Tíminn - 21.11.1972, Qupperneq 19
iffliiii
Framsóknarmenn Keflavík
félagsunfur veröur haldinn i Franisóknarhúsinu Keflavfk,
miövikudaginn 22. nóvember kl. 20.30 Fundarefni: Kosning
fulltrúa á kjördæmasambandsþing, önnur mál.
Framsóknarfelag Keflavikur.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisþing KFR 1072 verður haldið i Festi, nýja
samkomuhúsinu i Grindavik,sunnudaginn 3. des. og hefst kl.
0.30 f.h.
Stjórnin.
Reykjaneskjördæmi
Fulltrúaráðsfundur KFR verður haldinn i Skiphóli miðviku-
daginn 22. nóv. kl. 20.30. Fundarefni: Kjördæmisþingið.
F.h. Kjördæmissambandsins.
Sigfús Kristjánsson.
Hafnarfjörður
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, frú Ragnheiður Svein-
björnsdóttir, er til viðtals að Strandgötu 33, uppi. Simi 51810
alla mánudaga kl. 18.00 til 10.00.
Framsóknarfélögin.
Siysið á Hótei Esju:
Veit ekki hvernig
það bar að höndum
Klp-Reykjavik
Liðan bandariska piltsins af
Keflavikurflugvelli, sem féll af 7.
Leiðrétting
vegna inn-
heimtu af-
notagjalda
Vegna viðtals, sem birt er við
mig i Timanum s.l. laugardag,
óska ég eftir, að leiðréttur sé sá
leiði misskilningur, sem þar
kemur fram. Uppgjörssending sú,
sem um er rætt,lagðist til hliðar i
fjárhirzlu Innheimtudeildar
Rikisútvarpsins og á Vestur-
bæjarútibú Landsbankans enga
sök á þeim mistökum. Harma ég,
að misskilningur þessi hefir
komizt inn i viðtalið og bið starfs-
fólk Landsbankans afsökunar á
þvi. Með vinsemd og virðingu,
Axel ó. ólafsson
hæð Hótel Esju aðfaranótt sl.
laugardags og sagt var frá i
blaðinu á sunnudaginn, var að
sögn lækna á Borgarsjúkrahúsinu
eftir atvikum mjög góð i gær.
Pilturinn sem er 19 ára gamall
er ekki viss um hvernig það
atvikaðist, að hann féll fram yfir
handriðið, en enginn sjónarvottur
var að þvi. Talið er, að hann hafi
verið eitthvað litillega undir
áhrifum áfengis, enda hafði hann
farið i bæinn til að skemmta sér
ásamt þrem félögum sinum.
Höfðu þeir leyfi til næturgistingar
utan herstöðvarinnar, og fengu
sér herbergi á Hótel Esju.
Eins og áður hefur verið sagt
frá, er það talið ganga krafta-
verki næst, að pilturinn skuli hafa
lifað af fallið, sem er yfir 20
metra. Menn telja, að það hafi
bjargað honum hversu smá
vaxinn hann er, og að hann lenti
á bakinu ofan i gosbrunn, sem var
geymdur i horninu, þar sem hann
kom niður. Eins og við sögðum
frá á sunnudaginn, var hann
mikið slasaður eftir fallið. Hann
mjaðmagrindarbrotnaði, lær-
leggsbrotnaði og brákaði
hryggjaliðina, auk þess sem
miltað rifnaði illa.
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
OLÍUSALÁ K Þ
HÚSAVÍK
Flugslys við Nýfundnaland:
Vi'ðivangui
samvinnu við stjórnarand-
stöðuna.
Kjósendur it-Þýzkalandi tóku
af skariö á sunnudaginn og
veittu Willy Brandt verðugt
traust. Það hefði orðið Vestur-
Þýzkalandi til verulegs álits-
hnekkis i heiminum, ef kjós-
endur hefðu fellt Willy Brandt
og þar með stefnu sátta og
friðar. — —TK
Framhald
af bls. 1
metrar, enda hafði verið látlaus
ofanhrið langan tima. Hrossin
náðu ekki til jarðar og voru búin
að standa i svelti dögum saman.
