Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 18
Þriðja hefti ritsins Icelandic Geographic kom út í liðinni viku í Neðstakaupstað á Ísafirði. Ritið er að þessu sinni helgað Vest- fjörðum. Birna Lárusdóttir, for- seti bæjarstjórnar Ísafjarðar- bæjar, og Þórdís Hadda Ingva- dóttir ritstjóri kynntu ritið fyrir Vestfirðingum. „Vestfirðirnir eru einstakur landshluti. Lands- lagið er fjölbreytilegt og dýralíf- ið fjölskrúðugt,“ segir Þórdís Hadda. Ísafjarðarbær styrkir útgáfu ritsins sem er gefið út í þrettán þúsund eintökum. Á blaðsíðunum kennir ýmissa grasa, þar má finna grein um örninn eftir Kristinn Hauk Skarphéðinsson fuglafræðing, göngugrein um Hornstrandir auk greinar um selinn svo sitt- hvað sé nefnt. Þórdís segir greinarnar mikið myndskreytt- ar og að textinn sem prýði ritið sé persónulegur og litríkur. Nokkrir bestu náttúruljósmynd- arar landsins taka myndirnar svo sem Daníel Bergmann og Jó- hann Óli Hilmarsson. „Tímarit renna út á tíma. Þetta er ekki tímarit heldur tímalaust rit. Fyrsta hefti Icelandic Geographic kom út árið 2002 og það er enn að selj- ast,“ segir Þórdís. Hún segir jafnframt að ritið sé einfaldara í dreifingu en innbundin bók og því hafi hún valið þann kost frekar til að einfalda útbreiðslu þess. „Fyrir mér eru Vestfirð- irnir enn hálfgert leyndarmál, þeir eru svo ofboðslega sjar- merandi. Mig langar til þess að fleiri fái að sjá þá,“ segir rit- stjórinn. Þórdís tekur ekki fyrir að í framtíðinni muni hún ráðast í svipaða útgáfu tileink- aða öðrum landshlutum því hún segir að allir hlutar landsins skarti svo mörgum fallegum stöðum Ritið er á ensku og er aðallega hugsað sem landkynningarrit handa útlendingum. Því er dreift til fjölþjóðlegs hóps áskrifenda. Ritið má nálgast í bókabúðum hér á landi sem og í Stanford- bókabúðunum í Bretlandi. Hægt er að sjá hluta þess sem blaðsíð- urnar hafa upp á að bjóða á net- síðunni www.icelandicgeograp- hic.is. ■ 18 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR STANLEY KUBRICK Einn virtasti og áhrifamesti leikstjóri heims fæddist á þessum degi árið 1928. AFMÆLI Sigríður Arnardóttir sjónvarpskona er 39 ára. ANDLÁT Guðbjörg Signý Richter, Gljúfraseli 9, Reykjavík, lést fimmtudaginn 22. júlí. Jakob Jónsson bóndi, Varmalæk, lést fimmtudaginn 22. júlí. Sigríður Ellingsen, áður til heimilis á Ægisíðu 80, lést fimmtudaginn 22. júlí. Sigrún E. Óladóttir, Njarðvíkurbraut 32, Innri-Njarðvík, lést fimmtudaginn 22. júlí. JARÐARFARIR 13.30 Guðbjörg Bárðardóttir verður jarðsungin frá Mosfellskirkju. 13.30 Ingveldur Dagbjartsdóttir, Mela- braut 9, Seltjarnarnesi, verður jaðrsungin frá Fossvogskirkju. 13.30 Margeir Jónsson, fyrrv. útgerðar- maður, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 13.30 Sigurlína Rut Ólafsdóttir, Stekkj- argerði 10, Akureyri, verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju. 14.00 Sigurveig Oddsdóttir, frá Mör- tungu, verður jarðsungin frá Prest- bakkakirkju á Síðu. 14.00 Sölvi Ólafsson verður jarðsung- inn frá Fáskúðsfjarðarkirkju. 15.00 Ragnhildur Kristín Pálsdóttir, Teigaseli 2, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Seljakirkju. Á þessum degi fyrir 52 árum lést Eva Peron, eiginkona Juan Dom- ingo Peron, forseta Argentínu. Hún var aðeins 33 ára þegar hún kvaddi þennan heim af völdum krabba- meins. Strax og Eva lést varð 26. júlí sorgardagur í Argentínu og var hún syrgð opinberlega næstu þrjá- tíu daga á eftir. Eva fæddist 7. maí 1919 í þorp- inu Los Toldos í Argentínu. Hún var skírð Maria Eva Duarte og var yngst fimm barna. Lifði fjölskylda hennar við mikla fátækt. Þegar hún var tvítug fluttist hún til Buenos Aires til að gerast leikkona og árið 1944 kynntist hún Juan Domingo Peron, sem þá var varnarmálaráð- herra. Ári síðar giftust þau og næsta ár á eftir var Juan kjörinn forseti Argentínu. Sem forsetafrú reyndi Eva að hjálpa fátækum löndum sínum og fleirum sem áttu um sárt að binda. Á næstu sjö árum jukust áhrif verkamannastéttarinnar í landinu og urðu meiri en nokkru sinni fyrr. Eva efndi til fjöldafunda