Tíminn - 22.10.1972, Side 1

Tíminn - 22.10.1972, Side 1
/■ V kæli- skápar ■30to& RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 Menningarsögu- legt framlag FRÆGASTA TAFLBORÐ HEIMS — sem Islendingar verða sjálfsagt lengi roggnir af Þegar skáeinvígið hófst, biðu menn þess iofvæni vitt um veröld, hvernig leikar færu á þessu borði. Cr mannhafi Laugardaishallarinnar var það flutt I kyrrð safnhúss við Hringbraut, þar sem það vcröur varðveitt um aldur og ævi, þar sem forvitnir gestir geta ekki að sér gert að renna fingrum yfir plast- hlífina til þess að komast þó I ofurlitla snertingu við það. Tímamynd Gunnar. Nýr safngripur: ÞJ—Húsavik. Grimur Sigurðsson frá Jökulsá hefur samið manntal i Þöngla- bakka- og Flateyjarsóknum frá 1703-1900, og er þar greint frá, hvaða fólk var á hverjum bæ ár hvert á þvi timabili. Verkið, sem er i fjórum stórum bindum, gaf hann safnahúsinu á Húsavik i fyrra. i haust færði hann svo safninu að gjöf myndir, sem hann hefur málað af öilum bæjum þessara sókna, tuttugu og fimm að tölu, eins og þeir voru rétt fyrir siðustu aldamót. Myndirnar gerði hann eftir lýs- ingum gamalla og kunnugra manna af bæjunum og frásögnum þeirra af húsaskipan og bygging- arefni. Þær eru merkilegar heim- ildir um byggðina i Flatey og Fjörðum á liðnum tima, en hún er nú öll komin i eyði. Byggðin i Þönglabakkasókn mun hafa verið fjölmennust i kring um 1860 og ibúar þar þá verið 110-120 manns. I Flatey munu ibúar hafa veriö einna flestir 1947 120 manns, en i Flateyjarhreppi munu hafa veriö nalægt 200 manns, áður en byggð fór að eyðast á Flateyjardal. Grimur Sigurösson fæddist i Flatey, en var bóndi á Jökulsá i 25 ár. Hann fluttist til Akureyrar 1946 og hefur átt þar heima siðan. Taflborðið góða, sem smiðað var með ærinni fyrirhöfn af hinni mestu vandvirkni fyrir skákein- vigið i suinar, hefur um tima staöið i einum af hliðarsöium Þjóðminjasafnsins með eigin- handaráletrun skákkappanna nú um skeið. i fyrradag var mönn- unum sem notaðir voru i einvig- inu raðað á taflborðið, klukk- urnar settar á sinn stað og glæru plastloki hvolft yfir. Eins og menn rekur minni til eru dökku reitirnir á borðinu úr islenzku gabbrói grængráu, tafl- mennirnir enskir frá fyrirtæki, sem margsinnis hefur hlotið verðlaun fyrir smiðar sinar og klukkurnar austur-þýzkar. Stól- arnir, sem skákkapparnir notuðu, Festist varpan í flaki Heiðrúnar? ÞÓ-Reykjavik Mennirnir sem fórust með vélbátnum Geirólfi á isafjarðar- djúpi i fyrradag hétu Jósep Stefánsson, 52 ára og Leifur Högnason, 21 árs, báðir frá Hnifs- dal. Jósep og Leifur voru báðir ókvæntii;annar á foreldra á lifi óg hinn eina systur. Nú er talið víst, að Geirólfur hafi fest vörpuna i flakinu af vél- bátnum Heiðrúnu.sem fórst i Isa- fjarðardjúpi fyrir nokkrum árum. Hjörtur Bjarnason skipstjóri á Einari 1S, sá þegar Geirólfur fór á hliðina. Hjörtur segir, að þeir á Einari hafi verið á siglingu stutt frá Geirólfi og skyndilega hafi þeir séð bátinn á hliðinni og var þá maður á stefni hans. En þegar Einar kom á slysstaöinn var Geirólfur sokkinn og maðurinn með. Geirólfur er þriðji báturinn, sem ferst við rækjuveiðar i Isa- fjarðardjúpi, og að öllum likindum hafa allir þessir bátar togað sig niður. Menn vita nákvæmlega hvar flakið af Heiðrúnu liggur i Isa- fjarðardjúpi, en sámt kemur það oft fyrir að rækjubátar festa vörpuna i þvi. fengnir frá Suður-Ameriku eru að sjálfsögðu við borðið, og sér nú enginn maður, að annar þeirra var tættur i sundur áður en ein- viginu lauk til þess að kanna af visindalegri nákvæmni, hvort þar leyndist eitthvað það, sem orkað gæti á þann, er i honum sat og truflað hugarró hans. Plastlokið yfir þennan dýrgrip lét Þjóðminjasafnið sjálft búa fi'l, og gerði það smiður i þjónustu þess, Gunnar Bjarnason. Mynd Gríms Sigurðssonar af Þönglabakka í Þorgeirsfiröi. íslandskort á skólagaflinum Þó—Reykjavik Barnaskólinn á Suðureyri vekur athygli allra sem koma i kauptúnið. A gafli hans blasir við vegfarendum geysistór mynd af Islandi, er þar hefur veriðmáluð, skreytt myndum af mannvirkjum, atvinnu- tækjum og samgöngutækjum. Meðal þess, sem þar sést, er alþingishúsið, Skálholtskirkja norðlenzkur sveitabær, Gull- foss að koma til landsins, sem og flugvél frá Flugfélagi isiands, togarar og fiskibátar á miðum og landbúnaðarvélar við störf i sveitum. Þessi islandsmynd er handaverk Jóns Kristins- sonar, sem var skólastjóri á Suðureyri árið 1958, er þessi skólabygging var fyrst tekin i notkun. En Jón er sem kunn- ugt er nú skólastjóri barna- skólans i Skógum undir Eyja- fjöllum, mjög listrænn inaður og ágætur teiknari. i sumar kontu þau hjónin, Jóii og kona hans, vestur á Suðureyri, og skýrði þá upp myndina sem nokkuð var tekin að mást og dofna. Þessi mynd af islandskortinu á Barnaskóla Suðureyrar var tekin nú á dögunum, þegar Timinn átti leið um þorpið. Timamynd ÞÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.