Þá var gripið til þess ráðs að gera
út björgunarleiðangur, þar eð
ekki mátti lengur við svo búið
standa.
— Ég fór við annan mánn inn i
Kolbeinsdal á laugardaginn til
þessað reka hrossin saman, eftir
þvi sem við varð komið, og á
sunnudaginn komu þeir frá
Sauðarkróki með ökutæki —
Sigurþór Hjörleifsson á Tinda-
stöðum á snjóbíl og Kári
Valgeirsson á snjósleða. öðru
megin Kolku, sem rennur eftir
Kolbeinsdal, voru þrjátiu og þrjú
hross, og við fórum fimm saman
til þess að ná þeim þaðan, en hinu
megin hennar voru niutiu og tveir
menn frá Smiðsgerði fóru gang-
andi til þess að sækja þau. Þeim
megin árinnar var snjór miklu
lausari og fremur hægt að bera
sig um.
— Við fórum héðan frá Neðra -
Ási klukkan þrjú, sagði Jón enn-
fremur, og klukkan rétt um sex
vorum við hjá Unastöðum um
miðbik Kolbeinsdals . Þá var þar
blindbylur og austanskafrenn-
ingur, svo að billjós sáust ekki
nema úr svo sem hundrað metra
fjarlægð.
Við komum samt flestum
hrossunum alla leið hér heim að
Neðra-Ási — rákum þau
bílslóðina. Sex urðum við þó að
skilja frammi hjá Fjalli, innst i
Kolbeinsdal, og fimm komum við
ekki nema hér heim undir tún. Fn
við höfðum með okkur hey, svo að
við gátum gefið þeim á fönnina.
Þeim, sem fóru hins vegar
árinnar tókst að koma hrossum,
sem þar voru, niður að Smiðs-
gerði með þvi að troða slóð fyrir
þau.
— Ég held, að hrossum, sem
urðu eftir inni i Kolbeinsdal, sé
ekki hætta búin, sagði Jón að
lokum, þvi að nú er farið að skafa
þar af, svo þeu ná orðið til jarðar
og geta nært sig.
ASÍ
Framhald
af bls. 1.
vernda gildi kjarasamninganna
frá des. s.l., auk þess sem unnið
yrði að sigri i Landhelgismálinu,
að örri iðnþróun og að þvi að
áætlunarbúskapur yrði tekinn
upp i rikara mæli. Þá yrði að
sjálfsögðu unnið ósleitilega að
efnahags- og kjaramálum.
Þá gat Björn fjögurra mála-
flokka, sem ætlunin væri að vinna
ötullega aðá næstunni, en það eru
fræðslumál, vinnuvernd, atvinnu-
lýðræði og að siðustu yrði að taka
fjárhag og starfsemi sambands-
ins til gagngerrar athugunar með
það fyrir augum að binda endi á
þá „sveltistefnu”, sem orðið hefði
að fylgja undanfarið.
Eftir setningu minntist Björn
nokkurra látinna félagsmanna,
þ.á.m. Haralds Guðmundssonar
fv. ráðherra og alþingismann-
anna Gunnars Jóhannssonar og
Þórodds Guðmundssonar og
Óskars Jónssonar, sem allir unnu
ötullega innan ASI. Þá var skipað
i kjörbréfanefnd og fleiri nefndir,
en að þvi loknu talaði félagsmála-
ráðherra, svo sem áður er frá
greint.
Þá fluttu hinir erlendu gestir
kveðjur félaga sinna og hinn
sovézki færði ASt gjöf frá bróður-
félagi þess i Sovétrikjunum. Það
er tákn fyrir samvinnu bænda og
verkalýðs.
