Tíminn - 24.11.1972, Page 9
Föstudagur 21. nóvember 1972
TÍMINN
9
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: l>ór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson;::::;:;;::;
x:;!;:;!; Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans).;!;!;!;!;!;
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislasoni. Ritstjórnarskrif-;:;:;:;:;:.:
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306;;;;!;;!;!
!;!;!;!;!;! Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýs-!;!;!;!;!;!
:;;!;!;!;!; ingasimi 19523. Aðrar skrifstofur:simi 18300. Askriftargjald!;!;;;;!
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-;!;!;!;!;!;
takið. Blaðaprent h.f.
Wéé_________________ ■>
Kjörin aldrei betri en nú
í skýrslu sinni á Alþýðusambandsþingi sagði
Björn Jónsson, forseti sambandsins, að kaup-
máttur launa hefði aldrei i annan tima verið
meiri hjá verkafólki en hann er nú,og vinnu-
vikan væri um leið orðin styttri hér á landi en i
öðrum löndum. Margir launþegar ynnu þó
miklu lengri vinnutima en 40 stundir á viku
vegna þess,að atvinna hefði verið mjög mikil
að undanförnu og atvinnuleysi verið að mestu
útrýmt. Kæmi þvi vinnutimastyttingin fram
sem bein kauphækkun hjá földanum.
I framsöguræðu fyrir tillögu til ályktunar um
kjara- og atvinnumál, sem lögð var fyrir
Alþýðusambandsþing, sagði Eðvarð Sigurðs-
son, formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar m.a., að höfuðverkefni verkalýðs-
samtakanna núna væri að sjá til þess,að kaup-
máttur launanna yrði verndaður og tryggð yrði
full atvinna i landinu með tilliti til þess vanda,
sem nú blasir við i efnahagsmálum. Um þessi
verkefni erum við að sjálfsögðu fús að eiga
samvinnu við rikisstjórn landsins, sagði
Eðvarð.
Eðvarð minnti á, að nú ætti sér stað mikil
atvinnuuppbygging i landinu og áætlanir væru
uppi um markvisst framhald þeirrar upp
byggingar, en það er markmiðið með þessum
framkvæmdum að treysta atvinnu- og efna-
hagslif þjóðarinnar og þar með skapa sem
mest atvinnuöryggi og skilyrði fyrir bættum
kjörum launþega.
Nú er við vanda að etja i efnahagsmálum, en
alvarlegust i sambandi við atvinnu- og kjara-
málin er sú hætta, sem felst i þvi,er áframhald-
andi minnkun verður á fiskaflanum. Færi svo,
er vandséð, hvernig við fengjum varið kjör
okkar, sagði Eðvarð. Þess vegna er landhelgis-
málið og verndun fiskimiðanna svo mikið lifs-
hagsmunamál þessarar þjóðar og ekki sizt
fólksins i verkalýðshreyfingunni.
I tillögum þeim, sem fyrir þingið voru lagðar,
er vikið að 7 atriðum, sem miklu skipti,þegar
ákvarðanir verði teknar um leiðir til að mæta
efnahagsvandanum, sem nú er við að striða.
Þessi atriði eru þessi:
1. Að við fjárlaga- og framkvæmdaáætlana-
gerð verði gætt fyllsta aðhalds varðandi alla þá
kostnaðarliði, sem ekki er brýn þörf á, til að
haldið verði fullri atvinnu i landinu og nauð-
synlegri félagslegri þjónustu.
2. Að framhald verði á raunhæfu aðhaldi i
verðlagsmálum og að virku verðlagseftirliti
verði komið á.
3. Að skatteftirlit verði hert og skattsvik
hindruð.
4. Að heildarstjórn verði á fjárfestingar-
málum, bæði með hyggilegum áætlunum og
samræmdri stefnu lánastofnana.
5. Að hugsanlegar aðgerðir beinist m.a. að
þvi að bæta hlut undirstöðuatvinnugreinanna,
en draga úr gróða og óþörfum milliliðum.
6. Að aðgerðirnar séu til þess fallnar að jafna
raunveruleg launakjör i landinu, jafnframt þvi
sem kjör láglauna- og miðlungstekjufólks séu
vernduð.
7. Aö skattar á lágar og miðlungstekjur verði
lækkaðar, eftir þvi sem frekast er unnt.
—TK
ERLENT YFIRLIT
Brandt og Scheel semja
um nýja ríkisstjórn
Nokkur ágreiningur getur orðið um innanlandsmál
Brandl «n Schcel
SIGURVEGARARNIR i
kosningunum i Vestur-Þýzka-
landi vinna nú aö myndun
nýrrar rikisstjórnar, sem mun
verða kynnt þinginu 15.
desember næstkomandi.
