Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 12
12 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR
SUMARHITAR
Sumarhitar geisa nú í Kína og notaði þetta
par tækifærið til þess að kæla sig í lindinni
Baotu í borginni Jinan í Shandong-hérað-
inu í austurhluta Kína. Tugir linda eru í
Jinan, sem einnig gengur undir nafninu
„borg lindanna“.
Fjöldi fólks sótti skipulagðar hátíðir um helgina:
Fóru friðsamlega fram
FERÐALÖG Fjöldi fólks lagði land
undir fót um helgina og umferðin
í átt til Reykjavíkur var farin að
þyngjast verulega seinni partinn í
gærdag að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi og á Selfossi.
Hundrað ára afmælishátíð síld-
veiða var haldin hátíðleg á Siglu-
firði um helgina og var forseti Ís-
lands meðal gesta. Talið er að
1.500 til 2.000 gestir hafi tekið
þátt í afmælishátíðinni og öll
tjaldstæði voru full í bænum. Há-
tíðin fór að mestu friðsamlega
fram að sögn lögreglu sem stöðv-
aði þó einn ökumann grunaðan um
ölvun við akstur.
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði
og Vopnaskak á Vopnafirði drógu
einnig að sér þúsundir gesta um
helgina. Hátíðirnar fóru mjög vel
fram að sögn lögreglu.
Þá fylltist tjaldstæðið á Hólma-
vík um helgina og talsverð ölvun
var í bænum á laugardagskvöld.
Lögregla þurfti að hafa afskipti af
nokkrum aðilum vegna ölvunar og
ryskinga manna á milli. Tjald-
stæði Víkur í Mýrdal og Kirkju-
bæjarklausturs fylltust einnig en
þar fór allt friðsamlega fram.
Flokksþing bandaríska Demó-
krataflokksins hefst í Boston í
dag. Á flokksþinginu verður John
Kerry útnefndur sem forseta-
frambjóðandi flokksins í kosning-
unum í nóvember og John Ed-
wards, sem háði prófkjörsbaráttu
við Kerry um útnefninguna, verð-
ur tilnefndur sem varaforseta-
efni. Það er því lítil spenna um
hina formlega útkomu landsfund-
arins.
Uppgrip og öryggisgæsla í
Boston
Flokksþing demókrata er hald-
ið í íþróttahöllinni Fleet Center,
heimavelli körfuknattleiksliðsins
Boston Celtics. Í borginni er ör-
yggisgæsla með því mesta sem
sést hefur og hefur bæði flug- og
bílaumferð tafist mjög af þeim
sökum. Bandarískir embættis-
menn hafa áhyggjur af því að
hryðjuverkamenn muni líta á
flokksþingin sem tækifæri til að
láta til skarar skríða. Borgin nýt-
ur þó einnig góðs af flokksþinginu
þar sem mikil uppgrip hafa orðið í
rekstri veitingahúsa og hótela í
kjölfar þess að tugþúsundir gesta
og fjölmiðlamanna koma til að
fylgjast með þinghaldinu.
Búist við fylgisaukningu
Þrátt fyrir að helstu niðurstöð-
ur fundarins séu fyrirséðar er
talið að flokksþingið hafi mikla
þýðingu í kosningabaráttunni.
Mikil og tiltölulega jákvæð fjöl-
miðlaumfjöllun um landsfundi
flokkanna hefur venjulega haft
þau áhrif að auka tímabundið við
fylgi frambjóðendanna. Hvort
slík tímabundin uppsveifla komi
til með að hafa varanleg áhrif er
óvíst enda hafa repúblikanar
tækifæri til að einoka fjöl-
miðlaumfjöllunina þegar þeirra
flokksþing verður haldið í lok
ágúst í New York.
Flokksþingið snýst um
ímynd
Flokksþing bandarísku stjórn-
málaflokkanna voru eitt sinn vett-
vangur mikilla átaka og á sjöunda
áratuginum áttu þau til að leysast
upp í slagsmál. Nú er þetta mikið
breytt. Flokksþing á kosningaári
þjóna þeim eina tilgangi að gefa
forsetaframbjóðanda flokksins
tækifæri til þess að styrkja stöðu
sína meðal almennings og er mik-
ið lagt upp úr hátíðleika og glæsi-
leika og allt gert til að byggja upp
stemmningu og eftirvæntingu
þegar frambjóðandinn stígur á
stokk á lokadegi flokksþingsins.
Fram að því munu þinggestir og
áhugasamir áhorfendur fá vænan
skammt af ræðuhöldum þar sem
frambjóðandinn er lofaður. Meðal
þeirra sem halda ræður í flokks-
þinginu eru Bill og Hillary Clint-
on, Jimmy Carter, Al Gore og
Madeline Albright. Þá munu
eiginkonur Kerry og Edwards
halda ræður og tvær dætur
Kerry.
