Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 15
15MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 um hafi grunur vaknað um mansalsmál hér. Þau mál segir hann ekki einskorðast við súlu- dansstaði heldur hafi þau einnig snúið verkafólki sem hingað sæk- ir vinnu. Til að talið sé að um mansal sé að ræða þarf fólkið sem smyglað er á milli landa að vera beitt bæði blekkingu og nauðung. „Mann- eskjan þarf að greiða einhverjum til að komast til landsins og svo jafnvel hluta af launum sínum um ókomin ár. Þarna er verið að not- færa sér neyð viðkomandi. Þessu er verið að reyna að berjast gegn,“ segir Jóhann og bætir við að smygl á fólki og mansal gefi af sér svipaðar tekjur fyrir glæpa- hópa og vopna- og eiturlyfja- smygl. „Okkar afstaða er sú að sýna ekkert umburðarlyndi í þessum málum. Það mátti gjarnan spyrjast að hér væri tekið á þess- um málum af fullri hörku og í því felst kannski besta verndin fyrir íslenskt samfélag,“ segir hann og telur ýmislegt benda til þess að stefnan í málaflokknum hafi skil- að nokkrum árangri. „Núna hafa liðið nokkuð margir mánuðir án þess að svona mál hafi komið upp. Slíkur árangur næst vitanlega ekki nema með sterkri liðsheild og hæfu starfsfólki. Á alþjóðavísu heldur vandamálið samt áfram að vaxa.“ Ósvífnin á engin takmörk Þrátt fyrir framgangshörku í garð smyglara dregur ekki úr mála- fjölda þegar kemur að fíkniefn- um, en þar segir Jóhann dálítið önnur lögmál eiga við. „Þar erum við með eftirspurnarvanda og á meðan ekki tekst að draga úr eft- irspurninni með uppfræðslu og áróðri komumst við ekki fyrir vandann. Tolla- og lögregluyfir- völd munu aldrei ein og sér geta leyst þann vanda. Þetta er þjóð- félagsvandamál sem snýr að fjöl- skyldunni, skólum og samfélags- uppbyggingunni sem við búum við,“ segir hann en telur engu að síður að vel gangi að stemma stigu við vandanum. „Okkur tekst ítrekað að uppræta smyglhringi og þeir þurfa stöðugt að breyta um aðferðir. Þarna kemur líka til mjög góð samvinna okkar við fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Skýrasta dæmið um árangur okkar er þessi fjöldi er- lendra burðardýra, en hann er til- tölulega nýtilkominn.“ Hann segir að fyrst hafi orðið vart við burðar- dýrin á seinni hluta árs 1999 og þá eingöngu Íslendinga. „Fljótlega var hins vegar landsliðið í fíkni- efnasmygli komið á bak við lás og slá. Þá þurfti greinilega að beita öðrum aðferðum og bera tók á er- lendum burðardýrum.“ Jóhann segir aðferðir smyglara sífellt að breytast og fátt sem komi orðið á óvart í þeim efnum. „Ósvífni og óheilagleiki þessara manna á sér engin takmörk og þeir tilbúnir að ganga mjög langt í að notfæra sér neyð annarra.“ Jóhann segir dæmi um að í einu máli hafi kom- ið upp mjög sterkur grunur um að ungabarn hafi verið notað til að smygla eiturlyfjum, en þó ekki látið bera þau innvortis. „Erlendis flytja menn jafnvel fíkniefni milli landa innan í dauðum gæludýrum og í líkkistum. Þetta eru sömu glæpahóparnir og skaffa efni hingað til lands. Hví skyldu þeir ekki beita sömu aðferðum hér?“ Á gistiheimili suður með sjó dvel- ja nokkrir einstaklingar og bíða úrskurðar Útlendingastofnunar um hvort þeir fái dvalarleyfi sem flóttafólk. Þar á meðal eru Gift Anthony og Desmond Egbe frá Nígeríu. Gift er komin fimm mán- uði á leið með barn þeirra Desmonds. Á sama stað eru hjón- in Kantharaj og Francisca og börn þeirra Shanjesh, fimm mánaða, og Shantosh, þriggja ára. Þau hafa öll verið hér í um fimm mánuði, með- an mál þeirra eru til skoðunar hjá Útlendingastofnun. Kantharaj segir biðina farna að segja til sín. „Við höfum ekkert við að vera allan daginn og meg- um ekki vinna því okkur vantar alla pappíra.