Fréttablaðið - 26.07.2004, Page 21
Skagamaðurinn Grétar RafnSteinsson skrifaði í gær undir
tveggja og hálfs árs samning við
svissneska liðið Young Boys. Grétar
Rafn mun fara til Sviss um áramótin
þegar samningur hans við ÍA rennur
út. Grétar Rafn hefur lengi verið orð-
aður við félagið og var nálægt því að
ganga liðs við það í
lok maí. Það fór hins
vegar út um þúfur
þar sem Skaga-
menn vildu fá of
mikinn pening fyrir
hann og því mun
Grétar Rafn klára
tímabilið með Skagamönnum og
halda síðan til Sviss eftir að því lýkur.
Landsliðsmaðurinn Jóhannes KarlGuðjónsson er laus allra mála hjá
spænska liðinu Real Betis og er
frjálst að semja við önnur lið án af-
skipta félagsins. Jóhannes Karl átti
eftir þrjú ár af samningi sínum við
Real Betis en náði samkomulagi um
starfslok. Jóhannes
Karl kom til Betis frá
hollenska liðinu Wa-
alwijk sumarið
2001 og kostaði 5
milljónir punda.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
23 24 25 26 27 28 29
Mánudagur
JÚLÍ
MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 21
Laugavegi 26, Kringlunni og Smáralind
*þú velur einn
disk í kaupbæti
Heitasta
Kauptu eina af þessum heitu geislaplötum
og fáðu vinsælustu útilegutónlist síðasta sumars...
FRÍTT!
sumartónlistin
*
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
■ ■ LEIKIR
20.00 Fylkir og Grindavík mætast
á Fylkisvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
20.00 FH og Þór/KA/KS mætast á
Kaplakrikavelli í Landsbankadeild
kvenna í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
15.20 Suður Ameríku-bikarinn á
Sýn. Sýnt frá úrslitaleik Brasilíu
og Argentínu í Suður Ameríku-
bikarnum í fótbolta sem fram fór í
gærkvöld.
16.20 Fótboltakvöld á RÚV.
16.40 Meistaramót Íslands á RÚV.
Sýnt frá Meistaramóti Íslands í
frjálsum íþróttum sem fram fór á
Laugardalsvelli um helgina.
17.00 Champions World á Sýn.
Sýnt frá leik Manchester United
og Bayern München í
Champions World-mótinu í fót-
bolta sem fram fór í gærkvöld.
19.25 Íslensku mörkin á Sýn.
19.45 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik Fylkis og
Grindavíkur í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
22.00 Inside The US PGA Tour
2004 á Sýn.
23.15 Champions World á Sýn.
Bein útsending frá leik Celtic og
Liverpool í Champions World-
mótinu í fótbolta.
Michael Schumacher:
Fáránlegir
yfirburðir
FORMÚLA 1 Þýski ökuþórinn Michael
Schumacher kom fæstum á óvart
þegar hann kom fyrstur í mark í
Formúlu 1 kappakstrinum á Hoc-
kenheim-brautinni í Þýskalandi í
gær.
Sigurinn var hans ellefti í tólf
keppnum það sem af er þessu ári
og var aldrei í hættu, sérstaklega
ekki eftir að Finninn Kimi
Raikkonen, sem ekur fyrir
McLaren, keyrði út af á 13. hring
en hann virtist vera sá eini sem
gat ógnað Schumacher.
Bretinn Jenson Button á BAR
kom annar í mark en hann vann
sig upp úr 13. sæti í byrjun keppn-
innar. Spánverjinn Fernando
Alonso á Renault kom síðan þriðji
í mark og fjórði varð Skotinn
David Coulthard á McLaren. ■
MICHAEL SCHUMACHER
Enn einn sigurinn bættist í safnið hjá hon-
um í Þýskalandi í gær.
44-45 (20-21) Sport 25.7.2004 21:07 Page 3