Kerry enn óþekktur
Þrátt fyrir mikinn áhuga á
komandi kosningum hafa
demókratar áhyggjur af könnun-
um sem sýna fram á stór hluti
kjósenda veit ekki hver John
Kerry er – og þeir sem vita hver
hann er hafa fæstir hugmynd um
hvaða stefnu hann stendur fyrir í
pólitík. Vinsældir hans í skoðana-
könnunum eru fyrst og fremst
raktar til megnrar óánægju með
núverandi forseta en ekki til al-
mennrar aðdáunar á Kerry. Þessi
staða er ekki talin ásættanleg fyr-
ir Kerry nú þegar styttist í kosn-
ingar og verður mikil áhersla lögð
á það á flokksþinginu að gera
skilaboð Kerry skýrari og afdrátt-
arlausari en hingað til. Helsta
gagnrýnin á Kerry, bæði frá and-
stæðingum hans og samherjum,
er að afstaða hans til mála snúist
eftir vindi og að hann eigi sér ekki
trygga hugmyndafræðilega fót-
festu. Þá þykir Kerry ekki vera
sérlega góður ræðumaður. Í tíma-
ritinu The Economist hefur því
verið haldið fram að Kerry hafi
lag á því að láta einfaldar hug-
myndir hljóma flóknar – en gagn-
stæðir hæfileikar eru venjulega
taldir frambjóðendum til heilla.
Gæti tapað með meirihluta
atkvæða
Eins og sakir standa hefur
John Kerry nauma forystu á
George Bush í skoðanakönnunum
en sé tekið mið af kosningareglun-
um blasir önnur mynd við.
Kosningakerfið í Bandaríkjun-
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Bakveikur ferðamaður
kallaði á aðstoð :
Borinn eins
kílómetra leið
á hálendinu
BJÖRGUN Björgunarsveitir komu
bakveikum ferðamanni til að-
stoðar skömmu fyrir miðnætti í
fyrrinótt. Ferðamaðurinn hafði
fest í baki og gat því ekki haldið
ferð sinni áfram en hann var
staddur skammt frá Hrafn-
tinnuskeri í Landmannalaugum.
Átta björgunarsveitarmenn
frá Hellu fóru á vettvang og
þurftu að bera ferðamanninn
um eins kílómetra leið á börum
áður en komið var að björgunar-
sveitarbílum. Ferðamaðurinn
komst undir læknishendur. ■
ELLEFU ÁRA MEÐ LOFTBYSSU
Lögreglan í Keflavík lagði hald á
loftbyssu sem ellefu ára drengur
var að leika sér með laust eftir
hádegi í gær. Drengurinn var að
skjóta plastkúlum úr byssunni
þegar lögreglu bar að. Ekki var
hætta á ferðum að sögn lögreglu.
STAL SMÁMYNT ÚR SLIPPSTÖÐ
Brotist var inn í slippstöðina í
Njarðvík um helgina og stolið
þaðan smámynt. Tilkynnt var um
atburðinn til lögreglu seinnipart-
inn í gær og gekk þjófurinn enn-
þá laus þegar rætt var við lög-
reglu í gær.
SÍLD Á SIGLUFIRÐI
Haldið var upp á hundrað ára afmæli
síldveiða á Siglufirði um helgina. 1.500
til 2.000 tóku þátt í hátíðarhöldunum
að sögn lögreglu.
M
YN
D
/J
Ó
N
Á
R
M
AN
N
H
ÉÐ
IN
SS
O
N
ÞJÓÐRÆKNIR FRAMBJÓÐENDUR
John Kerry og John Edwards verða valdir sem frambjóðendur Demókrataflokksins í forsetakosningunum. Búast má við miklum dýrðum í
Boston þegar flokkurinn gerir tilraun til að nýta sér kastljós fjölmiðlanna til að auka stuðning við frambjóðendurna.
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FLOKKSÞING DEMÓKRATA-
FLOKKSINS Í BANDA-
RÍKJUNUM
Hvert orð skipulagt
Demókratar hefja flokksþing sitt í dag. Mikið er í húfi fyrir demókrata því þrátt fyrir að John Kerry
hafi meiri stuðning í skoðanakönnunum er staða Bush sterkari þegar hvert fylki er skoðað fyrir sig.KÖNGULÓARMAÐURNN
Var á ferðinni á skýjakljúf í Jakarta í gær og
vakti mikla athygli áhorfenda.
Franski ofurhuginn
enn á ferð:
Klifraði upp
26 hæðir
JAKARTA Franski „köngulóarmað-
urinn“ Alain Robert prílaði upp
26 hæða skýjakljúf í Jakarta í
gær án þess að nota nokkurn ör-
yggisbúnað. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Robert klifrar
upp háar byggingar, því hann
hefur stundað þessa iðju í mörg
ár og meðal annars farið upp
Eiffelturninn í París og World
Trade Center í New York.
Robert hefur stundum komist
í hann krappan eins og til dæm-
is í Chicago fyrir fimm árum
þegar hann var kominn tuttugu
hæðir upp og dimm þoka skall á.
Hann slapp þó með skrekkinn.
Frakkinn hefur margsinnis
verið handtekinn af lögreglu
fyrir uppátæki sín. ■
12-13 25.7.2004 21:57 Page 2