til að ræða pólitík og eyddi miklum pen- ing úr opinberum sjóðum í hina fá- tæku. Hún barðist fyrir því að kon- ur fengju að kjósa í landinu og fékk stjórnvöld til að lögleiða skilnaði. Eva, sem fékk viðurnefnið Evita, var óvinsæl á meðal hersins og ríka fólksins sem töldu hana ógna hagsmunum sínum. Hún stefndi að varaforsetaembætti árið 1951 en þurfti að draga framboðið til baka vegna þrýstings frá hernum. ■ ÞETTA GERÐIST EVITA DEYR AÐEINS 33 ÁRA AÐ ALDRI 26. júlí 1952 „Kvikmynd er, eða ætti að vera, eins og tónlist frekar en skáldskapur. Hún á að vekja upp tilfinningar og skapa sérstakt andrúmsloft. Söguþráðurinn, merkingin og allt það sem er á bak við tilfinninguna kemur síðar.“ Þetta sagði Kubrick, sem lést árið 1999, um leyndardóminn á bak við góða kvikmynd. ÚTGÁFA ICELANDIC GEOGRAPHIC HELGAÐ VESTFJÖRÐUM EVITA Söngkonan Madonna í hlutverki Evitu í kvikmynd sem gerð var um ævi hennar. Þjóðhetja fellur frá Einstakir Vestfirðir Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, Karl Friðrik Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Skeljatanga 3, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. júlí kl. 15:00. Jarðsett verður að Mosfelli. Berglind Bragadóttir, Arnþrúður Karlsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Hrefna Björk Karlsdóttir, Kristján Friðrik Karlsson, Steinunn Egilsdóttir, Hulda Egilsdóttir, tengdabörn, barnabörn og systkini. Í VIGUR Mynd eftir Daníel Bergmann sem prýðir ritið. RITSTJÓRINN Tímaritið prýða fjölmargar fallegar myndir frá Vestfjörðum auk persónu- legra greina um ýmis málefni. Hvað heitir blaðberinn? Andri Kjartan Jakobsson Andersen. Hvað hefur þú verið að bera út lengi? Um það bil hálft ár. Hvað ertu með í vösunum? Veski. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Spila á gítar. Hvað er þitt lífsmottó? Margur er knár þótt hann sé smár. BLAÐBERI VIKUNNAR SÍLDARSÖLTUN Á Síldarævintýrinu um verslunarmannahelgina verður lögð áhersla á Síldarminjasafnið og söltunina í bland við barnadagskrá. Stanslaus hátíðarhöld á Siglufirði „Síldarævintýri Íslendinga er 100 ára þessa dagana og það hafa verið stanslaus hátíðarhöld hér á Siglufirði,“ segir Theódór Júlíus- son, framkvæmdastjóri Síldar- ævintýrisins. „Það má segja að hátíðin hafi hafist við komu krónprins Noregs, 29. júní, en hann vígði nýjan hluta Síldarminjasafnsins. Í kjölfarið var Þjóðlagahátíðin en hún tengd- ist afmælinu líka. Hluti af dag- skrá hennar fór einmitt fram í nýja bátahúsinu sem prinsinn vígði og kom þá fljótlega í ljós að þetta er stórkostlegt tónleika- og samkomuhús. Ég spái því að þetta verði aðalsamkomuhús Siglfirð- inga í framtíðinni enda umhverfið þar alveg frábært.“ Hátíðarhöld voru einnig alla helgina á Siglufirði og segir Theódór fólk hafa byrjað að streyma til bæjarins á föstu- deginum. „Við fengum heimsókn frá sjávarútvegsráðherra og sendiherra Norðmanna, fimm ís- lenskir ráðherrar mættu á svæð- ið ásamt vel flestum þingmönn- um kjördæmisins. Á laugardag komu síðan forsetinn og Dorrit í opinbera heimsókn og við tókum auðvitað á móti þeim með glæsi- brag.“ Tóku forsetahjónin meðal annars þátt í að opna gönguleið upp kirkjutröppurnar ásamt fjöl- skyldu Páls Samúelssonar en hann kostaði gerð hennar til min- ningar um foreldra sína. Ýmislegt stóð til boða um helgina og fengu gestir til að mynda að smakka síld á Ráðhústorginu. Síldarævintýrið verður haldið í 14 sinn núna um verslunar- mannahelgina og segir Theoódór kastljósið beinast í auknum mæli að fjölskyldufólki. „Það varð sprenging hér fyrstu árin og við gengum svo langt að flytja tívolí- ið af hafnarbakka Reykjavíkur hingað til Siglufjarðar. Nú viljum við frekar láta Síldarminjasafnið vera topp hátíðarinnar ásamt söltuninni samhliða allri skemmt- uninni fyrir börnin. Við erum því með mikla barnadagskrá auk hljómsveita frá Siglufirði og næsta nágrenni.“ Síldarævintýrið hefst á fimmtudaginn og verður stöðug dagskrá fram á sunnudag. ■ 42-43 (18-19) Tímamót 25.7.2004 20:31 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.