Fréttablaðið - 26.07.2004, Page 30
„Þetta er hugsað fyrir atvinnudans-
ara og þá sem eru að læra dans,“
segir Steinunn Ketilsdóttir en hún
stendur fyrir dansnámskeiði í
Kramhúsinu 9.-13. ágúst næstkom-
andi þar sem bandaríski dansarinn
og danshöfundurinn Miguel Guiti-
errez kennir í fyrsta sinn á Íslandi.
„Ég stunda sjálf nám við Hunt-
er College í New York og Miguel
Gutierrez var gestakennari við
skólann hjá mér í vetur. Þannig
kynntist ég honum og finnst hann
frábær kennari. Hann er mjög ná-
kvæmur, nær vel til allra og er
með skemmtilegar hugmyndir um
dans og um það hvert nútímadans
stefnir. Gutierrez hefur farið nýj-
ar leiðir í sinni sköpun og er nú
staddur í Japan en hann kennir
dans víða um heim og hafði áhuga
á að koma til Íslands og kynnast
því sem er að gerast hér.“
Steinunn segir margt að gerast
í nútímadansi hérlendis. „Það er
fullt af fólki að gera áhugaverða
hluti hér heima. Reykjavík dans-
festival er núna í haust og svo er
komin hefð fyrir dansleik-
húskeppni Íslenska dansflokksins
og Leikfélags Reykjavíkur. Svo er
fullt af fólk í leiklistarheiminum
að dansa eins og við sjáum til
dæmis núna í Hárinu og Fame.“
Þeir sem hafa áhuga á að kynn-
ast nútímadansi nánar og hafa jafn-
vel áhuga á að skapa dansana sína
sjálfir ættu ekki að láta námskeiðið
með Miguel Guitierrez fram hjá sér
fara. Hann kennir i Kramhúsinu
bæði danssmíði (kóreógrafía) og
tæknitíma (módern) en hægt er að
sækja ýmist hálft eða heilt nám-
skeið. Nánari upplýsingar og skrán-
ing er á tölvupóstfanginu
sk_dans@hotmail.com.
30 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR
„Ég kem alltaf til landsins á sumr-
in til að fara í laxveiði í Borgar-
firði eins og sannur Íslendingur,“
segir kvikmyndagerðarkonan
Erla B. Skúladóttir sem er búsett í
Bandaríkjunum og hefur þar í
landi sópað að sér verðlaunum
fyrir stuttmynd sína Bjargvættur.
Erla er nú stödd á Íslandi og með-
al annars til að halda sýningu á
Bjargvættinum hérlendis. „Ég vil
svo gjarna að Íslendingar fái að
njóta myndarinnar,“ segir Erla en
leikararnir Guðrún Gísladóttir,
Kristbjörg Kjeld og Ívar Örn
Sverrisson eru meðal þeirra sem
fara með hlutverk í stuttmynd-
inni. „Myndin er á íslensku og tek-
in upp hér á landi,“ en kvikmynda-
tökumaðurinn, Brian Hubbard,
hefur hlotið verðlaun fyrir kvik-
myndatökuna í myndinni. „Mynd-
in er íslensk í húð og hár og Brian
Hubbard er meira að segja orðinn
svo ástfanginn af landinu í kjöl-
farið að hann langar helst til að
flytja hingað.“
Bjargvættur verður sýnd í Há-
skólabíói á morgun klukkan 17.15.
„Ástæðan fyrir því að ég held sýn-
inguna nú er að það virðist alls
staðar vera svo mikið peninga-
leysi að það lítur ekki út fyrir að
ég komi myndinni til sýningar í
sjónvarp hér heima. Til að vera
samkeppnishæf á Edduverðlaun-
unum í nóvember verður mynd-
in að hafa verið sýnd opinber-
lega að minnsta kosti einu sinni
og ég ákvað því að halda boð-
sýningu í Háskólabíói þar sem
allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir,“ segir Erla
en Bjargvættur er 28
mínútur að lengd.
