Fréttablaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 1
MIKIL HÆTTA Á FERÐ Maður vopn-
aður hreindýrarifli hleypti af skotum áður
en hann var afvopnaður og handtekinn af
lögreglu og sérsveitarmönnum á Akureyri.
Hann er grunaður um að hafa verið undir
áhrifum fíkniefna. Sjá síðu 2
ÖRYGGISLEYSI ER HINDRUN Efna-
hagslíf Íraka hefur ekki enn tekið við sér,
fimmtán mánuðum eftir fall Saddams
Hussein. Áhugi erlendra fjárfesta er til stað-
ar en þeir halda að sér höndum vegna
óaldar sem ríkir í landinu. Sjá síðu 4
FASTAR Í NETI SKÚRKA Rúna Jóns-
dóttir, talskona Stígamóta, segir brýnt að
koma á vitnavernd og hjálp fyrir konur sem
brjótast vilja út úr klámiðnaði. Dæmi eru
um að nektardans stúlkna hér hafi fallið
undir skilgreiningar mansals. Sjá síðu 6
NÝTT LEIKRIT FRUMSÝNT Reykvíska
Listaleikhúsið frumsýnir í kvöld leikritið
Krádplíser eftir Jón Atla Jónasson í leikstjórn
Ólafs Egils Egilssonar. Sýnt verður í sýningar-
sal Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar á
Hólmaslóð 2 og hefst sýningin klukkan 20.
Bjarni Benediktsson hefur vakið
athygli fyrir störf sín sem formaður
allsherjarnefndar. Segir mikilvægt
að ungt fólk axli ábyrgð.
▲
SÍÐUR 16 & 17
Stefnir á
ráðherrastól
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
25. júlí 2004 – 201. tölublað – 4. árgangur
Deildin að verða sterkari og slagsmálin hætt.
ÞYKKNAR SMÁM SAMAN UPP Úr-
komusvæði nálgast vestanvert landið og þar
fer að rigna í kvöld. Bjart austantil fram eftir
degi. Hiti 10-20 stig. Sjá síðu 6.
SÍÐUR 14 & 15
▲
Fyrrverandi þjóðhetja hand-
tekin. Ekki talinn heill á geði.
SÍÐA 19
Fótbolti utan deilda í áratug
▲
Bobby
Fischer
ALÞJÓÐASAMNINGAR Fulltrúi Íslands í
Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO,
Stefán Haukur Jóhannesson, hefur
sætt opinberri gagnrýni viðskipta-
ráðherra þróunarríkjanna fyrir að
hafa haft að engu áhyggjur þeirra
af afleiðingum þess að alþjóðleg-
um tollareglum verði breytt á
þann hátt sem lagt er til. Alþjóð-
legar stofnanir hafa tekið undir
gagnrýnina og segja að ákvörðun
Stefáns Hauks, að taka ekki til
greina athugasemdir fulltrúa þró-
unarríkjanna, geti staðið í vegi
fyrir frekari framþróun í fátæk-
ustu ríkjum heims.
Stefán Haukur er formaður
NAMA, samninganefndar á veg-
um WTO um vöruviðskipti
ótengdum landbúnaði. Nefndin
skilaði nýlega áliti til fram-
kvæmdarstjórnar WTO varðandi
niðurskurð á tollum á vörum.
Óánægja fulltrúa þróunarríkj-
anna felst í því að formaðurinn
hafi algjörlega horft fram hjá
ábendingum þeirra og að þær
hafi ekki verið bókaðar í álitinu
með niðurstöðum úr viðræðum
nefndarmanna um málið.
Fimm alþjóðastofnanir sendu
skriflega kvörtun til fram-
kvæmdastjóra WTO og einnig til
fulltrúa allra ríkja. Þar kemur
fram að ákvörðun Stefáns Hauks,
að hundsa ábendingar vanþróuðu
ríkjanna, „sé hvorki þolanleg né
verði látin óátalin“.
Fulltrúarnir segja að taka þurfi
tillit til þess hvaða áhrif niður-
skurður tolla hafi á þróunarríkin.
Efnaðri ríkin, svo sem Bandaríkin,
Evrópuríki og Japan hafa lagt á það
mikla áherslu að tollar verði
afnumdir fyrir 2020. Þróunarríkin
halda því fram að með því að skera
niður tolla þróunarríkjanna jafn-
hart og jafnmikið og efnaðri ríkja,
bitni það mun harðar á þeim því
tollarnir séu hærri og niðurskurð-
urinn verði því hlutfallslega meiri.
Stefán Haukur sagði í samtali
við Fréttablaðið að gagnrýnin
hefði byggst á misskilningi og það
sé nú almennt viðurkennt. Samn-
ingaviðræður haldi nú áfram og
vonast sé til að niðurstöður náist í
næstu viku.
„Það eru búnar að vera mjög
stífar viðræður í gangi enda ólíkir
hagsmunir hinna 147 aðildarríkja.
Ég lagði textann fram sem drög að
innleggi í heildartexta sem verið
var að vinna. Í bréfi sem ég lét
fylgja með útskýrði ég að textinn
væri ósamþykktur og ekki endan-
legur. Þegar þeir sem fyrir gagn-
rýninni stóðu voru látnir vita af
þessu bréfi róaðist málið og tekið
var til greina að ég hefði ekki ein-
faldlega vaðið áfram,“ segir Stefán.
sda@frettabladid.is
FLUGMAÐUR MEÐ BÁÐA FÆTUR Á JÖRÐINNI Það er hægt að gera ýmislegt fleira en að sleikja sólina þegar veðrið er gott. Ingólfur
Arnarson notaði góða veðrið í gær til að fljúga fjarstýrðri flugvél sinni við Rauðavatn fyrir utan Reykjavík. Áfram verður gott veður á morgun
en þó spáir Veðurstofan því að þykkni upp annað kvöld á suðvesturhorninu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Fulltrúi Íslands sætir
gagnrýni þróunarríkja
Fulltrúi Íslands í Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO, hefur sætt gagnrýni frá þróunarríkjunum
og alþjóðlegum stofnunum fyrir að hundsa ábendingar þeirra um alvarlegar afleiðingar vegna
breytinga á tollareglum. Gagnrýnin sögð á misskilningi byggð.
Starfsmenn flugfélags:
Fengu sæti á
salerninu
DUBLIN, AP Tveir starfsmenn lág-
gjaldaflugfélagsins Ryanair hafa
verið reknir úr starfi fyrir að nota
salerni vélarinnar fyrir sæti.
Flugstjóri vélarinnar hefur einnig
sagt starfi sínu lausu eftir að hann
játaði að hafa gefið starfsmönn-
unum, sem ekki voru á vakt, leyfi
til þess að sitja á salernunum.
Starfsmennirnir voru farþegar
í troðfullri flugvél á leið frá
Girona á Spáni til Dublin á Írlandi
og fengu því engin sæti. Ryanair
telur þá hafa brotið gróflega gegn
reglum flugfélagsins en báðir
voru þeir yfirmenn með langa
starfsreynslu hjá félaginu.
Starfsmennirnir ættu sér því
engar málsbætur, segir í
yfirlýsingu frá Ryanair. ■
Opið 13-17 í dag
01 forsíða 24.7.2004 22:06 Page 1