“ Fólkið er allslaust og hefur engar tekjur. „Við fáum afhent matvæli, en ekki peninga,“ segir Kantharaj. „Ég get ekki einu sinni keypt sælgæti til að gleðja litla strákinn minn,“ segir hann og bætir við að sælgæti fylgi ekki með í matarsendingunum. Gift og Desmond lentu á ein- hverjum þvælingi um heiminn og kunna ekki almennilega skýringu á því hvernig þau bar hingað til lands. Desmond segir þau hafa flúið fjölskyldur sínar og ætt- bálkasiði í Nígeríu. „Við vildum giftast, en til að það gæti orðið átti að umskera Gift,“ segir hann. Kantharaj segist hins vegar hafa orðið fyrir barðinu á pólitísk- um ofsóknum heima fyrir. „Við borguðum 50 þúsund dollara til að komast til Kanada,“ segir hann. Hér ætluðu þau hjónin að hitta manninn sem sá um för þeirra og fá hjá honum ferðaskilríki en hann lét aldrei sjá sig. Í framhald- inu leituðu þau hælis hér, þá með yngra barnið átta daga gamalt. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, seg- ir flóttamannasamning Samein- uðu þjóðanna tryggja fólki mjög mikil réttindi um leið og það leitar pólitísks hælis. „Við köllum strax til Rauða krossinn, fengnir eru túlkar o.s.frv.“ Hann segir þó langflesta vera að misnota flótta- mannasamninginn í leit að betra lífi. „Hægt er að hafa ákveðna samúð með því, en um leið er fólk- ið að misnota þá mikilsverðu vernd sem flóttamannasamning- urinn felur í sér,“ segir hann. HÆLISLEITENDUR BÍÐA SVARS ÚTLENDINGASTOFNUNAR Gift og Desmond frá Nígeríu og hjónin Kantharaj og Francisca ásamt börnum sínum Shanjesh, fimm mánaða, og Shantosh, þriggja ára, deila gistiaðstöðu með eldhúsi og baði í Reykjanesbæ. NÝKOMINN ÚR BAÐI Shantosh litli brá sér í bað meðan faðir hans sat fyrir svörum blaðsins. Fram kom að honum finnst sárt að hafa ekki tök á að kaupa eitthvað smálegt handa drengnum. Fr ét ta bl að ið /R ób er t Aðgerðalaus í fimm mánuði Hælisleitendur geta þurft að bíða lengi eftir úrskurði, kalli mál þeirra á mikla rannsókn. Á meðan er fólkinu komið fyrir tekjulausu á gistiheim- ilum en fær afhent matvæli. Fólkinu leiðist og hefur ekkert við að vera. Aðgerðaáætlun: Starfshópur í burðarliðnum Mansal Í haust stendur til að stofna starfshóp með fulltrúum þriggja ráðuneyta sem vinna að að- gerðaáætlun gegn verslun með fólk. Starfshópurinn er stofnaður í framhaldi af alþjóðasamstarfi gegn verslun með mansal og í hon- um verða fulltrúar félagsmála-, dómsmála- og utanríkisráðuneytis. Sesselja Árnadóttir, skrifstofu- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, segir að eftir herferð Norðurlanda og Eystrasaltslanda gegn mansali sem hófst árið 2002 hafi verið sett- ur á stofn samstarfshópur ráðu- neytisstjóra landanna átta. „Sá hópur hefur nú fundað þrisvar og rætt hvernig best er að vinna í þessum málum,“ sagði hún og bætti við að meðal þess sem unnið væri að sé öruggri heimsending fórnarlamba mansals. Sesselja vonaðist til að starfs- hópur ráðuneytanna þriggja hefji störf í haust. Meðal hluta sem litið yrði á sagði hún vera möguleika á að uppfræða útlendinga sem hing- að sækja vinnu um réttindi sín og skyldur. Í viljayfirlýsingu ráð- herra Norðurlandanna og Eystra- saltsríkjanna frá því í apríl 2003 kemur fram að hrinda eigi í fram- kvæmd aðgerðaáætlun gegn man- sali eigi síðar en árið 2005. Dublinarsamningur: Fækkar flóttafólki Jóhann Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Útlendingastofnunar, segir tiltölulega fáa bíða úrskurðar um dvalarleyfi hjá embættinu. „Það hefur aðeins verið að dragast sam- an í þessu. Flestir sækja um eftir að þeir eru komnir inn í landið og þá gjarnan hjá lögreglunni í Reykja- vík,“ segir hann. Jóhann segir