Samkvæmt stjórnarskránni
kemur nýkjöriö þing fyrst
saman fjórum vikum eftir
kosningar, og mun þingið þvi
ekki verða kvatttil fundarfyrr
> en 13. desember. Næsta dag
mun kosning á kanslara fara
fram.og er enginn efi á þvi, að
Brandt verður endurkjörinn.
Daginn eftir mun hann svo
kynna þinginu skipun nýrrar
stjórnar.
Það verður hins vegar fyrst
18. janúar næstkomandi, sem
Brandt mun tilkynna þinginu
stefnuskrá rikisstjórnarinnar,
sem á að gilda fyrir allt kjör-
timabilið. Nefnd, sem stjórn-
arflokkarnir hafa kjörið til að
semja stefnuskrána, hóf störf
sin i gær.
Fyrsta verk hins nýkjörna
þings verður að samþykkja
fjárlög fyrir árið 1972. Þau
hafa verið óafgreidd sökum
þess, að ekki var neinn starf-
hæfur meirihluti i þinginu.
Ætlunin er að hefja umræður
um fjárlögin i þinginu 18.
desember og ljúka þeim fyrir
jólin.
GIZKAÐ er á, að það geti
valdið Brandt nokkrum erfið-
leikum að mynda nýja rikis-
stjórn, þvi að frjálslyndir
demókratar, sem telja sig
aðalsigurvegara kosninganna,
áliti sig hafa rétt til fleiri ráð-
herra en áður. Þeir bættu við
sig 12 þingsætum i kosningun-
um, en sosialdemókratar 6.
Frjálslyndir demókratar hafa
nú þrjá ráðherra, eða utan-
rikisráðherrann, innanrikis-
ráðherrann og landbúnaðar-
ráðherrann. Talið er, að þeir
vilji nú fá 4 eða 5 ráðherra.og
er gizkað á, að þeir vilji fá til
viðbótar efnahagsmálaráð-
herrann og menntamálaráð-
herrann. Orðrómur hermir, að
þetta mál kunni að verða leyst
með fjölgun ráðuneyta, t.d.
verði embætti menntamála-
ráðherrans skipt. Eitt ráð-
herraembætti verður lagt nið-
ur vegna hinna nýju samninga
milli þýzku rikjanna, en undir
það heyrðu sameiginleg þýzk
málefni. t stað þess mun
sennilega koma ráðuneyti fyr-
ir umhverfismál.
Svo örðugt, sem það getur
orðið að semja um skiptingu
ráðherraembættanna, geta
örðugleikarnir orðið meiri i
sambandi við stefnuskrána.
Utanrikismálin munu ekki
valda neinum erfiðleikum, þvi
að stjórnarflokkarnir eru
sammála um þau. Svipað gild-
ir um menntamálin, en á sviði
þeirra hafa stjórnarflokkarnir
heitið mjög róttækum
breytingum. Hins vegar er
talið, að ágreiningur geti orðið
um skattamálin og atvinnu-
lýðræðið. Sosialdemókratar
lofuðu breytingum i skatta-
málum, sem frjálsir demó-
kratar hafa lýst sig andviga.
Þá lofuðu sosialdemókratar
einnig að auka verulega hlut-
deild starfsmanna i stjórn
fyrirtækja, en frjálslyndir
demókratar lýstu yfir þvi, að
þeir vildu fara mjög varlega i
þessum efnum. Margir spá þvi(
að ágreiningurinn milli stjórn-
arflokkanna geti orðið mestur
um þetta atriði.
1 KOSNINGUNUM nú urðu
sosialdemókratar i fyrsta sinn
stærsti þingflokkurinn. Þeir
fengu nú 45.9% greiddra at-
kvæða og 230 þingmenn, en
kristilegir demókratar 44.8%
og 224 þingmenn. 1 kosningun-
um 1969 fengu kristilegir
demókratar 46.1% og 242 þing-
sæti, sosialdemókratar 42.7%
og 224 þingsæti. Sigur sosial-
demókrata er yfirleitt talinn
persónulegur sigur Brandts,
en mörg blöð benda jafnframt
á, að sosialdemókratar hafi
átt vaxandi fylgi að fagna,sið-
an þeir samþykktu hina nýju
stefnu á landsfundi sinum i
Godesberg 1959, en þá hurfu
þeir að mestu frá þjóðnýting-
arstefnunni. Siðan hefur þeim
gengið miklu betur að ná fylgi
hægfara kjósenda, eða mið-
fylginu svonefnda. Siðan 1949
hefur kjörfylgi þeirra i kosn-
ingum verið sem hér segir:
1949 29.2%, 1953 28.8%, 1957
31.8%, 1961 36.2%, 1965 39.3%,
1969 42.7% og 1972 45.9%.
FRJÁLSLYNDIR demó-
kratar lengu stórum
meira fylgi en spáð hafði verið.
