Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 10
10 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR
HUSSEIN DEYJANDI?
Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks,
fékk heilablóðfall í gær að sögn sænska
netmiðilsins Expressen. Samkvæmt arab-
ískum blöðum er einræðisherrann fyrrver-
andi dauðsjúkur og á skammt eftir, segir á
vefnum.
Lögregla í Noregi ráðþrota:
Tréspíri drepur fjölda manns
OSLO Norska lögreglan leitar nú
dauðaleit að 5.000 lítrum af tré-
spíra sem hún telur að sé í umferð
í Noregi. 31 árs kona lést á sjúkra-
húsi á laugardagskvöld eftir að
hafa drukkið spírann, en þetta er
þriðja dauðsfallið í ár sem rekja
má til metanoleitrunar í spíra.
Undanfarið eitt og hálft ár hafa 14
manns látist í Noregi eftir neyslu
á spíranum og óttast er að mun
fleiri muni deyja ef ekki tekst að
koma höndum yfir smyglarana.
Lögreglan hefur tvo menn í
haldi grunaða um að hafa smyglað
spíranum frá Svíþjóð. Annar er 75
ára gamall Norðmaður sem hefur
stundað smygl á spíra síðan árið
1947 og haft upp úr því umtals-
verðar fjárhæðir. Gamli maður-
inn hefur ekki verið samvinnufús
við lögreglu, en hann mun hafa
tappað spíranum á flöskur, límt á
þær falska miða og jafnvel inn-
siglað þær.
Lögreglan í Noregi hefur sent
út viðvörun til fólks að láta ekki
inn fyrir sínar varir drykki sem
það veit ekki hvaðan koma. ■
Áfengisauglýsingar
á mjög gráu svæði
Lýðheilsustöð hefur sent inn fimm kærur frá áramótum vegna meintra brota á banni
við áfengisauglýsingum. Flestar auglýsingar á gráu svæði. Ákæruvaldið vill skýrara
lagaákvæði um auglýsingabannið.
Auglýsingar á áfengi hafa verið
nokkuð áberandi í fjölmiðlum síð-
ustu vikur. Svo virðist sem marg-
ar þessara auglýsinga séu á gráu
svæði en auglýsingar á áfengi eru
bannaðar lögum samkvæmt. Lýð-
heilsustofnun hefur sent lögregl-
unni í Reykjavík fimm kærur á
þessu ári vegna auglýsinga á
áfengi sem stofnunin telur fara í
bága við bannið.
Hildur Björg Hafstein, verk-
efnisstjóri áfengis- og vímuefna-
varna hjá Lýðheilsustöð, segir það
áhyggjuefni hve mjög auglýsing-
unum er beint að ungu fólki.
„Þetta eru oft auglýsingar með
ungu fólki í og þær senda þau
skilaboð til ungs fólks að það sé
„svalt“ að neyta áfengis,“ segir
Hildur.
Egill Stephenssen, saksóknari
hjá Lögreglunni í Reykjavík, seg-
ir að málin séu nú á borði lögregl-
unnar. „Þessi mál eru í rannsókn
en það er ekkert málanna komið á
það stig að hægt sé að ákvarða um
hvort ákært verður í einhverju
máli. Það er tekið á þessum
málum,“ sagði Egill.
Tjáningarfrelsi og heilsu-
vernd vegast á
Bann við auglýsingum á áfengi
hefur nokkrum sinnum komið til
kasta dómstóla og þá hefur reynt á
hvort bannið standist ákvæði
stjórnarskrár um tjáningarfrelsi. Í
dómi Hæstaréttar frá 25. febrúar
1999 kemst rétturinn að þeirri nið-
urstöðu að núgildandi ákvæði 20.
greinar áfengislaga, sem kveður á
um bann við áfengisauglýsingum,
sé hvorki brot á stjórnarskrá né
Mannréttndasáttmála Evrópu.
Í dóminum var framkvæmda-
stjóri Ölgerðar Egils Skallagríms-
sonar ákærður fyrir brot á áfeng-
islögum með því að að hafa látið
birta auglýsingar á áfengum bjór
af tegundinni „Egill Sterkur“.
