Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 16
Tæpur meirihluti Innan raða helstu stuðningsmanna Si- Sivjar Friðleifsdóttur er fullyrt að Halldór Ágrímsson eigi erfiða daga í embætti forsætisráðherra missi Siv ráðherra- dóm. Fullyrt að hún verði Halldóri erfið og gangi í lið með þeim sem eru erfið- ir í þingflokknum og öðrum valdahópum flokksins. Siv er sögð hafa talsverðan stuðn- ing og þess vegna verði erfitt að gera hana að óbreyttum þingmanni. Kristinn H. Gunnarsson og Jón- ína Bjartmarz munu vera í stuðnings- mannaliði Sivjar. Jón í Tryggingastofnun Mikið er rætt hvort Jón Kristjánsson hætti sem ráðherra og taki við sem for- stjóri Tryggingastofnunar. Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, hefur víst opnað á þann möguleika að gefa starfið eftir. Þó aðeins ef Jón Krist- jánsson tekur við. Framsóknarmenn munu hafa reynt að fá Karl Steinar til að gefa starfið eftir fyrir Kristinn H. Gunnarsson, en á það féllst Karl Steinar ekki. Guðni þjófstartaði Davíð Oddsson mun ekki hafa glaðst mikið yfir yfirlýsingum Guðna Ágústs- sonar að loknum ríkisstjórnarfundi fyrir viku. Þá var Guðni talsmaður flokksins í stað Halldórs Ásgrímssonar sem var í fríi. Guðni greindi fjölmiðlum frá kúvendingunni í fjölmiðlamálinu áður en Davíð átti kost á því. Það er sagt hafa pirrað Davíð þar sem hann ætlaði sjálfur að „skúbba“ lendingu málsins. Hitt er svo ann- að að Guðna tókst mjög vel upp þá daga sem hann var talsmaður flokksins og þykir hafa styrkt stöðu sína. Kannski kem ég bara alltaf úr þeirri átt en mér finnst sem sé eins og kirkjan í Kópavogi nálægt Smáralindinni líti út eins og tvö sjónvarpstæki sem snúi skjánum hvort að öðru. Ég veit ekki hvort þetta á að vera svona, hvort hug- myndin gamla um að bænin sé símalínan okkar til Guðs hafi ver- ið útfærð með nútímalegum hætti eða hvort hér sé um nýja útfærslu á frummyndakenningu Platons að ræða – að trúarlífi okkar megi líkja við það að við sjáum einung- is bakhlið sjónvarpsins en aldrei sjálfan skjáinn... Ég veit ekki hvað þetta táknar. Ég held þetta tákni eitthvað. Margar kirkjur eru svolítið sérkennilegar. Þær líta ekki út eins og kirkjur heldur virðast vera hugsaðar sem tjáning á per- sónulegum hugmyndum arkítekt- anna um Guð og trúna eða kannski bara lífið og tilveruna. Til dæmis á Ísafirði. Þar var áður ein fallegasta kirkja landsins og maður verður alltaf jafn hissa þegar maður kemur vestur að sjá komna í staðinn byggingu sem ég man ekki betur en að Þórarinn Eldjárn hafi líkt við kommóðu. Þessi kirkjuskipti voru ámóta óskiljanleg og þegar bæjaryfir- völd á Akureyri fjarlægðu grasið af Ráðhústorginu og kratar í Hafnarfirði reistu mall sem skyggir á einn fallegasta miðbæ landsins. Það getur verið tvíbent þegar dugnaðurinn hleypur í bæj- arforkólfa. Eins og Reykvíkingar horfa nú upp á við Hringbraut þar sem ekki verður betur séð en að Reykjavíkurlistinn sé í óða önn að grafa sér ógnarstóra gröf til að uppfylla æðsta draum allra þeirra sem við skipulagsmál fást: að fá að hanna sína sérstöku úrfærslu á umferðarslaufu. Ekki fer á milli mála að Kópa- vogur er höfuðstaður dugnaðar- forkanna og óneitanlega hlýtur maður að dást að því hvernig til hefur tekist við uppbyggingu nýrra hverfa þar í bæ og mörg er þar frumleg umferðarslaufan, svo að jafn vandratað er um þenn- an bæ og þegar Jökull Jakobsson líkti honum við margslungið nú- tímalistaverk í frægum útvarps- þætti fyrir mörgum árum. Ekki leynir sér heldur heilbrigður metnaður bæjarforkólfanna sem hafa iðulega skotið Reykjavík ref fyrir rass, ekki síst þegar Salur- inn glæsilegi var reistur á svip- stundu á meðan borgaryfirvöld eru enn að klóra sér í hausnum yfir tónlistarhúsi. Í minni