Þeir fengu 8.4% greiddra at-
kvæða og 42 þingmenn, en
fengu 5.8% og 30 þingmenn i
kosningunum 1969. Fyrir
kosningar var þvi spáð, að
ýmsir fylgismenn sosialdemó-
krata myndu kjósa frjálslynda
demókrata i þetta sinn til þess
að koma i veg fyrir, að þeir
féllu út úr þinginu, en það
hefði tryggt kristilegum
demókrötum sigur samkvæmt
þvi, sem skoðanakannanir
bentu til. Athuganir, sem hafa
verið gerðar eftir kosningarn-
ar, benda hins vegar til, að
frjálslyndir demókratar hafa
fengið næstum eins mikið af
atkvæðum frá kristilegum
demókrötum og sosialdemó-
krötum. Þetta er m.a. talið
stafa af þvi, að frjálslyndir
demókratar lofuðu að styðja
óbreytta utanrikisstefnu, en
hins vegar myndu þeir gæta
þess, að sosialdemókratar
réðust ekki i nein sosialistisk
ævintýri, t.d. i sambandi við
atvinnulýðræði. Þá er talið,
að það hafi haft áhrif á ýmsa
kjósendur, að ekki væri heppi-
legtað aðeins væru tveir stórir
stjórnmálaflokkar, er héldu
uppi mjög harðri andspyrnu
hvor gegn öðrum. Frjálslyndir
demókratar lögðu mikla
áherzlu á þetta atriði og virð-
ist hafa orðið vel ágengt.
KRISTILEGIR demókratar
biðu I reynd miklu meiri ósig-
ur en kosningatölurnar benda
til I fljótu bragði. Athuganir
hafa leitt i ljós, að þeir fengu
nú meginþorra þeirra kjós-
enda, sem kusu nýnasista i
kosningunum 1969, en samt
minnkaði heildarfylgi þeirra.
Ástæðan var sú, að þeir misstu
fylgi jöfnum höndum til
sosialdemókrata og frjáls-
lyndra demókrata. Tvennt er
talið hafa átt mestan þátt i
þessu. Annars vegar var and-
staða þeirra gegn utanrfkis-
stefnu stjórnarinnar, en
hins vegar ofsafenginn
áróður gegn sosialdemókröt-
um, er voru stimplaðir sem
rauðir fasistar, sem myndu
leggja l'rjálst framlak og
lýðræði i rúst. Þessi áróður
missti marks, en dró jafn-
Iramt athygli frá áróðri þeirra
um dýrtiðina, sem hins vegar
féll i allgóðan jarðveg.
Vafalaust munu kosninga-
úrslitin leiða til harðra átaka
hjá kristilegum demókrötum.
Það mun bæði deilt um stefn-
una og forustuna. Af hálfu
nægri manna undir forustu
Strauss mun lögð áherzla á
harðari andstöðu gegn stjórn-
inni og utanrikisstefnu
hennar. Aðrir leiðtogar
llokksins munu hins vegar
leggja áherzlu á samstöðu
allra flokkanna i utanrikis-
málum, en hafa ágreininginn
þeim mun meiri um innanrik-
ismál. Þetta mun hafa verið
sú stefna, sem Barzel vildi
fylgja, en fékk ekki framgengt
vegna áhrifa Strauss. Margir
munu kenna Barzel um úrslit-
in, þar sem hann hafi ekki ver-
ið nógu myndugur foringi, en
Barzel hefur það sér til af
sökunar.að hann var með klof-
inn flokk i utanrikismálum og
þurfti að reyna að halda hon-
um saman vegnakosninganna.
Óliklegt þykir, að reynt verði
að sinni að Svipta Barzel for-
ustunni,nema þá að tilraun
verði gerð til þess af hálfu
Strauss. Hann hefur enn ekki
látið neitt uppi, en þeir tveir
menn aðrir, sem hafa verið
taldir liklegir keppinautar
Barzels, Helmut Kohl og
Gerhard Stoltenberg, hafa lýst
yfir fylgi við hann.
Strauss mun telja það
styrkja aðstöðu sina, að flokk-
ur hans fékk nú heldur meira
fylgi i Bæjaralandi en 1969.
Hann fékk nú 55.1% atkvæða,
en fékk 54.4% i kosningunum
1969. En á móti þessu kemur
það, að sosialdemókratar juku
fylgi sitt i Bæjaralandi úr
34.6%, i 37.8% og frjálslyndir
demókratar juku fylgi sitt úr
4.1%, i 6.1%,. Kristilegir demo-
kratar fengu nú það fylgi, sem
nýnasistar fengu i Bæjara-
lándi 1969, en töpuðu hins veg-
ar næstum eins miklu til
stjórnarflokkanna.
Þ.Þ.