Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 4
4 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tvær konur fundu
grátandi barn sem skilið hafði
verið eftir einsamalt í bíl á bíla-
stæði við Heiðmörk á laugar-
daginn. Eftir góða stund hring-
du þær í lögreglu. Málið leystist
farsællega, miðað við aðstæður.
Að sögn annarrar konunnar,
Unnar Tómasdóttur, heyrðu
konurnar sáran barnsgrát þegar
þær voru að koma úr göngu í
Heiðmörk. Þær gengu á hljóðið
og fundu þá barnið í barnabíl-
stól í harðlæstum bíl á bílastæð-
inu. Smárifa hafði verið skilin
eftir á afturrúðum bílsins.
Að sögn var barnið búið að
gráta sig gjörsamlega kútupp-
gefið, auk þess sem það var vel
klætt í hitanum. Það hafði hent
sér sitt á hvað þannig að bílbelt-
ið hafði flækst um fætur þess.
Eftir hálftíma ákváðu konurnar
að hringja í lögreglu, auk þess
sem þær reyndu að róa barnið,
meðal annars með því að syngja
fyrir það. Eftir þrjú korter var
það farið að róast. Síðan gerðist
nær allt í senn, barnið losnaði úr
stólnum og konurnar gátu feng-
ið það til að taka læsinguna af
hurðinni. Þær voru að gefa því
að borða og drekka þegar móð-
urina bar að garði. Skömmu síð-
ar kom svo lögreglan á vett-
vang.
Lögreglan í Hafnarfirði stað-
festi útkall í Heiðmörk á laugar-
daginn vegna barns sem hefði
fundist í læstum bíl á bílastæði. ■
GEITUNGAR Í kjölfar mikilla hlýinda
í sumar má búast við miklu magni
geitunga og stórra geitungabúa í
ágúst. „Stóru búin eru orðin mörg
hver vígaleg og erum við að búa
okkur undir mikinn hasar í
ágúst,“ segir Smári G. Sveinsson,
meindýraeyðir og eigandi Varna
og eftirlits.
Hann leggur ríka áherslu á að
fólk vandi valið þegar kemur að
því að velja menn til að fjarlægja
geitungabúin. „Geitungar eru
hættulegir og því ber að fá fag-
menn í málið. Því miður er nokkuð
um það í þessum bransa að menn
eru að starfa við þetta án þess að
hafa til þess tilskilin leyfi eða
réttindi og hafa því ekki kunnáttu
í að vinna verkið,“ segir hann.
Smári segir að fólk sé farið að
nota geitungagildrur í síauknum
mæli en því miður
vilji það brenna
við að það noti
ekki gildrurnar
rétt. „Það á ekki
að setja gildrurn-
ar þar sem þú vilt
ekki fá geitung-
ana því þær draga
geitungana að sér.
Þetta áttar fólk
sig ekki á fyrr en
maður nefnir það.
Einnig er mikil-
vægt að þegar
geitungabú eru
fjarlægð sé hluti af þeim skilinn
eftir og að þá sé restin eitruð,“
segir hann.
Hann segir að þeir hjá Vörnum
og eftirliti séu með þrautþjálfað-
an mannskap á vakt sem sé klár í
slaginn hvenær sem en hluti af
þjónustunni fer einnig fram í
gegnum síma.
„Það er töluvert algengt þegar
fólk kemur heim úr fríinu í ágúst
að það hringir til okkar og biðji
um ráðleggingar. Þá er því oft
mjög brugðið við að sjá hversu
búin eru orðin stór. Ég vil bara
eindregið benda fólki á að leita
ráðlegginga hjá mönnum sem eru
með góða kunnáttu og reynslu í
þessum efnum því geitungar eru
engin lömb að leika við,“ segir
Smári.
halldora@frettabladid.is
Átök í Írak halda áfram:
Barist gegn
erlendum
herjum
ÍRAK, AP Vel vopnum búnar banda-
rískar og íraskar hersveitir urðu
fimmtán uppreisnarmönnum að
bana í átökum í héraðinu Buhriz,
þar sem íbúar eru mjög hliðhollir
Saddam Hussein, fyrrum forseta
landsins.
Árásin hófst með áhlaupi en
endaði með margra klukkustunda
átökum milli hermanna og upp-
reisnarmanna. Íraskir vígamenn
eru andvígir veru erlendra her-
sveita í landinu og hafa barist
gegn tilraunum til þess að koma á
friði í landinu.
Þá var fyrrverandi embættis-
manni ríkisstjórnarinnar ráðinn
bani í höfuðborginni Bagdad auk
þess sem bandarískur hermaður
lét lífið í vegasprengju. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Ert þú fylgjandi þyngri refsingum
fyrir brot á dýraverndarlögum?
Spurning dagsins í dag:
Ertu almennt sátt(ur) við störf lögregl-
unnar?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
26%
74%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
LÍKIR HEMINGWAY
135 kepptust um að vera taldir líkastir
Hemingway í Flórída um helgina.
Sjötugur Bandaríkjamaður:
Líkastur
Hemingway
FLÓRÍDA, AP Tæplega sjötugur
Bandaríkjamaður var valinn lík-
astur Ernest Hemingway á Hem-
ingway dögum í Key West í Flór-
ída um helgina. Sigurvegarinn,
John Stubbings, var að taka þátt í
keppninni í áttunda sinn en hann
hefur ekki áður farið með sigur af
hólmi.
Stubbings var að vonum
ánægður með sigurinn. „Ég var
viss um að ég myndi vinna í fyrsta
skipti sem ég tók þátt,“ sagði
Stubbings. „Þetta gerist ekki
þannig. Fyrst þurfti ég að kynnast
dómurunum og hinum keppend-
unum.“ ■
REYKINGABANN
Hugsanlegt er að von bráðar verði reyking-
ar bannaðar á almannafæri í Bretlandi.
