Fréttablaðið - 26.07.2004, Side 19
MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 19
ÁGÚST MOGENSEN segir orsök um-
ferðarslysa erlendra ferðamanna vera
akstursmistök og því öðruvísi en slys
Íslendinga.
Hver?
Framkvæmdastjóri Rannsóknar-
nefndar umferðarslysa og áhuga-
maður um umferðaröryggi. Ég út-
skrifaðist hérna heima með B.A.
próf í félagsfræði en fór til Englands
í mastersnám í afbrotafræði. Nú
stunda ég fjarnám í Englandi og er
að skrifa doktorsritgerð um ölvun-
arakstur.
Hvar?
Nú var ég að koma heim til mín á
Hringbraut og er að henda rusli út í
tunnu. Er að fara að grilla með sam-
býliskonu minni í rigningu.
Hvaðan?
Ég var í vinnunni, það er því miður
búið að vera alltof mikið að gera.
Tvö banaslys urðu með stuttu milli-
bili og því fylgir mikil vinna og vett-
vangsferðir. Ég fer þá út á land og
reyni að komast að því hvað hefur
mögulega farið úrskeiðis.
Hvað?
Ritgerðin sem ég er að skrifa fjallar
um afhverju fólk ekur undir áhrifum
áfengis. Til þess að komast að því
dvaldi ég síðasta sumar á lögreglu-
stöð á Selfossi og í Reykjavík og á
læknamiðstöðinni í Kópavogi. Ég var
þar á kvöldin og um helgar og spjall-
aði við ökumenn sem teknir voru fyr-
ir ölvunarakstur á meðan þeir voru
enn undir áhrifum. Til að leiða mig í
sannleik um hvers vegna fólk ekur
undir áhrifum var aðalatriðið í gagna-
söfnun minni að komast að því
hvernig hugsunarferlið fer fram.
Hefði ég spurt fólk sömu spurninga
þegar runnið hefði af því tel ég að
svörin yrðu talsvert öðruvísi og reynt
væri að réttlæta hlutina. Viðmælend-
ur mínir vissu að það er ólöglegt að
aka undir áhrifum.
Hvenær?
Ég byrjaði á ritgerðinni haustið 2001
og vonandi næ ég að klára hana á
næsta ári. Reyndar gengur upp og
ofan að klára slíkt með vinnu og
fjölskyldu.
Hvernig?
Ég þarf að beita mig geysilegum sjálf-
saga, hætta að horfa á sjónvarpið og
fara að vanrækja fjölskyldu og vini.
Hvers vegna?
Ég vil koma minni þekkingu á fram-
færi, það hefur aldrei neinn svo ég
viti til gert sambærilega rannsókn á
fólki undir áhrifum áfengis.
PERSÓNAN
ÞETTA GERÐIST LÍKA
1945 Winston Churchill og félagar í
breska Íhaldsflokknum tapa stórt í
þingkosningum. Churchill segir af
sér sem forsætisráðherra og í stað
hans tekur Clement Attlee úr
Verkamannaflokknum við emb-
ættinu.
1956 Nasser, forseti Egyptalands, til-
kynnir að Suez-skurðurinn verði
framvegis þjóðareign.
1963 Þúsundir manna farast í jarð-
skjálfta í borginni Skopje í
Júgóslavíu.
1968 Paul McCartney semur lagið Hey
Jude.
1969 Elvis Presley spilar á tónleikum í
fyrsta sinn í tæp átta ár.
1990 Brent Mydland, meðlimur
Grateful Dead, deyr úr ofneyslu
eiturlyfja aðeins 38 ára.
2000 Hljómsveitin Oasis hættir að spila
eftir að plastflöskum, dósum og
smáaurum er kastað í hana á
tónleikum í Sviss.
Sumar & Sony
-Vaxtalaust*
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard
skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með
jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
DCR-HC20 stafræn tökuvél
Carl Zeiss Vario Tessar Linsa
800.000 pixla Super HAD myndflaga
i.LINK(DV IN/OUT)
6.999 krónur í 12 mánuði*
eða 83.988 krónur
DCR-PC109E stafræn tökuvél
Carl Zeiss Vario Tessar Linsa
1.070.000 pixla Super HAD myndflaga
Super Nightshoot plus
9.999 krónur í 12 mánuði*
eða 119.988 krónur
DCR-PC107 stafræn tökuvél
800.000 pixla Super HAD myndflaga
2.5" Litaskjár (snertiskjár)
Tengistöð fylgir
7.999 krónur í 12 mánuði*
eða 95.988 krónur
Opið alla helgina
950 krónur.
**Gildir með DCR-HC20, DCR-PC107 og DCR-PC109
Ef þú kaupir stafræna tökuvél** hjá
okkur færðu 12.000 króna afslátt af
aukahlutasetti. Það inniheldur tösku
utan um vélina, upptökuspólu og
hleðslurafhlöðu. Venjulegt verð er
12.950 en þú greiðir aðeins
Þegar sumarið kemur skella
mörg börn sér á námskeið til að
læra eitthvað nýtt. Sumir kyn-
nast leyndardómum siglinga,
sunds eða myndlistar. Aðrir
kynnast hvernig á að umgangast
hrossin. Slík námskeið eru víða
um land og ekki öll með sama
sniði.
Það voru 27 krakkar, allt frá
fjögurra til sextán ára sem tóku
þátt í árlegum æskulýðsdögum
Hestamannafélagsins Blæs á
Norðfirði í júni.
Þór Júlíusson, formaður
æskulýðsnefndar Blæs, segir
markmið daganna að vinna með
krökkunum á jákvæðan hátt.
„Æskulýðsdagar snúast um að
lofa börnunum að upplifa sam-
veru með hestum á skemmtileg-
an og uppbyggilegan hátt. Ekki
endilega með keppni í huga.“
Krakkarnir gistu í tjöldum og
í félagshúsi hestamannafélags-
ins á Kirkjubólseyrum í Norð-
firði. Þau fóru í sund á morgn-
ana, tóku þátt í leikjum og fengu
kennslu í reiðlistinni. Í lokin var
haldin grillveisla. Var þetta
skemmtilegur tími, sérstaklega
þó fyrir krakkana.■
M
YN
D
/I
N
G
IB
JÖ
RG
Þ
Ó
RÐ
AR
D
Ó
TT
IR
Lærðu reiðlist
NORÐFIRSKIR KRAKKAR tóku þátt í
æskulýðsdögum Hestamannafélagsins
Blæs á dögunum. Þau skemmtu sér prýði-
lega í samveru hesta og manna.
42-43 (18-19) Tímamót 25.7.2004 20:32 Page 3