Héraðsdómari sýknaði fram-
kvæmdastjórann með þeim rökum
m.a. að bann við auglýsingum á
áfengi væri andstætt 73. grein
stjórnarskrárinnar um tjáningar-
frelsi.
Hæstiréttur sneri hins vegar
við niðurstöðu héraðsdóms og
sakfelldi framkvæmdastjórann
fyrir brot á 20. grein áfengislaga.
Féllst rétturinn ekki á að beiting
lagagreinarinnar gagnvart aug-
lýsingunum væri brot á tjáningar-
frelsinu. Þau sjónarmið sem bann-
ið væri reist á, þ.e. að stuðla gegn
misnotkun áfengis, réttlættu
skerðingu á tjáningarfrelsinu.
Enginn dómur hefur fallið í
Hæstarétti um þetta efni síðan og
engar breytingar hafa verið
gerðar á viðkomandi lagaákvæð-
um. Dómurinn endurspeglar því
gildandi rétt í landinu.
Langflestar auglýsingar á
gráu svæði
Egill Stephenssen segir að ákæru-
valdið vinni út frá þessum dómi
en því sé engu að síður mikill
vandi á höndum því langflest til-
vik séu á gráu svæði. Egill tekur
undir með Hildi að lagaramminn
sé ekki nægilega skýr.
„Það mætti örugglega skýra
ákvæðið betur. Sérstaklega
þyrfti að skilja á milli umbúða
fyrir áfengan bjór og léttöls,
þannig að hægt væri að þekkja
vöruna í sundur á umbúðunum.
Það er augljóslega reynt að hafa
umbúðirnar nákvæmlega eins.
Það er greinilega mikil óánægja
hjá framleiðendum og söluaðil-
um áfengis með áfengisbannið.
Þeir virðast sjá sér hag í því að
vera á þessu gráa svæði, en ég
held að almenningi finnist þetta
ótækt,“ segir Egill.
Gráa svæðið sem Egill vísar
til er þegar fjallað er um áfengi
án þess að það sé beinlínis aug-
lýst. Það er til dæmis í margvís-
legum matar- og vínkynningum í
sjónvarpi og dagblöðum. Ólíkt
því sem gildir um tóbak er ekki
óheimilt að ræða um áfengi með
jákvæðum hætti opinberlega.
Mörkin geta hins vegar verið
óljós og að mati Hildar Bjargar
Hafstein er oft enginn vafi í
hennar huga að um auglýsingar
er að ræða. „Við höfum hins
vegar ekki sent inn kæru í öllum
tilvikum, því okkur er sagt að
það þýði ekki að ákæra fyrir
þetta,“ segir Hildur Björg.
Vinnuhópur Ríkislögreglu-
stjóra lagði til breytingar
Bann við áfengisauglýsingum
kom til umræðu á Alþingi 18.
febrúar síðastliðinn þegar
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, spurði Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra,
m.a. að því hvort ráðherra
hyggðist beita sér fyrir því að
leyfa áfengisauglýsingar að ein-
hverju marki eða skýra lögin og
gera þau skilvirkari þannig að
erfiðara væri að fara á snið við
þau. Svar dómsmálaráðherra var
að slík vinna stæði ekki yfir í
dómsmálaráðuneytinu og ráðu-
neytið hefði ekki sérstaklega í
hyggju að hefja hana á næstunni.
Í nóvember árið 2001 skilaði
vinnuhópur Ríkislögreglustjóra
um viðbrögð við áfengisauglýs-
ingum,af sér skýrslu. Þar er lagt
til að 20. grein áfengislaga, sem
kveður á um bann við áfengisaug-
lýsingum, verði endurskoðuð í
heild sinni með það að markmiði
að ákvæðið verði gert nákvæmara
og ótvíræðara. Vinnuhópurinn
taldi að greinin væri þannig úr
garði gerð að hætt væri við því að
auglýsendur freistuðu þess að
komast framhjá banninu.