Bretland:
Von á reyk-
ingabanni
REYKINGAR Bresk yfirvöld stefna að
því að banna algjörlega reykingar
á almannafæri. Heilbrigðisráð-
herra Breta hefur sent fyrirskipun
til forsvarsmanna veitingahúsa
þar sem þeir eru beðnir um áætlun
um hvernig koma megi á reykinga-
banni. Er þetta sagt fyrsta skrefið
í því að bann verði lagt við reyk-
ingum á veitingahúsum og skref í
átt til víðtækara banns.
Reykingar eru þegar bannaðar
á almannafæri í Írlandi og í Nor-
egi og hafa margar þjóðir velt því
fyrir sér hvort þær eigi að fylgja í
fótspor þeirra. ■Eltingaleikur við ölvaðan ökumann:
Króaður af í blindgötu
ÖLVAÐIR UNDIR STÝRI Ökumaður
grunaður um ölvun við akstur ók
út af Reykjanesbraut milli
Hafnarfjarðar og Garðabæjar
snemma í gærmorgun. Ökumað-
urinn slapp ómeiddur og bíllinn
skemmdist lítið. Þá stöðvaði lög-
reglan í Keflavík þrjá ökumenn
grunaða um ölvun við akstur.
Einn þeirra reyndist án ökurétt-
inda.
STAL VEIÐISTÖNGUM Brotist var
inn í yfirgefna bifreið á Sand-
gerðisvegi og þremur veiðistöng-
um og geislaspilara stolið. Til-
kynnt var um stuldinn um hádeg-
isbil í gær en ekki er vitað hver
var að verki.
Þjóðleikhúsið:
Starf leikhús-
stjóra laust
MENNING Embætti þjóðleikhús-
stjóra er nú laust til umsóknar.
Menntamálaráðherra skipar
þjóðleikhússtjóra í embætti til
fimm ára í senn, frá og með 1. jan-
úar 2005. Í embættið skal skipað-
ur einstaklingur með menntun á
sviði lista og staðgóða þekkingu á
starfi leikhúsa, að því er segir á
vefsíðu menntamálaráðuneytis-
ins.
Þar kemur jafnframt fram að
umsóknir með ítarlegum upplýs-
ingum um menntun og starfsferil
skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir kl. 16, miðviku-
daginn 1. september 2004. Í um-
sókn skal jafnframt greint frá
hugmyndum umsækjanda um
framtíðarsýn hans á starfsemi
Þjóðleikhússins. ■
HEIÐMÖRK
Gönguferðir í Heiðmörk eru vinsælar á góðviðrisdögum. Myndin sem tekin var þar er ekki
í tengslum við fréttina.
Geitungafaraldur
í vændum
Búast má við geitungafaraldri á næstunni í kjölfar undangenginna
hlýinda. Geitungar eru hættulegir og því mikilvægt fyrir fólk að leita til
aðila með tilskilin réttindi og kunnáttu.
GEITUNGUR
Búast má við miklum geitungafaraldri í kjölfar mikilla hlýinda að undanförnu.
LÖGREGLUMÁL Ungur ökumaður
virti að vettugi bendingar lög-
reglu um að stöðva bifreið sína á
Vesturlandsvegi í fyrrinótt. Upp-
hófst því eltingaleikur um Mos-
fellsbæ sem endaði með því að
lögregla króaði ökumanninn af
inni í blindgötu og flutti á lög-
reglustöð.
Tilkynnt var um ökumann í
Hvalfjarðargöngum sem hugsan-
lega væri ölvaður um klukkan
hálftvö í fyrrinótt. Lögreglan í
Reykjavík ætlaði því að stöðva
ökumanninn við Esjumiðlun en
þar sinnti hann ekki bendingum
lögreglu og ók áfram inn í Mos-
fellsbæ. Lögreglan elti ökumann-
inn inn í Álafosshverfi þar sem
ferð hans lauk inni í blindgötu.
Ökumaðurinn var fluttur á lög-
reglustöð þar sem hann gisti
fangageymslur. Hann er grunaður
um ölvun við akstur.
Þá var annar ökumaður fluttur
á lögreglustöð eftir að hann ók á
húsvegg veitingastaðar við
Hverafold í Grafarvogi í fyrra-
kvöld. Ökumaðurinn er grunaður
um að hafa verið undir áhrifum
áfengis. ■
ELTINGALEIKUR
Lögregla elti uppi ölvaðan ökumann sem
virti að vettugi bendingar um að stöðva
bifreið sína í Mosfellsbæ í fyrrinótt.
,,Stóru
búin eru
orðin mörg
hver víga-
leg og erum
við að búa
okkur undir
mikinn has-
ar í ágúst.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SLEPPT ÚR HALDI Rúmlega þrí-
tugum manni sem gekk um Akur-
eyri vopnaður riffli á föstudags-
kvöld var í gær látinn laus úr
haldi lögreglu. Maðurinn er tal-
inn hafa verið undir áhrifum
fíkniefna og fær mál hans nú
hefðbundna meðferð innan dóms-
kerfisins. Málið telst að mestu
upplýst.
■ NORÐURLÖND
GAMALT FÓLK AFSKIPT Í SVÍÞJÓÐ
Sjúkrarúmum fyrir eldri borgara
í Svíþjóð hefur fækkað um helm-
ing síðastliðin tíu ár.Heilbrigðis-
kerfið hefur engin úrræði fyrir
gamla fólkið, sem oft er sent eitt
heim án þess að hafa möguleika á
að hugsa um sig sjálft.
Grátandi barn í læstum bíl
Umhugsunarvert atvik á bílastæði í Heiðmörk:
04-05 25.7.2004 22:53 Page 2