Eftir þetta skilaði kjörbréfa-
nefnd störfum og mælti með sam-
þykki 337 kjörbréfa, en þau munu
ekki öll komin»enn og munu
þingfulltrúar alls verða um 360,
en margir eru veðurtepptir viða
um land. Þá voru og tekin inn i
sambandið þrjú ný félög:
Rafiðnaðarsamband Islands,
Félag hárgreiðslu- og hárskera-
sveina og Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Djúpavogs.
Þá fóru fram kosningar i em-
bætti þingsins. Sjálfkjörið varð i
þau öll, þar eð aðeins var um eina
uppástungu að ræða i hvert. Þing-
forseti var kjörinn Guðjón Jóns-
son, formaður fél. járniðnaðar-
manna i Rvik.og varaforsetar þau
Jóna Guðjónsdóttir formaður
Framsóknar og Björn Þórhalls-
son, form. Landssambands
islenzkra verzlunarmanna: Þá
voru fjórir þingritarar kjörnir svo
og nefndir þingsins.
Timinner
peningar
Augiýsitf
i Tímanum
Síðasti lendingarstaður vélar-
innar var Reykjavíkurflugvöllur
Klp-Reykjavik
Á föstudaginn i siðustu viku
kom kanadisk Douglas-vél á
Reykjavikurflugvöll á leið sinni
frá Skotlandi til Kanada. Var
þetta nýuppgerð vél og i góðu
ástandi að áliti starfsmanna flug-
vallarins, sem sáu hana.
Vélin hélt siðan áleiðis til
Nýfundnalands um klukkan hálf
eitt á föstudag. Höfðu þá allir
bensintankar verið fylltir og
settur isvari i hvern tank, sem er
frekar sjaldgæft að gert sé. 1
vélinni voru tveir aukatankar og
átti bensinið að duga á leiðar-
enda.
Þrir menn voru i vélinni og
áætluðu þeir að vera komnir á
leiðarenda um kl. 23.00 um
Framhald
af bls. 11.
Siðustu árin hafa lénskólasál-
fræðingarnir unnið markvisst að
þvi að skipuleggja hópsamtöl
nemenda og kennara og má nú
telja vist að mesta krafa til
starfsmenntunar lénsskólasál-
fræðinga verði, sú, að þeir geti
tekið að sér að leiðbeina kennur-
um, sem af einhverjum ástæðum
oft sálrænum, þurfa á aðstoð fag-
manna að halda i starfi sinu.
Þess skal að siðustu getið að
allir eða a.m.k. velflestir starfs-
menn lénsskólanefnda hafa lokið
háskólaprófi i einhverri grein,
þótt lénskólasálfræðingurinn einn
verði að hafa hlotið háskóla-
menntun, sem fjallar um
aðferðavisindi
(beteendevetenskap)
Þessi stutta grein verður að
nægja til þess að kynna lénsskóla-
nefndirnar sænsku. Næsta grein
fjallar um nýja tegund
menntaskola óg mun ég einkum
skrifa um nýja menntaskólann i
Falkenberg, einn fullkomnasta
menntaskóla Svia.
Ath.
Þau leiðu mistök urðu i Timanum
á sunnudaginn, að yfirskrift á
grein ólafs Gunnarssonar var:
Ilvað gerir lénsskólanefnd, en
átti að vera. Nýi menntaskólinn
sænski, og átti sú grein raunar að
koma á eftir greininni i þessu
blaði.
Ilöfundur greinanna ólafur
Gunnarsson og lesendur eru
beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Lénsskóli
kvöldið, en klukkan eitt um
nóttina átti hún enn nokkuð eftir.
Þá hafði áhöfnin samband við
Gander á Nýfundnalandi og sögðu
að eldsneytið væri á þrotum og að
annar hreyfillinn væri stanzaður.
