Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 25
25MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 Fullt verð kr. 36,600 Tilboðsverð kr. 29,900 Vöðlur, skór, sandhlíf og belti. Simms Freestone öndunarvöðlu sett Mörkinni 6, s. 568 7090 Skotlínur frá Scierra fyrir þá sem vilja ná lengra Leynivopn vikunnar Royal Fransis hefur reynst einhver skæðasta flugan úr Fransis fjölskyldunni. Skothausar og heilar skotlínur frá Scierra sem eru hannaðar af Henrik Mortensen og Hywel Morgan hafa slegið í gegn enda magnaðar línur á góðu verði. Skothausar aðeins 4.890, heilar skotlínur aðeins 5.890.- Gerðu verðsamanburð, fáðu þér góða skotlínu á sanngjörnu verði og náðu lengra. Byrjendur ná fyrr góðum tökum á fluguköstum með skotlínum frá Scierra. Veiðihornið Hafnarstræti 5 sími 551 6760 Veiðihornið Síðumúla 8 sími 568 8410 Fylgstu með leynivopni vikunnar á mánudögum. Stjarna spennuþáttanna 24, Kiefer Sutherland, kom hópi nýsjálenskra kvenna í opna skjöldu þegar hann fækkaði föt- um fyrir þær á næturklúbbi í smábænum Raetihi. Konurnar voru að fylgjast með sýningunni Men of Steel þar sem olíuborin vöðvabúnt fækkuðu fyrir þær fötum. Sutherland sat við barinn skammt frá og þegar lagið „You Can Leave Your Hat On“ með Tom Jones tók að hljóma gat hann ekki setið lengur á sér. Stökk hann upp á svið, reif af sér sokkana og skyrtuna og sveiflaði henni í hringi. Skömmu síðar var hann fjarlægður af sviðinu. „Kiefer skemmti sér frábær- lega þetta kvöld,“ sagði Danny Mills, eigandi barsins. „Hann átti góða kvöldstund eins og hin- ir sem voru þarna. Hann kemur aftur í ágúst og vonandi kemur hann aftur hingað í heimsókn.“ Sutherland, sem er 37 ára, er staddur á Nýja Sjálandi við tök- ur á myndinni River Queen sem gerist á 19. öld. Fjallar hún um írskan innflytjanda sem fléttast inn í stríð á milli maóra og landa sinna. ■ Fækkaði fötum á Nýja Sjálandi ■ FÓLK Jorja Fox, sem var nýlega rekin úr sakamálaþáttunum CSI vegna launadeilna, hefur verið ráðin aft- ur. Fox, sem fer með hlutverk Sara Sidle, náði samkomulagi við CBS-sjónvarpsstöðina sem fram- leiðir þættina og snýr aftur á tökustað í næstu viku. Samleikari Fox, George Eads sem hefur farið með hlutverk Nick Stokes, hefur hins vegar ekki verið ráðinn aftur. Hann sendi frá sér opinbera afsökunar- beiðni fyrir skömmu og sagðist hafa sofið yfir sig er hann mætti ekki á tökustað. Var hann rekinn í kjölfarið ásamt Fox. Töldu fram- leiðendur þáttanna að þau hafi ekki mætt vegna þess að þau fengu ekki launahækkun. CSI var vinsælasti dramatíski þátturinn í Bandaríkjunum síð- asta vetur og sá annar vinsælasti yfir heildina, rétt á eftir Americ- an Idol. Vegna vinsælda CSI hafa verið gerðar tvær aðrar útgáfur af þættinum, annars vegar CSI:Miami og hins vegar CSI:NY sem verður frumsýndur í vetur. ■ Veiðimenn bíða spenntir því það er spáð rigningu á allra næstu klukkutímum. Þeir vona bara að þetta verði ekki bara nokkrir dropar. Margar veiðiár eru orðnar eins og lækir, laxinn gengur samt þrátt fyrir það. Það heyrist af góð- um laxagöngum eins og voru fyrir nokkrum árum, 100-150 laxar í hverri göngu. „Það er fínn gangur í Langá á Mýrum en áin hefur gefið 755 laxa og við erum að fá þetta 25-30 laxa á dag,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson við Langá á Mýrum í gærdag, er veiðistaðan var könn- uð. „Í Langá