
ylir, að hvor rikisstjórnin um sig I
hafi sinar skoðanir á þvi, hvernig
fiskveiðilandhelgi beri að haga.
ÍJetta samkomulag er þvi hval-
reki lyrir okkur. Og só höfð i huga
aðstaða okkar i baráltunni gegn
þeirri áróðursherferð, sem
brezka rikisstjórnin og brezkir
togaraeigendur nú heyja gegn
okkur, má likja þessum samningi
við Belga, við það að hafa lengið
slóra vinninginn i happdrættinu.
Diplomatiskur sigur
Með þessu samkomulagi hefur
islenzka rikisstjórnin unnið stór-
kostlegan diplómatiskan sigur.
Belgia er eitt aðildarrikja Efna-
hagsbandalagsins. Bað gerir
þetta samkomulag óháð alstöðu
annarra Efnahagsbandalags-
rikja. I>að telur þetta samkomu-
lag ,,lullna“gjandi lausn’ fyrir sig
með tilvisun til þess l'yrirvara,
sem Efnahagsbandalagið setti, af
sinni hállu, i viðskiptasamning
þann, er íslendingar hal'a undir-
rilað við bandalagið og veitir ís-
lendingum veruleg tollfriðindi
með sjávarafurðir innan banda-
lagsins. Eyrirvari Efnahags-
bandalagsins var um það, að
bandalagið áskildi sór rólt til að
lála ákva'ði samningsins um toll-
l'riðindi á sjávarvörum ekki koma
til framkvæmda. cl' ..lullna'gjandi
lausn’’ fyndist ekki i fiskveiðideil-
unni. Með þessu samkomulagi við
Belga. vaxa þvi óneitanlega lik-
urnar á þvi að bandalagið muni
ekki beita þessum fyrirvara, þótt
ekki hafi tekiz.t að leysa deiluna
við Breta lyrir 1. jan. 1974, er
samningurinn á að taka gildi.
Mikilvægl er einnig, að með
samkomulaginu verður það ekki
lengur borið á tslcndinga að þeir
sýni ósveigjanleika og tillitsleysi i
þessari deilu. Með þvi eru fa-rðar
siinnur á samkomulagsvilja Is-
lendinga. Ef þeim er sýndur
skilningur og sanngirni, er auð-
vclt að mæta þeim á miðri lcið og
linna þá lausn. sem teljast verður
viðunandi.
Höfuðatriði
samkomulagsins
Höl'uðatriði samkomulagsins
við Belgiu eru þessi:
1. Samið er til 19 mánaða.
2. Vciðiheimildir ná til (isvæða.
Svæðin eru opin aðeins hluta árs-
ins og ná l'lest inn að 14 milum.
2. Veiðihcimildirnar eru
bundnarvið 19 tilgrcindra togara.
4 þeirra eru BIH- 550 tonn. en hinir
eru allir minni en 250 tonn.
Meðalstamð þessara 19 belgisku
skipa er um 200 tonn. Samningur-
inn er einungis bundinn við þessi
skip og verði hætt að gera eitt-
hvert þeirra út af einhverjum
ástæðum. fækkar skipunum um
leið. Ekki er leyfilegt að taka ný
skip inn i samninginn.
4. Hvert þessara skipa verður
að sækja um sérstakt leyfi til
veiða á umsömdum svæðum og
verður veiðileyfi gefið út til 6
mánaða i senn. Gerist eitthvert
skipanna brotlegt við islenzkar
reglur má visa þvi af miðunum
við ísland.
5. Belgisku skipin skulu gæta
sérstakrar varúðar vegna neta is-
lenzkra fiskiskipa.
6. Islenzka landhelgisgæzlan á
fyllsta rétt til að rannsaka veiði-
búnað þeirra skipa. sem veiði-
leyfi hafa fengið og krefjast
þeirra upplýsinga um veiðarnar,
sem hún telur nauðsynlegar.
7. Með samningunum er komið
i veg fyrir humarveiðar Belgiu-
manna hér við land, en þeir hafa
veitt milli 10og 12 þúsund tonn af
humri hér við land á undanförn-
um árum.