Segir í skýrslu hópsins: „Al-
gengasti mótleikur auglýsenda við
banninu hefur undanfarið verið sá
að láta eina vöru auglýsa aðra. Láta
líta svo út sem verið sé að auglýsa
drykk, sem heimilt er að auglýsa,
en vera í raun að auglýsa áfengi.“
Lagði hópurinn til að framleiðend-
um og þeim sem dreifa áfengi yrði
gert ókleift að nýta vörumerki sem
eru eins eða mjög lík fyrir óáfengt
öl og áfengt. Ef marka má svör
dómsmálaráðherra á Alþingi 18.
febrúar síðastliðinn er ekki að
vænta slíkra breytinga á löggjöf-
inni á næstunni. ■
Mannfall í Súdan:
Blóðug átök
KAMPALA, AP Uppreisnarmenn sem
staðið hafa fyrir átökum í norður-
hluta Úganda síðastliðin átján ár
drápu tæplega fimmtíu súdanska
borgara í síðustu viku í suður-
hluta Súdans. Talið er að vel yfir
hundrað manns hafi verið drepnir
síðastliðnar þrjár vikur.
Yfirlýst markmið uppreisnar-
mannanna er að steypa forseta
Úganda af stóli. Talið er að þeir
hafi komið sér upp herstöðvum í
suðurhluta Súdans en þeir hafa
ítrekað ráðist gegn súdönskum
borgurum, aðallega í þeim til-
gangi að stela matvælum og börn-
um.
Drengir eru þjálfaðir til að
gegna hermennsku en stúlkurnar
eru misnotaðar kynferðislega. ■
ENN EITT SLYSIÐ Í TYRKLANDI
Fjórtán manns létust og sex slösuðust þeg-
ar lítil rúta og lest skullu saman á lestar-
teinum í vesturhluta Tyrklands í gær.
Enn lestarslys í Tyrklandi:
Fjórtán
manns létust
TYRKLAND,AP Fjórtán manns, þar af
fimm börn, létust þegar lítil rúta og
lest skullu saman á lestarteinum í
vesturhluta Tyrklands í gær. Rútan
var að aka yfir teinana og létust
allir þeir sem voru í henni en sex
manns í lestinni slösuðust. Þetta er
annað mannskæðasta slysið í Tyrk-
landi á nokkrum dögum en á
fimmtudag fór hraðlest á leið til Ist-
anbul til Ankara út af sporinu með
þeim afleiðingum að þrjátíu og sjö
manns létu lífið. Sum lestarvegamót
í Tyrklandi eru ekki með rafrænu
merkjakerfi og því þurfa ökumenn
að kanna sjálfir hvort lest sé á leið-
inni áður en þeir aka yfir teinana. ■
Portúgal:
Skógareldar
í þjóðgarði
LISSABON, AP Portúgalskir slökkvi-
liðsmenn börðust í gær við skógar-
elda í þjóðgarði um fimmtíu kíló-
metra sunnan höfuðborgarinnar
Lissabon. Skógareldarnir ógnuðu
einnig heimilum í nágrenni þjóð-
garðsins.
Hitastigið í Portúgal hefur farið
í fjörutíu gráður síðustu daga auk
þess sem sterkir vindar auka út-
breiðslu eldanna. Garðurinn er
friðaður vegna dýralífs síns en þar
á fjöldi sjaldgæfra dýra heimkynni
sín. ■
FIMM KÆRUR
Hildur Björg Hafstein, verkefnisstjóri áfeng-
is- og vímuefnavarna hjá Lýðheilsustöð,
hefur sent inn fimm kærur vegna meintra
brota á banni við áfengisauglýsingum á
þessu ári.
BORGAR ÞÓR EINARSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
BANN VIÐ AUGLÝSINGUM
Á ÁFENGI
Á GRÁU SVÆÐI
Auglýsingar fjölmiðla þykja margar hverjar á mörkum þess að standast ákvæði áfengislaga sem
kveður á um bann við áfengisauglýsingum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
BANVÆNUM SPÍRA VAR TAPPAÐ Á
VENJULEGAR FLÖSKUR
5.000 lítrar af tréspíranum eru faldir ein-
hversstaðar í Noregi og lögreglan óttast að
þeir verði seldir almenningi. 17 hafa þegar
látist eftir neyslu spírans.
10-11 25.7.2004 22:48 Page 2