Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma Við keyrum of hratt. Stundum er það vegna þess að við erum að flýta okkur og stundum vegna þess að okkur finnst það skemmtilegt. Og stundum er það einfaldlega vegna þess að okkur líður þannig. Hækkum jafnvel í tónlistinni og finnum fyrir einhverri sérkennilegri frelsistilfinningu. Okkur finnst ekkert mál að keyra of hratt. Við samþykkjum það sem eðlilegan hlut, eitthvað sem allir gera. Réttlætum það meira að segja með því að hraðatakmörkin séu of lág. Við keyrum of hratt. Og okkur finnst það allt í lagi. Þessi hugsun kostar sum okkar lífið. HÆGÐU Á ÞÉR Frelsum Bobby Árið 1972 stóð Bobby Fischer á svið-inu í Laugardalshöll, hylltur af þúsundum. Hann var 29 ára og lífs- draumur hans var orðinn að veruleika. Hann hafði brotist til æðstu metorða í skákheiminum og gjörsigrað alla keppinauta sína. Hann var heimsfræg- ur og vellauðugur. Framtíðin virtist sannarlega björt og fögur. Einvígið í Reykjavík 1972 kom Íslandi á heimskort fjölmiðlanna. Hið 28 ára gamla lýðveldi norður í Atlants- hafi fékk umfjöllun og kynningu sem blessaðir markaðsfræðingarnir eru enn að reyna að verðleggja. Og í kjölfar einvígisins varð skákbylgja um allt Ísland. Við eignuðumst á næstu árum fjölda ungra og sterkra skákmanna, sem komu Íslandi í fremstu röð. Árið 2004 situr Bobby Fischer í japönskum fangabúðum. Hann er 61 árs og hefur síðustu tólf ár verið útlagi. Hans bíður framsal til Bandaríkjanna og þar á hann yfir höfði sér tíu ára fangelsi. Hver er glæpur Fischers? Hann er sá að hafa árið 1992 snúið aftur að skák- borðinu, eftir tuttugu ára fjarveru, og teflt einvígi við Boris Spasskí í Júgóslavíu. Þar með braut Fischer samskiptabann Bandaríkjanna á Júgóslavíu, vegna stríðsins á Balkan- skaga. Látum liggja milli hluta hvort það hafi verið glæpur að tefla skák í Júgóslavíu árið 1992. En nú er Júgóslavía ekki lengur til og stríðið á Balkanskaga til- heyrir liðinni öld. Og þess vegna skyldi maður ætla að bandarísk stjórnvöld létu málið falla niður, og rifjuðu upp í leiðinni að einu sinni var Bobby Fischer gulldrengur og hetja. Fyrir nokkrum árum stofnuðu Banda- ríkjamenn samtök til að frelsa roskinn íslenskan háhyrning. Milljónum dollara var eytt til þess að búa skepnunni áhyggjulaust ævikvöld. Nú ættu Ís- Íslendingar að stofna samtök til að berjast fyrir frelsi bandarísku hetjunn- ar Bobby Fischer. Og við eigum að bjóða þessum ein- mana snillingi að koma til Íslands og eiga hér griðastað í ellinni. Við eigum að sýna að hér býr langminnug þjóð, sem kann að meta Bobby Fischer og allt það sem hann hefur gert til að auðga tilveru okkar með snilld sinni. HRAFNS JÖKULSSONAR BAKÞANKAR 56 (32) Bak 25.7.2004 21:22 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.