nokkrar leiðir koma til greina við að fá landvist þegar fólk sækir um samkvæmt flóttamannasamningn- um. „Helst er þá að fólk fái landvist af mannúðarástæðum,“ segir hann, en á seinustu árum hefur aðeins einn fengið viðurkennda stöðu sem flóttamaður. „Það er mjög fátítt að hingað komi fólk beint frá einhverj- um svæðum þar sem það hefur átt í vanda,“ bætir hann við. Jóhann segir að oftast sé fólki vísað aftur til annars Evrópulands í samræmi við ákvæði svokallaðs Dublinarsamnings. „Hann er samn- ingur Schengen- og Evrópusam- bandsríkja um að menn skuli fá meðhöndlun á sinni hælisumsókn í einu ríki og aðeins einu ríki,“ segir hann og segir ríkið sem ábyrgt sé fyrir flóttafólkinu sé þar sem fólkið fékk áritun, kom inn á svæðið eða lagði fyrst fram umsókn um hæli. Hér heima vinnur Rauði kross- inn að málefnum hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld og í um- boði Flóttamannastofnunar Samein- uðu þjóðanna (UNHCR) og sam- kvæmt samningi við hana, en umsjá hælisleitenda hefur verið í forsjá Reykjanesbæjar síðan um áramót, samkvæmt samningi bæjarins við dómsmálaráðuneytið. Til að teljast flóttamaður þarf umsækjandi að uppfylla skilyrði alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna þar sem fram kemur að flóttamaður sé hver sá sem: „...af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd þess lands; eða þann sem er ríkisfangslaus, og er utan þess lands, þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur, vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki, vegna slíks ótta, hverfa aftur þangað.“ Öryggishandbók Landsbjargar og Esso: Fólk brennir sig á einföldum hlutum SLYSAVARNIR Í Öryggishandbók fyrir ferðalanga sem nýlega kom út er farið yfir helstu ör- yggisatriði og hluti sem komið geta upp á ferðalögum fólks um landið. Valgeir Elíasson, upplýsinga- fulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, sem gefur bókina út, segir menn þar á bæ hafa séð að tími sé til kominn að gera eitt- hvað fyrir eigendur tjaldvagna og fellihýsa. „Við heyrum af og til af óhöppum fólks á ferðalögum og stundum er fólk að brenna sig á einföldum hlutum,“ segir hann. Í bókinni, sem einungis er 23 síður, er að finna kort sem merkt eru inn 198 tjaldsvæði víða um land, auk upplýsinga um helstu neyðarviðbrögð við umferðar- slysum og öryggisatriði varðandi umgengni við gas. „Bókin er lítil og nett og pass- ar vel í hanskahólfið,“ segir Valgeir og bætir við að ritið sé gefið út í góðri samvinnu við Esso sem borið hafi kostnað af útgáfunni og sjái um dreifingu ritsins á bensínstöðvum sínum. „Innihald og framsetning efnis er hins vegar frá okkur komið,“ segir hann. ■ ÖRYGGISHANDBÓK Aftast í nýrri handbók Landbjargar er að finna skemmtilega leiki sem hægt er að fara í með fjölskyldunni í bílferðum. Leitað á Laugarvatni: Fannst í Reykjavík LEIT Maður sem leitað var að í grennd við hjólhýsasvæðið á Laugarvatni fannst í Reykjavík skömmu eftir að lýst var eftir honum í útvarpi. Átta björgunarsveitarmenn og sporhundur tóku þátt í leitinni að manninum sem hófst um hádegis- bilið í gær. Hafði þá ekki spurst til mannsins síðan seinni partinn á laugardag við hjólhýsasvæðið. Skömmu eftir að lýst var eftir manninum í útvarpi barst þó ábending um að maðurinn væri heill á húfi. Hann var þá kominn til Reykjavíkur. ■ FLÓÐ Þessi fjölskylda beið eftir bát til þess að flytja sig af flóðasvæðum í Bangladess en flóð í Suður-Asíu síðastliðnar vikur hafa kostað hundruð lífið. Flóðin virtust í rénun í lok síðustu viku en hætta á sjúkdómafar- öldrum er þó ennþá fyrir hendi. 14-15 Fréttaúttekt 25.7.2004 21:15 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.