vitund sem gamals Reykvíkings er miðbærinn þar samt sem áður hinn eiginlegi mið- bær og miðpunktur höfuðborgar- svæðisins og óneitanlega rennur manni til rifja að sjá allt tóma húsnæðið á Laugaveginum. Ég veit ekki hvort var verri niður- læging fyrir miðbæ Reykjavíkur: að McDonalds skyldi leggja undir sig gamla Hressó – eða að McDon- alds skyldi hverfa þaðan. En þótt mér líði sjálfum eins og hornið á Vegamótastíg og Laugavegi þar sem Mál og menning var forðum vera nafli höfuðborgarsvæðisins þá geri ég mér grein fyrir því að þessari skoðun deila ekki allir. Ég spjallaði um daginn við mann sem sagðist vel geta hugsað sér að flytja eitthvað miðsvæðis – til dæmis í Smárann í Kópavogi. Ég las í gær haft eftir Jóni Atla rit- höfundi að venjulega fólkið færi í Smáralind en það væru bara rón- ar á Lækjartorgi. Samt held ég að Kópavogur verði ekki höfuðborg. Mér finnst hann hins vegar stundum vera til höfuðs borg. Smáralindin hefur að minnsta kosti tekið upp eitt og annað sem Reykvíkingar hafa hent – eins og nýtinn og lúsiðinn flöskusafnari - til dæmis nafnið „Vetrargarður- inn“; og hafmeyjan sem menning- arvitar sprengdu á sínum tíma úr Reykjavíkurtjörn, var hún ekki sett einhvers staðar niður í Smáralind? Smárahverfið er samt ekki orðið að borg. Það virðist hvað sem öðru líður hannað og skipulagt út frá þeirri bjargföstu sannfæringu að útilokað sé að mannlíf fái þrifist úti undir beru lofti á Íslandi, og að sú iðja að rölta sér á milli búða geti einung- is farið fram innandyra – og að utandyra skuli setja sem marg- brotnastar og fegurstar umferð- arslaufur. Þessari skoðun deila að vísu flestir landsmenn, sem telja sig þurfa að fara til útlanda til að anda að sér fersku lofti og dá- sama það einatt mjög að eiga þess kost að rangla um fallega bæjar- hluta gamalgróinna borga, en fer ekki út undir bert loft hérlendis nema í íþróttagalla til að ganga rösklega eftir þar til gerðum göngustíg. Fólk virðist almennt ekki átta sig á því að í rauninni væri hægðarleikur að rölta sér milli skemmtilegra búða til dæm- is í miðbænum í Hafnarfirði, og meira að segja líka í Reykjavík, það er að segja þeim litla hluta gamla bæjarins sem ekki er búið að flytja upp í Árbæjarsafn. Til að ganga um miðbæ Reykjavíkur er ekkert skilyrði að vera róni – eða ungur leikari. Kirkja sem lítur út eins og tvær bakhliðar á sjónvarpstækj- um segir okkur að stundum getur verið gott að hugsa sig svolítið um, jafnvel þótt maður sé dugnað- arforkur. Hún minnir okkur líka dálítið á Biblíutilvitnun um steina fyrir brauð. ■ S é það eindreginn ásetningur stjórnarflokkanna, Framsóknar-flokks og Sjálfstæðisflokks, að halda samstarfinu áfram útkjörtímabilið þrátt fyrir áföllin að undanförnu og skoðana- kannanir, sem sýna að ríkisstjórnin nýtur ekki trausts meirihluta kjósenda, ættu þeir á haustdögum, þegar skipt verður um manninn í brúnni, að huga að róttækum breytingum á ráðherraskipan ríkis- stjórnarinnar. Þó að stjórnmál snúist að sönnu um málefni skiptir ásýnd eða ímynd miklu máli. Einn þáttur í að bæta hana er að velja menn til for- ystu sem höfða til kjósenda, ná sambandi við þá og hafa traust þeir- ra. Forystumenn stjórnarflokkanna ættu að hugleiða alvarlega hvort forsætisráðherraskiptin í september séu ekki tækifæri til að skapa ríkisstjórninni tiltrú að nýju og vinna aftur hug og hjörtu kjósenda. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og Jónína Bjartmarz hafa sýnt að undanförnu að töggur er í þeim. Þau yrðu áreiðanlega öflugir ráðherrar. Sama er að segja um Kristinn H. Gunnarsson, en líklega er óraunsætt að ætlast til þess að Fram- sóknarflokkurinn geri hann að ráðherra, þar sem nú orðið er nánast litið á hann sem stjórnarandstæðing innan flokksins. Í Sjálfstæðisflokknum hefur Bjarni Benediktsson, formaður alls- herjarnefndar Alþingis, sýnt ótvíræða forystuhæfileika og áunnið sér álit og vinsældir langt fyrir utan raðir flokksins. Það væri sterk- ur og djarfur leikur að gera hann að ráðherra í haust. Og það jaðrar við hneyksli að einhver öflugasti þingmaður sjálfstæðismanna, Einar K. Guðfinnsson, skuli ekki fyrir löngu hafa tekið sæti í ríkisstjórn. Nú er tækifæri. Raunar eru fleiri þingmenn sem áhugavert væri að sjá spreyta sig í ráðherrasætum í haust svo sem Einar Oddur Krist- jánsson, Gunnar Birgisson og Pétur Blöndal. Því miður eru þessar vangaveltur líklega skýjaskraf eitt. Ósenni- legt er að stjórnarflokkarnir hafi kjark og þrek til að standa fyrir róttækum breytingum á ríkisstjórninni í haust. Svo virðist sem hjónabandinu á stjórnarheimilinu sé fremur haldið við til að bjarga andlitinu út á við eða af misskilinni tillitssemi en af gagnkvæmri ást, hrifningu og trausti. Fréttir sem borist hafa af daðri við aðra flokka koma þess vegna ekki á óvart. Og sannleikurinn er sá að stundum getur verið skynsamlegt að binda enda á erfið hjónabönd frekar en að halda samvistum áfram með tilheyrandi vanlíðan og leiðindum fyrir hjónin, fjölskylduna, vini og vandamenn. Úrslit þingkosninganna í fyrravor voru engin sérstök traustsyfir- lýsing á ríkisstjórnina. Þá var ákveðið að þrauka áfram þrátt fyrir ágjöfina. Umhugsunarefni er hvort það hafi verið skynsamleg ákvörðun. Miklu skiptir að framhaldið í haust verði yfirvegað af raunsæi áður en nokkrum leiðum er lokað. ■ 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Viðreisn ríkisstjórnarinnar krefst róttækra breytinga. Stjórnin þarf ný andlit Höfuðborg - eða til höfuðs borg? ORÐRÉTT Útlendingalögin Fyrir utan nánustu aðstandend- ur Íslendinga, flóttamenn eða stúdenta fjalla lögin aðallega um „útlenska verkamenn“. Makar Íslendinga, flóttamenn og stúdentar eru eins konar undantekningar í lögunum og stundum hafa þeir forréttindi umfram áðurnefnda verka- menn, enda eru aðstæður þeir- ra aðrar en verkamannanna. Toshiki Toma, prestur innflytjenda. Morgunblaðið 25. júlí Skil lífs og dauða Samkvæmt myndinni er álíka gáfulegt að ætla að lifa af McDonalds og að reyna að drekka sig í hel. Mikael Torfason, ritstjóri DV. DV, 24. júli. Leiðir skilja Rónarnir eru á Ingólfstorgi en venjulegt fólk fer í Smáralind- ina. Jón Atli Jónasson leikritahöfundur. Fréttablaðið 25. júlí. Fyrr og nú Áður fyrr var húsbréfunum nán- ast fleygt framan í viðskiptavin- inn og honum sagt að að það væri nú á hans könnu að selja þau og undir honum komið að fá nógu hátt verð. Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Morgunblaðið 25. júlí. Hver er hvað? Einar Oddur, ég er enginn ruddi! Magnús Þór Hafsteinsson alþingis- maður. DV 24. júlí. FRÁ DEGI TIL DAGS Einn þáttur í að bæta [ímynd ríkisstjórnarinnar] er að velja menn til forystu sem höfða til kjós- enda, ná sambandi við þá og hafa traust þeirra. Forystu- menn stjórnarflokkanna ættu að hugleiða alvarlega hvort forsætisráðherraskiptin í september séu ekki tækifæri til að skapa ríkisstjórninni tiltrú að nýju og vinna aftur hug og hjörtu kjósenda. ,, Í DAGMANNLÍF Í BORG GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Ég las í gær haft eftir Jóni Atla rithöfundi að venjulega fólkið færi í Smáralind en það væru bara rónar á Lækjartorgi. Samt held ég að Kópavogur verði ekki höfuðborg. Mér finnst hann hins vegar stundum vera til höfuðs borg. ,, sme@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablað- inu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 16-41 (16-17) Leiðari 25.7.2004 22:11 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.