Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 2
2 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR Eldur kom upp í húsi við Sundlaugaveg: Eldri kona lést BRUNI Eldri kona lét lífið eftir að eld- ur kom upp í íbúð hennar í húsi við Sundlaugaveg snemma í gærmorg- un. Íbúar á jarðhæð og í kjallara hússins voru vaktir upp og varð ekki meint af. Íbúi í risi var ekki heima þegar eldurinn kom upp. Vegfarandi um Sundlaugaveg sá reyk koma út úr húsinu og til- kynnti um hann til lögreglu um klukkan sex í gærmorgun. Slökkvilið frá þremur stöðvum voru send á vettvang og var lög- regla þegar byrjuð að rýma húsið þegar slökkvilið kom á staðinn. Reykkafarar fóru samstundis inn í íbúðina og báru eldri konu út úr íbúðinni þremur mínútum síðar. Konan var úrskurðuð látin. Mikill reykur var í íbúð konunn- ar sem var ein heima þegar eldur- inn kom upp. Miklar skemmdir urðu af völdum reyksins en talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Íbúar annarra íbúða hússins voru ekki í hættu að sögn lögreglu. Slökkvistarf gekk greiðlega eftir að konan fannst og hafði eld- urinn verið slökktur tæpri klukkustund eftir að fyrsti bíllinn kom á staðinn. ■ LÖGREGLUMÁL Lögreglan lét ekki fara fram neina skipulega leit að Sri Rahmawati um helgina, að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar, aðstoðaryfirlögreglu- þjóns í Reykjavík. Nú eru réttar þrjár vikur liðnar síðan konunn- ar var fyrst saknað. Fyrrver- andi sambýlismaður hennar, Hákon Eydal sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið henni að bana, verður yfirheyrður í dag. Hann hefur neitað að hafa nokkuð með hvarf konunnar að gera. Ómar Smári sagði í gær, að vonast væri til þess að yfir- heyrslurnar yfir Hákoni í dag myndu skila einhverjum ár- angri. Spurður hvort hinn grunaði neitaði enn sök kvaðst Ómar Smári ekki vilja gefa upp opinberlega hvað kæmi fram í yfirheyrslunum. Þar með væri verið að gefa öðrum upplýsing- ar um málið. Spurður hvort það þýddi að fleiri væru grunaðir um að vita hvað átt hefði sér stað í íbúð hins grunaða í Stórholti eða hver afdrif konunnar hefðu orðið, svaraði Ómar Smári: „Ekki á þessari stundu.“ Hann sagði enn fremur að unnið hefði verið úr vísbending- um og gögnum undanfarna daga en staðan væri sú sama og fyrir helgi. Ekkert nýtt væri að frétta af því. Fyrir helgina sagði hann það sama við Fréttablaðið, að ekkert nýtt væri „að frétta af rannsókn málsins að svo stöddu“. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur rannsóknarvinna lögregl- unnar meðal annars falist í því, að leitast hefur verið við að lesa úr sönnunargögnum með hvaða hætti atburðarásin í íbúð Hákon- ar í Stórholtinu hafi verið. Hákon Eydal var fyrir helgina úrskurðaður í framlengt gæsluvarðhald til 11. ágúst næstkomandi og var jafnframt úrskurðaður til að sæta geð- rannsókn. Undirbúningi að henni er lokið, að því er Ómar Smári sagði, en búast má við því að hún taki nokkra daga. Hilmar Baldursson hdl., verjandi Hákonar, sagði í gær að ljóst væri að Hákon myndi ekki kæra úrskurðinn um fram- lengt gæsluvarðhald. jss@frettabladid.is ÓK ÖLVAÐUR ÚT AF Ökumaður á var fluttur á slysadeild eftir að hann ók út af Hnoðraholtsbraut í Garðabæ um fjögurleytið í fyrrinótt. Maður- inn slasaðist lítið en bíllinn er mikið skemmdur. Hann er grunaður um ölvun við akstur. DATT OG LENTI UNDIR BÍL Kona var flutt á sjúkrahús eftir að hún lenti undir afturhjóli bíls í Landsveit í gær. Atvikið átti sér stað á veg- slóða eftir að konan féll í jörðina með þeim afleiðingum að hún lenti undir bílnum. Konan er talin við- beinsbrotin. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR „Að sjálfsögðu.“ Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari segir í baksíðuviðtali í Fréttablaðinu í gær að henni líði best þegar hún er nakin. SPURNING DAGSINS Nína Björk, klæðistu fötum af tómri tillitssemi við annað fólk? ÞJÓÐÞING UNDIRBÚIÐ Hundruð Íraka söfnuðust saman nærri Bagdad í gær til þess að kjósa fulltrúa fyrir þjóðþing sem ekki hefur fengist uppgefið hvar né hvenær verður haldið. Þjóðþing Íraka: Undirbúning- ur í járnum BAGDAD, AP Hundruð Íraka söfnuðust saman í félagsheimili nærri Bagdad í gær til þess að kjósa fulltrúa fyrir yfirvofandi þjóðþing. Rætt hefur verið um þingið sem fyrsta skrefið í átt til lýðræðis í landinu. Undirbúningur þjóðþingsins hefur þó ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Leiðtogar sumra héraða eru svo sundraðir að ólíklegt er að samkomulag náist um einn ein- asta fulltrúa. Áhrifamiklir flokk- ar hafa lýst því yfir að þeir muni hundsa viðburðinn. Þá eru að- standendur þingsins svo hræddir um hryðjuverk að hvorki hefur fengist uppgefið hvar né hvenær þingið verður haldið. ■ Þrítugur ökumaður: Á 177 kíló- metra hraða LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vík stöðvaði þrítugan ökumann sem ók Suðurlandsveg á ofsahraða um helgina. Maðurinn var stöðvaður við Blautukvísl á Mýrdalssandi og mældist hraði bifreiðar hans 177 kílómetrar á klukkustund. Leyfi- legur hámarkshraði á þjóðvegi eitt er 90 kílómetrar á klukkustund. Að sögn lögreglu gaf maðurinn enga skýringu á hraðanum en maðurinn verður sviptur ökurétt- indum. ■ Bretland: Bólusetning gegn fíkni- efnum VÍSINDI Breska ríkisstjórnin er að hugleiða róttæk áform um að bólu- setja börn gegn því að ánetjast fíkniefnum þegar þau eldast, að því er breska dagblaðið The Independent on Sunday segir frá. Bólusetningin kæmi í veg fyrir hættuna á því að börn verði reyk- ingamenn eða fíkniefnaneytendur síðar meir. Bólusetningin mun koma í veg fyrir vellíðunartilfinn- inguna sem fylgir notkun fíkni- efna og gerir það því tilgangslaust að neyta efnanna. Lyfin sem notuð verða í bólu- setningunni eru í þróun hjá lyfja- fyrirtækjum og verða sett á mark- að innan tveggja ára. Bresk yfirvöld hafa sett á lagg- irnar sérstakan verkefnishóp til að rannsaka hvaða nýjar leiðir megi fara til þess að nota uppgötv- anir í vísindum í þágu baráttunnar gegn vímuefnanotkun. Breskt líftæknifyrirtæki, Xenova, hefur gert tilraunir á bólusetningu gegn kókaínneyslu. Í þeim kom í ljós að um þrír af hverjum fimm sjúklingum voru enn lausir við kókaínfíknina að þremur mánuðum liðnum. ■ SÚDAN,AP Eftir nokkura daga hlé á hjálparstarfi hafa hjálpar- stofnanir aftur komið upp mat- arbirgðum í tveimur búðum fyrir súdanska flóttamenn í ná- grannaríkinu Tsjad. Á svæðinu hafast fjörutíu þúsund súdansk- ir flóttamenn við eftir að leið- togar búðanna hétu því að tryggja öryggi þeirra en hjálp- arstarfi þar var hætt í nokkra daga vegna ofbeldis. Oxfam- hjálparsamtökin ætla að senda flugvél með þrjátíu tonn af vatni og hreinlætisvörum til Darfur. Alls hafa rúmlega ein milljón manna flúið heimili sín í Darfur- héraði í Súdan í kjölfar átaka og ofbeldis þar en í síðasta mánuði slitnaði upp úr friðarviðræðum þegar leiðtogar uppreisnar- manna gengu út af fundinum. Leiðtogi þeirra hefur lýst því yfir að samtök hans muni ekki eiga viðræður við ríkisstjórn landsins fyrr en hún afvopni arabíska vígamenn sem grunað- ir eru um manndráp í Darfur. ■ BRUNI Eldri kona lést eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í húsi við Sundlaugaveg snemma í gærmorgun. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SAKNAÐ Í ÞRJÁR VIKUR Nú hefur Sri Rahmawati verið saknað í réttar þrjár vikur. Engin skipuleg leit að henni fór fram um helgina. Fyrrverandi sambýlismaður hennar verður yfirheyrður í dag. NEYÐ Hjálparstofnanir hafa nú aftur komið upp matarbirgðum í tveimur búðum fyrir súdanska flóttamenn í nágrannaríkinu Tsjad. Súdanskir flóttamenn: Hjálparstofnanir snúa aftur Engin skipuleg leit um helgina Engin skipuleg leit fór fram að Sri Rahmawati um helgina. Sri hefur verið saknað í réttar þrjár vikur. Fyrrverandi sambýlismaður hennar yfirheyrður í dag. Hann unir úrskurði um framlengingu gæsluvarðhalds. 02-03 25.7.2004 22:44 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.