Upphaf undanhalds
Breta
l>að sem mestu skiptir þó i
þessu öllu er það, að samkomu-
lagið byggist á leyliheimildum,
sem sa>kja verður um til islenzkra
stjórnvalda og þau veita til tak-
markaðs tima i senn. Ennfremur
er um leið viðurkenndur réttur is-
lenz.krar löggæzlu til að fram-
l'ylgja þeim reglum. sem um leyfi
þessi gilda og þar með viður-
kenna Belgiumenn islenzka lög-
sögu um fiskveiðar innan nýju 50
milna markanna.
Ilér helur þvi heldur betur
verið rofið skarð i þann múr. sem
Brctar og Vestur-l>jóðverjar hala
verið að byggja upp i Vestur-
Evrópu gegn hagsmunum og rétt-
indum Islendinga.
Annar merkisatburður vikunn-
ar var sá, að varðskip klippti á
togvir togara. sem var að veiðum
innan hinnar nýju liigsögu án
nafns og númers og án þjóðfána.
Brezka rikisstjórnin mótmælti
þessum aðgerðum varðskipsins.
Ulanrikisráðherra svaraði með
mótmælum islenzku rikis-
stjórnarinnar gegn óliiglegum
veiðum brezkra skipa i islenzkri
fiskveiðiliigsögu og sérstaklega
mótmælti hann þvi athæfi að skip
sigldu með málað yl'ir nafn og
númer og væru slik skip réttlaus.
Arangur þess varð sá. að skip-
herra brez.ka eftirlitsskipsins
Miranda. gaf út dagskipun til
brezku togaraskipstjóranna um
að mála aítur á nafn og númer.
I>að væri ekki til neins. Varð-
skipin þekktu þá hvort eð væri.
Siðan hal'a flestir eða allir
brezku togararnir tekið upp nal'n
og númer að nýju.
Árangur útfærslunnar
segir þegar til sín
En hvernig ætli þeim aflist
blessuðum? Aflinn virðist hafa
verið ærið rýr. enda athafna
lriður ekki mikill. islenzku varð-
skipin sifellt að trul'la og vindur i
taugum brezkra togaramanna.
Margir virðast þegar hafa leitað
út fyrir og brezkir togarar eru nú
talsvert færri hér á miðunum en
vant er á þessum árstima. Segir
það sina sögu um ástandið og
árangur veiðibrotanna og einnig
að fjölmargir brezkir togaraskip-
stjórar muna enn timabilið frá
1958—1961 og vita. að það er ekki
hægt að stunda togveiðar með
góðum árangri undir herskipa-
vernd. nema heilt herskip fylgi
hverjum togara og það sé ,,skipp-
erinn" á togaranum en ekki
aðmirállinn. sem ferðinni ræður!
l>að er raunar þegar komið i
ljós. að útfærsla fiskveiðilög-
sögunnar hefur borið verulegan
árangur til friðunar. Brezku
togararnir verða að hnappa sig á
tveimur veiðisvæðum og á meðan
eru önnur svæði i friði. Togararn-
ir eiga sifellt yfir höfði sér að
verða teknir og færðir til hafnar
og þeir munu verða l'yrir sifelld-
um truflunum við veiðarnar.
Veiðar þeirra verða þvi ekki
árangursrikar.
l>að má færa að þvi sterkar
likur. að afli brezku togaranna
verði minni við þessar aðstæður,
en hann hefði orðið. ef Bretar
hefðu fallizt á það tilboð islenzku
rikisstjórnarinnar, sem siðast
var gert. Brezk togarautgerð
mun þvi tæplega hagnast á þeirri
hörðu afstöðu. sem komið hefur i
veg i'yrir bráðabirgðasamkomu-
lag.