Stuttmyndin fjallar um
fjórtán ára stelpu sem er
send í sumarbúðir eftir að
foreldrar hennar komast að
því að hún er byrjuð að
drekka. „Freydís Krist-
ófersdóttir leikur að-
alhlutverkið og hún
og Kristjana Júlía
Þ o r s t e i n s d ó t t i r
sem leikur vinkonu
hennar í sumarbúð-
unum ætla báðar að
mæta á sýninguna
á morgun.“ En þess
má geta að Bjargvættur var valin
besta stuttmyndin á kvikmynda-
hátíðinni í Nashville og verðlaun-
in veita myndinni rétt til að vera
í úrtaki fyrir óskarsverð-
launin. ■
ERLA B. SKÚLADÓTTIR
Reynir að koma til Íslands
tvisvar sinnum á ári meðal
annars til að halda íslensk-
unni við hjá tvítyngdri tíu
ára dóttur sinni.
FRÉTTIR AF FÓLKI
í dag
Sonur minn reyndi
að drepa
dópsalann sinn á
Akureyri
Helgi prentari
Kominn í norska
Survivor
Elsa Lyng
Hómópatían
læknaði hana
490.-
verð frá
barnaflíspeysa
útileguna
Verslaðu hjá okkur fyrir
Nýherji hagnaðist um eina milljónkróna á öðrum ársfjórðungi.
Miðað við þær stóru tölur sem er að
vænta úr rekstri fjármálafyrirtækja
þykir mörgum ekki mikið til koma.
Afkoman er eins og rekstrarniður-
staða vel rekinnar vísitölufjölskyldu.
Gárungar hafa haft í flimtingum að
þegar stjórn félagsins hafi litið upp-
gjörið augum hafi þeir hrópað upp
yfir sig af gleði: „Nú kaupum við bíl.“
Þeir geta svo skipst á um að aka bíl-
inn þeir Þórður Sverrisson, forstjóri
Nýherja, og Benedikt Jóhannesson,
stjórnarformaður félagsins.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst bauðum daginn meistaranemendur
sína velkomna, en þeir nemendur
sem eru í fjarnámi fá að eyða hluta
af sumarfríi sínu við nám í sveitinni.
Það heyrðist um daginn að fram-
sóknarmenn væru ekki yfir sig hrifnir
af því hvað hefur orðið um gamla
Samvinnuskólann sem átti sinn hlut
í að ala upp framsóknarmenn fram-
tíðarinnar. Þegar litið var yfir þann
hóp nemenda og
kennara sem saman
var kominn við há-
tíðarkvöldverð mátti
halda að þessi
gamla miðstöð
f ramsóknar -
d r a u m s i n s
væri orðin
að krata-
bæli.
VINIR VIÐ LEIK
Fjölmargir hafa lagt leið sína í sumarbústaði þessa mánuðina. Þrátt fyrir að besti vinurinn hafi verið með í för með þeim Sögu Huld,
Hilmi Hrafni og Lilju Nótt, virðist áhuginn vera meiri fyrir tölvuleiknum hans Hilmis en greyinu honum Tuma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
DANS
MIGUEL GUITIERREZ
Ferðast víða um heim til að kynna
framúrstefnulegar hugmyndir um nú-
tímadans fyrir áhugasömum.
Bandarískur dansari með námskeið í Kramhúsinu
NÁMSKEIÐ
■ verður haldið í Kramhúsinu 9-13. ágúst
með bandarískum dansara og danshöf-
undi þar sem boðið verður bæði upp á
módern og danssmíði eða kóreógrafíu.
KVIKMYNDIR
Hin margverðlaunaða stuttmynd, Bjarg-
vættur, verður loksins sýnd í Háskólabíói
á morgun að leikstjóranum viðstöddum.
Bjargvættur sýnd á Íslandi
54-55 (30-31) Fólk 25.7.2004 21:02 Page 2