Tíminn - 24.11.1972, Page 4
4
TÍMINN
Föstudagur 24. nóvember 1972
Ilegnhlif með
vinnukonu
Er loks var búið að finna upp
regnhlifar, sem ekki er hætta á
að stingi augun úr vegfarendum,
fylgdi sá böggull skammrifi, að
konurnar, sem skýldu sér með
þessum nýju regnhlífum, sjá
ekki til að komast slysalaust
áfram i umferðinni. Varla þarf
að lýsa þeim regnhlifum, sem
notaðar eru nú á dögum, svo al-
gengar eru þær orðnar. Eru þær
gerðar úr glæru plasti og notað-
ar þannig, að sjállri regnhlifinni
er brugðið niður yfir höfuð not-
andans, allt niður á herðar. En
þegar rignir safnast droparnir á
hlilina og byrgja útsýni. Eru þvi
konur, sem nota þessar regn-
hlifar.engu betur settar en öku-
menn i bilum, þar sem vinnu-
konan er i ólagi. Er reyndar
ólöglegt að aka bilum, sem
þannig eru á sig komnir, en eng-
in lög banna neinum að vaða
blindandi um göturnar, sé sá út-
sýnislausi gangandi. Nú er búið
að linna ráð við þessum vand-
ræðum. Er það einfalt. Bara að
setja vinnukonu á regnhlifina,
rétt eins og á bila.
Fyrst i stað var ekkert gert i
málinu af hálfu yfirvalda, en
þegar fara átti að rannsaka
dauðsfall konunnar, fannst Paul
Getty yngri hvergi, og hefur
ekki sézt siðan, og veit enginn
hvar i veröldinni hann heldur
sig.
Getty eldri, sem nú er 79 ára
gamall, er að vonum leiður yfir
framferði sonar sins, og þykir
eins og fleirum, i meira lagi
grunsamlegt, að hann skuli
hverfa um það bil.sem farið er
að rannsaka dauða eiginkon-
unnar. Gamli maðurinn heldur
áfram að reka risafyrirt. sin,
þrátt fyrir aldurinn, en hann
hefur upplýst, að hann eigi eng-
an son lengur, þvi hann getur
ekki fyrirgefið Paul yngra, að
hreinsa sig ekki af þeim grun,
sem á honum liggur.
— Fyrir mér er sonur minn
látinn, segir Getty, og þar
afleiðandi verður hann ekki
nefndur i erfðaskránni.
Larsenhjónin voru á leið heim
úr veizlu. Á leiðinni jós frúin sér
yfir eiginmanninn fyrir að hafa
veitt borðdömu sinni of mikla at-
hygli.
— Þú ert sá dónalegasti karl-
maður, sem ég hef kynnzt, sagði
hún.
Tveir af vinum Larsens voru
innan heyrnarviddar og tóku
brosandi ofan hattana.
— Já, elskan min, hvað sagðirðu
fleira við hann? spurði þá Larsen
konu sina.
★
(Irænt er gott fyrir
eyrun.
Verði hávaðinn
frá umferðinni of mikill, skaltu
mála eða veggfóðra hjá þér i
ljósgrænum eða bláum litum.
Heyrnarsérfræðingar i
Leningrad halda þvi fram, að
þessir litir dragi úr hávaðanum
um mörg desibel. Bak við þessa
niðurstöðu liggur röð af
tilraunum með hljóðdeyfandi
liti, og gerð hefur verið tafla,
sem sýnir hvaða litir eru mest
hljóðdeyfandi og hvaða timbur.
Einnig hafa verið gerðar til-
raunir með liti á öðru sviði, þar
sem rannsökuð voru áhrif hinna
ýmsu lita og ljósauppsetninga á
vinnuafköst, sjónþreytu og
þreytu i heild. Niðurstöður til-
raunanna hafa verið gefnar út i
skýrslu, þar sem lagðar eru
fram tillögur um innréttingu
vinnustaða.
l>að var rólegt kvöld. Hann sat
og las i blaði en hún prjónaði.
Ileyrðu, hérna slendur, að
maðurinn, sem skotið var á, hafi
sloppið lilandi, af þvi kúlan hitti
hnapp.
Nú og hvað með það?
Já, mér datt bara i hug, að
sumir slyppu ekki svo vel, það
vantar ósköp af hnöppum i fötin
min.
,/x
Sonur Gettys
gerður arflaus
Ef Paul Getty er ekki rikasti
maður þessa heims.er hann ekki
langt frá heimsmetinu. Hann á
meiri peninga en hægt er fyrir
einn mann að eyða með nokkru
móti. Meðal fasteigna hans er
höll i Englandi, þar sem karlinn
býr. f henni eru 70 herbergi,
og hefur eigandinn aldrei séð
nema fá þeirra. Fimmtán
manna þjónustulið er i höllinni,
sem ekki hefur annað að gera en
láta fara vel um oliukónginn.
En Paul Getty hefur sinar
áhyggjur ekki siður en annað
fólk. Mesta áhygjuefni hans er
sonur hans, Paul Getty jr. Ungi
maðurinn hefur ekki verið við
eina fjöl felldur i lifinu, en hið
alvarlegasta, sem fyrir hann
hefur komið til þessa, var dauði
konu hans, Thalitu, sem lézt
fyrir ári siðan,og er ekki allt
með felldu i sambandi við
dauðsfallið.
Ef einhverjum kemur við hvað
stúlkan með hattinn heitir, skal
upplýst, að nafn hennar er
Michelle ltizzo, og er hún leik-
kona og dansmey. Fínn hatlur,
eða livað?
— Þjónn, er þetta ekki fyrsta
llokks matsölustaður?
— Jú, herra minn.
—Hvers vegna er þá þjónarnir
annars flokks?
— Af þvi að gestirnir eru þriðja
flokks...
— Rétturinn hefur ákveðið að
kona yðar fái 5000 krónur
greiddar á mánuði, i meðlag.
- Það var fallegt af yður dómari,
en ég get borgað svolitið lika.
— Stórkostlegt að hún Jónina
skuli vera orðin 100 ára.
— Það finnst mér ekki, þegar
maður hugsar um, hvað hún
hefur verið lengi að þvi.
DENNI
DÆMALAUSI
Strax og hún er farin i
eldhúsið getum við skipt yfir á
aðra stöð og horft á
FÓSTBRÆÐUR.