Tökum það rólega
l>egar brezk togaraútgerð fær
um þetta sönnur aukast vonandi
likurnar á þvi að leysa megi deil-
una með bráðabirgðasamkomu-
lagi. en islenzka rikisstjórnin
helur enn itrekað vilja sinn til
bráðabirgðasamkomulags á
sanngjörnum grundvelli.
islendingar geta þvi haldið
stillingu sinni. limfram allt ber
að forðast allt það sem leitt getur
til slysa og óhappa. Hér ber að
sýna þolinmæði. en um leið elju
við að trul'la veiðiskap brezkra,
svo sem Irekast er unnt. Sú tið
kemur að veiðiþjófur verði tekinn
og látinn svara til saka. f>að gerir
ekkert til þótt það verði ekki al-
veg á næstunni.
I grein. sem Ingvar Hallgrims-
son. forstjóri Hafrannsóknastofn-
unarinnar ritaði nýlega, kemur
þetta m.a. fram:
Þorskur
,.l>að er samdóma álit fiski-
fræðinga i Hlöndum beggja megin
Atlantzhafs. að þorskstofnar
Atlanzhalsins séu fullnýttir eða
ofveiddir og að nauðsyn beri til að
létta á sókninni i þá. ef ekki á illa
að fara. l>etta á ekki hvað sizt við
um islenzka þorskstofninn.
Dánarorsök nytjafiska er fyrst og
fremst veiði. og sóknina i stofninn
má t.d. marka af þvi. hve árleg
dauðslöll i stofninum hafa vaxið.
A árunum milli heimsstyrj-
aldanna dóu um 45% af stofninum
árlega. á striðsárunum lækkuðu
dauðsföllin i 37% árlega. en juk-
ust siðan stöðugt. og er nú svo
komið. að 70% hins kynþroska
hluta stofnsins deyja árlega.
l>etta er hærri dánartala en i öðr-
um þorskstofnum Norður-Atlanz-
hafs. og kann ég ekki dæmi þess.
að nokkur fiskstofn þoli slika sókn
til langframa.
Vegna þessarar auknu sóknar.
sem er nú orðin meiri en viðkoma
stofnsins. fer fiskurinn sifellt
smækkandi. fleiri og fleiri fiska
þarf i tonnið og vinnsla hvers
tonns. verður sifellt dýrari. Árið
1928 var rösklega helmingur afl-
ans fiskur eldri en 10 ára, en árið
1938 var um 35% á þessum aldri.
Á striðsárunum fékk þorskurinn
talsverða hvild og að loknu striði
var hann vænni en áður, og árið
1948 var yfir 60% fisksins i aflan-
um eldri en 10 ára, stór og vænn
fiskur. En nú hallar fljótt á
ógæfuhlið, og árið 1958 er aðeins
um 20% aflans fiskur eldri en 10
ára. og árin 1970 og 1971 finnst
ekki svo gamall fiskur i aflanum,
hann nær ekki 10 ára aldri. Sá
stóri og væni þorskur, sem var
uppistaða aflans árin 1928 og 1948,
er nú ekki lengur til, hann er
veiddur á yngri aldri sem smærri
fiskur.
Ýsa
Ýsustofninn hér við land er i
litlu betra ástandi, en ýsa er mjög
hraðvaxta fiskur, og kemur
greinilega fram hjá henni, hve
mikið vinnst við að veiða stóran
fisk fyrirsmáan. Tveggja ára ýsa
vegur um hálft kiló. fjögurra ára
um 1,7 kiló og fimm ára ýsa vegur
um 2,1 kiló”.
Friðunarráðstafanir
Nú þegar við höfum fært fisk-
veiðilögsöguna út i 50 sjómilur
getum við. án samninga við aðra,
gert nauðsynlegar ráðstafanir til
að friða hrygningar og uppeldis-
stöðvar. l>á fellur ýsustofninn
undir okkar lögsögu og þá mun-
um við koma i veg fyrir að veidd
sé tveggja og þriggja ára ýsa. Þá
geymum við hana i sjónum, lát-
um hana timgast og um leið
margfalda þyngd sina.
Þær friðunaraðgerðir, sem
gerðar verða með nýrri löggjöf,
sem Alþingi mun setja nú i haust,
er það kemur saman að nýju,
hljóta að beinast að þessu mark-
miði.
