Tíminn - 22.10.1972, Qupperneq 1
/■
V
kæli-
skápar
■30to&
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Menningarsögu-
legt framlag
FRÆGASTA TAFLBORÐ HEIMS
— sem Islendingar verða sjálfsagt lengi roggnir af
Þegar skáeinvígið hófst, biðu menn þess iofvæni vitt um veröld, hvernig leikar færu á þessu borði. Cr
mannhafi Laugardaishallarinnar var það flutt I kyrrð safnhúss við Hringbraut, þar sem það vcröur
varðveitt um aldur og ævi, þar sem forvitnir gestir geta ekki að sér gert að renna fingrum yfir plast-
hlífina til þess að komast þó I ofurlitla snertingu við það.
Tímamynd Gunnar.
Nýr safngripur:
ÞJ—Húsavik.
Grimur Sigurðsson frá Jökulsá
hefur samið manntal i Þöngla-
bakka- og Flateyjarsóknum frá
1703-1900, og er þar greint frá,
hvaða fólk var á hverjum bæ ár
hvert á þvi timabili. Verkið, sem
er i fjórum stórum bindum, gaf
hann safnahúsinu á Húsavik i
fyrra. i haust færði hann svo
safninu að gjöf myndir, sem hann
hefur málað af öilum bæjum
þessara sókna, tuttugu og fimm
að tölu, eins og þeir voru rétt fyrir
siðustu aldamót.
Myndirnar gerði hann eftir lýs-
ingum gamalla og kunnugra
manna af bæjunum og frásögnum
þeirra af húsaskipan og bygging-
arefni. Þær eru merkilegar heim-
ildir um byggðina i Flatey og
Fjörðum á liðnum tima, en hún er
nú öll komin i eyði. Byggðin i
Þönglabakkasókn mun hafa verið
fjölmennust i kring um 1860 og
ibúar þar þá verið 110-120 manns.
I Flatey munu ibúar hafa veriö
einna flestir 1947 120 manns, en i
Flateyjarhreppi munu hafa veriö
nalægt 200 manns, áður en byggð
fór að eyðast á Flateyjardal.
Grimur Sigurösson fæddist i
Flatey, en var bóndi á Jökulsá i 25
ár. Hann fluttist til Akureyrar
1946 og hefur átt þar heima siðan.
Taflborðið góða, sem smiðað
var með ærinni fyrirhöfn af hinni
mestu vandvirkni fyrir skákein-
vigið i suinar, hefur um tima
staöið i einum af hliðarsöium
Þjóðminjasafnsins með eigin-
handaráletrun skákkappanna nú
um skeið. i fyrradag var mönn-
unum sem notaðir voru i einvig-
inu raðað á taflborðið, klukk-
urnar settar á sinn stað og glæru
plastloki hvolft yfir.
Eins og menn rekur minni til
eru dökku reitirnir á borðinu úr
islenzku gabbrói grængráu, tafl-
mennirnir enskir frá fyrirtæki,
sem margsinnis hefur hlotið
verðlaun fyrir smiðar sinar og
klukkurnar austur-þýzkar. Stól-
arnir, sem skákkapparnir notuðu,
Festist varpan í flaki Heiðrúnar?
ÞÓ-Reykjavik
Mennirnir sem fórust með
vélbátnum Geirólfi á isafjarðar-
djúpi i fyrradag hétu Jósep
Stefánsson, 52 ára og Leifur
Högnason, 21 árs, báðir frá Hnifs-
dal. Jósep og Leifur voru báðir
ókvæntii;annar á foreldra á lifi óg
hinn eina systur.
Nú er talið víst, að Geirólfur
hafi fest vörpuna i flakinu af vél-
bátnum Heiðrúnu.sem fórst i Isa-
fjarðardjúpi fyrir nokkrum
árum.
Hjörtur Bjarnason skipstjóri á
Einari 1S, sá þegar Geirólfur fór á
hliðina. Hjörtur segir, að þeir á
Einari hafi verið á siglingu stutt
frá Geirólfi og skyndilega hafi
þeir séð bátinn á hliðinni og var
þá maður á stefni hans. En þegar
Einar kom á slysstaöinn var
Geirólfur sokkinn og maðurinn
með.
Geirólfur er þriðji báturinn,
sem ferst við rækjuveiðar i Isa-
fjarðardjúpi, og að öllum
likindum hafa allir þessir bátar
togað sig niður.
Menn vita nákvæmlega hvar
flakið af Heiðrúnu liggur i Isa-
fjarðardjúpi, en sámt kemur það
oft fyrir að rækjubátar festa
vörpuna i þvi.
fengnir frá Suður-Ameriku eru að
sjálfsögðu við borðið, og sér nú
enginn maður, að annar þeirra
var tættur i sundur áður en ein-
viginu lauk til þess að kanna af
visindalegri nákvæmni, hvort þar
leyndist eitthvað það, sem orkað
gæti á þann, er i honum sat og
truflað hugarró hans.
Plastlokið yfir þennan dýrgrip
lét Þjóðminjasafnið sjálft búa fi'l,
og gerði það smiður i þjónustu
þess, Gunnar Bjarnason.
Mynd Gríms Sigurðssonar af Þönglabakka í Þorgeirsfiröi.
íslandskort á
skólagaflinum
Þó—Reykjavik
Barnaskólinn á Suðureyri
vekur athygli allra sem koma i
kauptúnið. A gafli hans blasir
við vegfarendum geysistór
mynd af Islandi, er þar hefur
veriðmáluð, skreytt myndum
af mannvirkjum, atvinnu-
tækjum og samgöngutækjum.
Meðal þess, sem þar sést, er
alþingishúsið, Skálholtskirkja
norðlenzkur sveitabær, Gull-
foss að koma til landsins, sem
og flugvél frá Flugfélagi
isiands, togarar og fiskibátar
á miðum og landbúnaðarvélar
við störf i sveitum.
Þessi islandsmynd er
handaverk Jóns Kristins-
sonar, sem var skólastjóri á
Suðureyri árið 1958, er þessi
skólabygging var fyrst tekin i
notkun. En Jón er sem kunn-
ugt er nú skólastjóri barna-
skólans i Skógum undir Eyja-
fjöllum, mjög listrænn inaður
og ágætur teiknari.
i sumar kontu þau hjónin,
Jóii og kona hans, vestur á
Suðureyri, og skýrði þá upp
myndina sem nokkuð var
tekin að mást og dofna.
Þessi mynd af islandskortinu á Barnaskóla Suðureyrar var tekin nú á dögunum, þegar Timinn
átti leið um þorpið. Timamynd ÞÓ