Skömmu siðar rofnaði allt sam-
band við vélina og voru þá sendar
leitarflugvélar á loft. Skammt frá
þeim stað, sem siðast heyrðist til
hennar fannst brak i sjónum og
eitt lik. Veður var vont á þessum
slóðum, og er talið að flug-
mennirnir hafi ekki náð að koma
gúmmbát á flot og hafi þeir allir
farizt þarna.
Samnorræn
námskeið
VS—Reykjavik.
Staddur er hér á landi Daninn
Ove Elvekjær. Hann er lektor við
Nordens folkliga akademi i
Kungálv i Sviþjóð, en það er
samnorræn stofnun, sem kostuð
er af rikisstjórnum allra Norður-
landanna. Markmið skólans er að
vera miðstöð fyrir uppeldis- og
alþýðufræðslu á Norðurlöndum,
og einnig eru þar haldin námskeið
fyrir þá aðila, sem stjórna
menntun fullorðinna. Þessi
námskeið standa i eina til tvær
vikur.
Meðal þeirra námskeiða, sem
eru i undirbúningi fyrir árið 1973,
eru þessi: Fullorðinsfræðsla fyrir
vanþroska fólk, Heimsmynd fjöl-
miðlanna, Sænsk fræðslustefna —
til eftirbreytni?
Námskeið um „Norræna
skáldastefnu siðasta áratuginn”
verður haldið i vor, og næsta
haust er ráðgert námskeið fyrir
æskulýðsleiðtoga.
Upplýsingar um námskeiðin er
hægt að fá með þvi að skrifa til
Nordens folkhga akademi, s-
44200, Kung'álv, Sviþjóð. Einnig
gefa menntamálaráðuneytið,
Norræna húsið og Norræna
félagið nánari upplýsingar.
Islendingar, sem hafa hug á að
sækja slik námskeið, geta fengið
hluta af farareyri sinum sem
styrk frá stofnuninni, og frá og
með 1972 veitir menntamálaráðu-
neytið islenzka dvalar- og ferða-
styrki. Til frekari útskýringar
má geta þess, að menn fá fimm
hundruð sænskar krónur til þess
að greiða ferðakostnað. Þetta
þýðir, að með þeim styrkjum,
sem nú eru fyrir hendi, komast
þrir Islendingar frltt á þessi
námskeið. Og það eru tveir
styrkir óveittir í ár.
Þess var áður getið, að þessi
starfsemi væri styrkt af öllum
Norðurlöndunum. Til gamans má
geta þess, að fyrstu þrjú árin,
sem þessi námskeið voru haldin,
var þátttaka hverrar þjóðar fyrir
sig i réttu hlutfalli við peningalegt
framlag viðkomandi langs.
Nordens folkliga akademi hefur
aðsetur i Bohuslan, ekki langt frá
Gautaborg. I sömu byggingu
hefur norræni lýðháskólinn starf-
semi sina. Vetrarnámskeið
skólans byrja i september og
standa i þrjátiu vikur. Þar er
hægt að velja um þrenns konar
nám: Norrænt lýðháskólanám,
leiklist og bókmenntir og blaða-
mennsku.
Norræna félagið sér um
umsóknir um skólavist og styrki
fyrir þá, sem hafa hug á námi við
lýðháskólann.
Þess má að lokum geta, að Ove
Elvekjær hefur mikinn hug á að
fá ungan, islenzkan bókmennta-
gagnrýnandi á þriggja daga
námskeið, sem haldið verður i
Kungalv i Sviþjóð, dagana
þrettánda til fimmtánda
desember næst komandi að
báðum dögum meðtöldum.
Þetta er algerlega fritt, bæði
ferðir og dvöl.
Eins og að framan getur, þá
veita menntamálaráðuneytið,
Norræna húsið og Norræna
félagið allar nánari upplýsingar,
ef fólk skyldi fýsa að vita fleira
en það, sem hér er sagt.
VEUUM ÍSLENZKT-/WV
ÍSLENZKAN IÐNAÐUidH/