Furðuleg þrákelkni
En i sambandi við þessar upp-
lýsingar um ástand fiskstofnanna
i Norður-Atlanzhafi er rétt að
rifja hér upp furðuleg ummæli,
sem Prior. fiskimálaráðherra
Breta. lét eftir sér hafa i siðustu
viku.
Prior er m.a. spurður álits á
þeim visindalegu rannsóknum,
sem leitt hafa i ljós. að fiskstofn-
arnir i Norður-Atlanzhafi eru i
stórkostlegri hættu. en þar er
bæði um að ræða skýrslu alþjóð-
legrar sérfræðinganefndar og
skýrslu Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins. Aðild að þessari skýrslu-
gerð eiga m.a. brezkir sérfræð-
ingar. og eru þeir samdóma öðr-
um sérfræðingum um niðurstöð-
urnar. Niðurstöður þessara vis
indarannsókna voru m.a. birtar i
frétt i brezka stórblaðinu The
Guardian s.l. mánudag.
Um niðurstöður þessara fjöl-
þjóðlegu visindarannsókna segir
fiskimálaráðherra Breta:
..Ég las þessa frétt i Guardian,
og þessar upplýsingar eru alger-
lega rangar. Það eru reyndar
sveiflur i þessum efnum, en hið
almenna ástand fiskstofnanna er
talið fremur gott"!!
i annan stað segir hr. Prior:
,,Við höfum alla tið verið reiðu-
búnir til þess að ræða friðunar-
ráðstafanir á vissum svæðum, og
við erum enn reiðubúnir, svo
framarlega sem slikar ráðstafan-
ir gera ekki upp á milli þjóða, —
Breta. Þjóðverja, islendinga eða
annarra. Þetta hefur ekkert að
segja. ef Islendingar halda veið-
um áfram".
Það er rétt að skoða þessar
yfirlýsingar brezka sjávarút-
vegsráðherrans i nokkru sam-
hengi til að gera sér fulla grein
fyrir þvi, hvernig ganga muni að
koma i veg fyrir eyðingu fisk-
stofnanna með fjölþjóðlegu sam-
komulagi þeirra þjóða, sem aðild
eiga að svæðastofnunum þeim,
sem hafa eiga eftirlit og stjórn á
fiskveiðum i Norður-Atlanzhafi.
Til þess að verndunaraðgerðir
komist i framkvæmd, þurfa allar
aðildarþjóðir að svæðastofnunum
að hafa staðfest aðgerðirnar. Það
jafngildir neitunarvaldi hverrar
aðildarþjóðar gegn framkvæmd
verndunaraðgerða.
Er nema von, að
biðlund íslendinga
sé þrotin
Islendingar hafa árum saman
og hvað eftir annað flutt tillögur i
svæðastofnunum um tilteknar
verndaraðgerðir til að koma i veg
l'yrir rányrkju á fiskstofnunum.
Þessi barátta hefur verið til
einskis. Tillögur lslendinga hafa
ekki náð fram að ganga, m.a.
vegna andstöðu brezka fiski-
málaráöuneytisins. Menn ættu
þvi að geta gert sér allvel i hugar-
lund. hvernig takast muni á næst-
unni að gera nauðsynlegar ráð-
staíanir. ráðstafanir. sem enga
bið þola til að bjarga fiskstofnun-
um frá yfirvofandi hættu tortim-
ingar. ef það ætti að vera i hönd-
um brezka fiskimálaráðherrans
og ákveða. hve langt yrði gengið
og^ hann gæti komið i veg fyrir
nauðsynlegar ráðstafanir með af-
stöðu sem jafngildir neitunar-
valdi. Er nokkur i vafa um að hr.
Pior myndi beita þvi neitunar
valdi? Hann neitar að viðurkenna
samdóma álit allra færustu sér-
fræðinga m.a. brezkra, um hið
hættulega ástand fiskstofnanna
og segir það firrur einar og að
engu hafandi. Það er ekki fyrr en
búið er að gjöreyða fiskstofn-
unum. eins og t.d. á St. Georges-
banka. sem Bretar virðast til við-
tals um friðunaraðgerðir. —'TK.