þessa dagana er bara veitt á flugu og í gegnum teljar- ann eru komnir 650 laxar,“ sagði Ingvi Hrafn. Veiðitoppurinn stendur þannig núna að Þverá og Norðurá í Borg- arfirði eru með um 840 laxa hvor, síðan kemur Blanda með 822 laxa, Langá á Mýrum með 755 laxa og síðan Miðfjarðará og Laxá í Kjós með 550 laxa hvor veiðiá. Veiðimaður sem var að koma úr Miðfjarðará, sagði að mikið væri af fiski í henni og í sama streng tók veiðimaður sem var að landa tveimur löxum í Blöndu. Annar sagði að í nokkrum hyljum í Þverá væri þetta eins og í fiska- búri, það væru svo margir laxar þar. „Veiðiskapurinn gengur vel í Krossá en síðasta holl veiddi 12 laxa og þar á undan veiddu næstu tvö holl á undan 11 laxa hvort. Áin hefur gefið 76 laxa,“sagði Trausti Bjarnason á bænum Á á Skarðs- strönd, í gærdag. „Það eru gengn- ir 256 laxar í gengnum teljarann, svo það er mikið af fiski víða um ána, en það mætti rigna,“sagði Trausti ennfremur. Veiðimaður sem var að koma frá Miðdalsá í Steingrímsfirði, veiddi 15 fallegar bleikjur. Siv Friðleifsdóttir veiddi 6 punda lax „Það tók nokkurn tíma að glíma við laxinn en flugan var númer 12 og þetta var skemmti- leg barátta,“ sagði Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra, sem veiddi 6 punda hæng á fluguna Dentis einkrækju númer 12 í Breiðdalsá í Breiðdal fyrir fáum dögum í Klapparhylnum. „Ég og Iðunn sysir mín veiddum hvor sinn fiskinn þennan morgun, en hennar fiskur var aðeins minni en minn eða 5,5 punda og tók maðkinn,“ sagði Siv í lokin. „Breiðdalsá er öll að koma til og smálaxinn er að byrja að koma og það hafa veiðst 3-4 lax- ar á dag, flestir á neðstu svæðum árinnar. Klapparhylurinn, sem er neðsti veiðistaðurinn, gefur best,“ sagði Þröstur Elliðason við Breiðdalsá. ■ VEIÐI GUNNAR BENDER ■ skrifar um veiði. SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Umhverfisráðherra með 6 punda hænginn sem hún veiddi við Klapparhylinn. Norðurá og Þverá á toppnum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /Þ E KIEFER SUTHERLAND Sutherland sleppti rækilega fram af sér beislinu á næturklúbbi á Nýja-Sjálandi á dögunum. ■ SJÓNVARP JORJA FOX Fox er komin aftur í herbúðir CSI eftir að hafa verið rekin úr þáttunum. Fox endurráðin Sith nær fram hefndum ANAKIN SKYWALKER Nú fæst loksins svar við því af hverju faðir Luke Skywalkers breyttist í hinn illa Darth Vader. ■ KVIKMYNDIR Þriðja og lokamynd Stjörnustríðs er ekki lengur bara Episode III, því Lucasfilm hefur tilkynnt að titill myndarinnar verður Hefnd Sith, eða Revenge of the Sith. Myndin sem áætlað er að komi í kvikmyndahús í maí 2005 mun tengja síðustu tvær myndir við hinar upprunalegu Stjörnustríðs- myndir með því að sýna hvernig faðir Luke Skywalkers, Anakin, breytist úr góðhjörtuðum þræl í hinn illa Darth Vader. Sith er klan- ið sem tælir Anakin til verka með illum öflum alheimsins. Þeir eru hinir myrku Jediar sem stefna að yfirráðum yfir öllum heiminum. Með þessum lokahnykk koma væntanlega svörin við spurning- um sem kviknuðu í lokamyndinni, þegar Luke uppgötvaði við hvern hann hafði verið að berjast. Lucasfilm tilkynnti nýja titil- inn á laugardag á hinni árlegu al- þjóðlegu ráðstefnu Comic-Con, þar sem tugþúsundir áhugamenn um vísindaskáldsögur og ofur- hetjur koma saman. ■ 48-49 (24-25) Skrípó 25.7.2004 21:04 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.