Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 14
14 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR Komur erlendra ferðamanna til landsins: Tæknilegir örðugleikar við talningu FERÐAMENN Tæknilegir örðugleik- ar tengdir talningu og þjóðernis- greiningu ferðamanna á Keflavík- urflugvelli, hafa orðið til þess að ekki liggja fyrir nýjar tölur. Þor- leifur Jónsson, hagfræðingur hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, segir hvimleitt að fá ekki nýjar tölur frá Ferðamálaráði Íslands með sama hætti og verið hefur undanfarin ár. Síðustu tölur sem fyrir liggja eru frá því í apríl. „Það urðu einhverjar tæknibilanir hjá þeim þannig að þeir hafa hvor- ki náð inn maí- né júnítölunum,“ segir Þorleifur. Hjá Ferðamálaráði Íslands fengust þær upplýsingar að þegar Keflavíkurflugvöllur var stækk- aður hafi bæst við tvö ný hlið, sem sett hafi talningarkerfið úr skorð- um. Þessa dagana er unnið að því hjá Ferðamálaráði að fara yfir komutölur ferðamanna inn í land- ið frá því í apríl og fram til dags- ins í dag. Að sögn er verið að safna saman upplýsingunum og standa vonir til að nýjustu tölur verði til reiðu í næstu viku. ■ Smyglarar leita sífellt nýrra leiða til að snúa á lögreglu og tollayfir- völd, segir Jóhann R. Benedikts- son, sýslumaður á Keflavíkur- flugvelli. Segir hann þá einu gilda hvort reynt sé að smygla fíkni- efnum, fólki, eða öðrum hlutum. Mansalsmál segir Jóhann á margan hátt vera erfið því oft á tíðum trúi fórnarlömb mansalsins því ekki hvaða örlög bíða þeirra. „Hvernig gerum við 18–19 ára ómenntaðri stúlku grein fyrir því að henni verði að öllum líkindum raðnauðgað á áfangastað áður en hún er neydd í vændi í landinu þar sem hún trúir að smjör drjúpi af hverju strái?“ spyr Jóhann og segir fórnarlömbum mansals oft- ast efst í huga að komast aftur heim til að gera aðra tilraun. „Við höfum ítrekað reynt að veita fórnarlömbunum skjól. Bæði dómsmálaráðuneyti og Útlend- ingastofnun voru tilbúin að að- stoða okkur við það. Málið er bara að fólkið er búið að stofna til skuldbindinga við glæpahringina. Það er þegar búið að kosta för þeirra yfir hálfan hnöttinn. Vegna alls þessa eru málin jafn flókin og raun ber vitni, en í grunninn snú- ast þau vitanlega um hvernig hægt er að vernda fórnarlömbin.“ Jóhann segir öll samskipti við fórnarlömb mansals sem hér hafa komið upp hafa verið mjög erfið vegna þess hve hér mættust ólík- ir menningarheimar. Hann segir þó hafa verið mikinn sigur að ná sakfellingu í þeim þremur málum sem saksótt hefur verið fyrir hér. Ekki var þó dæmt fyrir mansal heldur fyrir smygl á fólki, en refsiramminn fyrir brotin er áþekkur, sex ár fyrir smygl á fólki, átta ár fyrir mansal. Jóhann segist þó vongóður um að reynsl- an sem embættið hefur öðlast við rannsókn þessara mála komi að notum næst þegar slík mál rekur á fjörur embættisins. Okkar ábyrgð „Meginreglan í alþjóðlegri brota- starfsemi er að brotamenn eru teknir og dæmdir þar sem til - þeirra næst,“ segir Jóhann og bendir á að fjöldi Íslendinga hafi afplánað fíkniefnadóma erlendis. „Þetta er bara hluti af okkar ábyrgð sem ríki í samfélagi þjóð- anna,“ segir hann og bendir jafn- framt á að landið sé aðili að svokölluðum Palermo-samningi um baráttu gegn mansali og al- þjóðlegri brotastarfsemi frá árinu 2001. „Við vorum þannig eitt fyrsta ríkið í heiminum til að grípa inn í slík mál meðan fólk var á ferð milli landa.“ Þetta segir hann engu að síður hafa flækt rannsókn málanna því landið var þá hvorki upprunaland né áfanga- staður mansalsins. „Í þeim málum sem við höfum saksótt og fengið fólk dæmt hefur raunin verið sú að fólkið átti bara hér leið um. Það væri hins vegar ábyrgðarlaust að halda því fram að þessi brota- starfsemi nái ekki hingað til lands frekar en önnur,“ segir Jóhann og bætir við að í einhverjum tilfell- Írak: Fimm Kúrd- ar láta lífið ÍRAK Fimm manns, allir Kúrdar, létu lífið í borginni Kirkuk í norðurhluta Íraks í fyrrinótt, þar á meðal móðir og tveir synir hennar. Lögreglumaður og hermaður, báðir Írakar, létu einnig lífið þegar árásarmenn í bíl hófu skothríð á þá þegar þeir óku framhjá. Yfirmaður hjá lögregl- unni í Kirkuk segir að án efa hafi verið um að ræða sam- ræmdar aðgerðir glæpahópa sem tengist fyrrverandi stjórn- völdum þar í landi og sem vilji koma af stað illindum á milli araba og Kúrda. ■ T í m a r i t u m ú t i v i s t o g f e r ð a l ö g Vertu áskrifandi fyrir aðeins 2.495 kr. á ári Gönguferðir Skíðaferðir Fjallaferðir Jeppaferðir Vélsleðaferðir Vélhjólaferðir Fjallahjólaferðir Kajakferðir Fréttir og fróðleikur Feröasögur Búnaðarprófun Nýr búnaður Sérfræðingar svara Ljósmyndir Getraunir w w w. u t i v e r a . i s u t i v e r a @ u t i v e r a . i s S í m i : 8 9 7 - 1 7 5 7 Eina sinnar tegundar á Íslandi Í s l e n s k t t í m a r i t u m ú t i v i s t o g f e r ð a l ö g Fr ét ta bl að ið /T ei tu r ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON, BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING BARÁTTAN VIÐ SMYGLARA Fórnarlömb mansals trúa ekki sögum um örlögin sem bíða þeirra, segir sýslumaðurinn á Kefla- víkurflugvelli. Hann telur árangur hafa náðst bæði í baráttunni gegn smygli á fólki og fíkniefnum. Brotamenn dæmdir þar sem til þeirra næst FJÖLDI FÍKNIEFNAMÁLA Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI: 1998 15 1999 22 2000 57 2001 41 2002 65 2003 66 2004 35* * Frá ársbyrjun og fram í miðjan júní. Heimild: Sýslumannsembættið á Kefla- víkurflugvelli Jóhann R. Benediktsson sýslumaður segir umfang reksturs sýslumanns- embættisins vera mikinn, með yfir 130 fasta starfsmenn og um 200 manns yfir sumarmánuðina. „Þetta er hátt í 900 milljóna króna rekstur og verkefnin æði fjölbreytt,“ segir hann. FJÖLDI HÆLISLEITENDA: 1998 24 1999 24 2000 25 2001 53 2002 117 2003 80 (Heimild: Útlendingastofnun, utl.is.) HÆLISUMSÓKNIR Í FYRRA: Veitt dvalarleyfi 3 Synjanir 21 Umsóknir dregnar til baka 26 Umsókn enn í meðferð 7 Endursent samkv. alþjóðasamningum 23 Alls: 80 (Heimild: Útlendingastofnun, utl.is.) UPPRUNI HÆLISLEITENDA* Ríkisfang Fjöldi Albanía 10 Algería 3 Búlgaría 3 Eþíópía 2 Georgía 6 Hvíta-Rússland 3 Írak 2 Ísrael 1 Kasakstan 2 Kósóvó 1 Króatía 1 Líbanon 1 Líbía 1 Makedónía 1 Malí 1 Marokkó 1 Máritanía 1 Mongólía 8 Nígería 3 Rúmenía 40 Rússland 15 Slóvakía 4 Tsétsénía 1 Úkraína 4 Úsbekistan 3 Alls: 118 *Árið 2002, þegar fimm fengu dvalarleyfi. (Heimild: Ársskýrsla Útlendingastofnunar 2002) MÚR MÓTMÆLT Palestínskur mótmælandi stekkur yfir skurð sem notaður verður sem grunnur undir öryggismúr Ísraelsmanna í Jerúsal- em. Palestínumenn hafa mótmælt bygg- ingu múrsins kröftuglega. KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Við nýlega stækkun Keflavíkurflugvallar raskaðist talning á erlendum ferðamönnum til lands- ins. Síðustu tölur sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa fengið eru frá því í apríl. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R 14-15 Fréttaúttekt 25.7.2004 21:18 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.