Tíminn - 06.01.1973, Qupperneq 2
TÍMINN
Laugardagur 6. janúar 1973
Bifreiða-
viðgerðir
Fljótt og vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bi freíðastí llingin
Síðumúla 23, sími
81330.
iffl! IWl
■li
UMHUGSUNARVERÐ ORÐ
FORSÆTISRADHERRA
I áramótaræðu sinni á gamárs-
kvöld minntist forsætisráðherr-
ann á innri tómleikann, sem svo
margir þekkja af eigin raun.
Taldi hann bera nauösyn til, að
þessu yröi gaumur gefinn á næstu
árum.
Þessi innri tómleiki er orsök
margrar ógæfu, á þvi leikur eng-
inn vafi. Er það ekki einmitt hans
vegna, aðsvo margir flýja á náðir
Bakkusar, leita fyllingar og
fróunar i veigum vinsins? Er það
ekki innri tómleikinn, sem rekur
fólkið eiröarlaust úr einum
skemmtistað i annan? Er það
ekki einmitt vegna hans, er sumir
gefast upp i baráttu lifsins og
firra sjálfa sig lifi?
Orðin um innra tómiö minntu
mig á orð dr. Billy Grahams,
„Maðurinn er eins og tómur
hanzki.” Hanzkinn þarf hönd til
að fylla sig. Maöurinn tómi þarfn-
ast Guðs, fyllingar hans og búsetu
i hjarta sér.
Auglýsing frá
iðnaðarráðuneytinu
Samkvæmt lögum nr. 107 31. des. 1972
hefir verið ákveðið að stofna hlutafélag
til að vinna að undirbúningi þörunga-
vinnslu að Reykhólum i Austur-Barða-
strandasýslu.
Þeir.sem áhuga hafa á að gerast hluthafar I hlutafélagi
þessu.láti skrá sig hjá iönaðarráðuneytinu i Reykjavik
fyrir 1. febr. n.k. Við skráningu þarf að tilkynna vænt-
anlegt hlutafjárframlag.
Skipastóllinn
148.633 lestir
— sjómannaalmanakið komið út
Áætlanagerð —
Kostnaða refti rlit
óskum eftir að ráða starfsmann við
áætlanagerð og kostnaðareftirlit. Þekking
og reynsla við tölvuvinnslu æskileg.
Menntun: Verzlunarskólapróf eða hlið-
stæð menntun. Hér er um starf að ræða,
sem gefur möguleika á góðum launakjör-
um fyrir hæfan mann.
Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu,er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik og bókabúö Oli-
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi siðar en 20. janúar 1973 i
pósthólf 244, Hafnarfirði.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK.
ÞÓ-Reykjavik
Heildarskipastóll Islands var
15. desember siðastliöinn 148.633
lestir, þar af fiskiskip 83.355 lest-
ir. Þetta kemur meðal annars
fram i nýútkomnu hefti Islenzka
sjómannaalmanaksins fyrir áriö
1973, en það er gefið út af Fiski-
félagi Islands.
Aö vanda er sjómannaalman-
akið mjög fjölbreytt aö efni.
Skipaskráin veitir aö venju ýtar-
legar upplýsingar um öll islenzk
skip, eigendur þeirra og út-
AUGLÝSINGA
símar Ti'mans
gerðarmenn, miðað við 15.
desember s.l. Skipaskráin er nú
flokkuð I sex flokka i stað fimm
áöur, þar sem skuttogarar eru
flokkaðir sér. Eins og fyrr segir,
þá voru fiskiskip 83.355 lestir og
flokkast þau þannig:
Fiskiskip undir 100 rúmlestum
eru 616 að tölu og samtals 19.259
lestir. Fiskiskip yfir 100 rúml.
eru 215 og samtals 41.625 lestir.
Siðutogarar eru 20, alls 14.672
lestir. Skuttogarar eru 12, sam-
tals 5.826 lestir. Hvalveiðiskip eru
fjögur, alls 1.973 lestir.
1 sambandi við mælingu skipa
ber að athuga það, að enn er ekki
komið fullt samræmi á mælinga-
kerfið.
Af öðru efni almanaksins má
nefna hin ýmsu lög og reglugerðir
varðandi sjávarútveg og sigling-
ar, hjálp i viðlögum, fjarskipti,
flóötöflur, merkjatöflur og fjöl-
margar aðrar töflur gagnlegar
sjómönnum i starfi þeirra.
Þessi nauðsynlega bók. allra
sæfarenda fæst hjá útsölumönn-
um og i bókabúðum,og er hún seld
á kostnaðarverði.
Tilboð Krists.
1 siðustu bók bibliunnar, Opin-
berun Jóhannesar, 3. kafla, er
lýsing á fólki, söfnuði, sem virðist
eiga vel við samtið okkar. Hún er
þannig: „Þúsegir: Ég er rikur og
er orðinn auðugur og þarfnast
einskis! — og þú veizt ekki, að þú
ert vesalingur og aumingi og fá-
tækur og blindur og nakinn.”
Þannig litur samtiö okkar út i
augum Krists. Við, sem lifum i
vestrænum heimi, búum flest við
nægileg, efnaleg gæði. En i aug-
um Krists er andlegt ástand okk-
ar sannkölluð hryggðarmynd.
Kristur bæöi vill og getur breytt
þessu ástandi og bendir á nokkur
ráð, sem hann hefir til úrbóta.
Siðan segir hann:
„Sjá, ég stend við dyrnar og
kný á. Ef einhver heyrir raust
mina og lýkur upp dyrunum, þá
mun ég fara inn til hans og neyta
kvöldverðar með honum og hann
með mér.”
Hvaða dyr eru þetta? „Hjarta-
dyrnar,” svaraði drengur, er ég
spurði börn þessarar spurningar.
Þetta er auðvitað hárrétt. Kristur
gerir okkur tilboð: Ef við viljum
veita honum viðtöku sem frelsara
okkar til að frelsa okkur frá synd-
um okkar og hegningunni, sem
biður okkar, — ef við deyjum i
þeim ef við viljum taka við hon-
um sem Drottni okkar til að stýra
og stjórna lifi okkar, þá kemur
hann Drottinn Jesús, inn i manns-
hjartað, fyllir það friði, svo að
tómleikinn hverfur. Lifið fær nýtt
markmið: að lifa fyrir Guð, ekki
sjálfan sig, og að gera allt, sem
við getum, öðrum mönnum til
gagns og blessunar.
Hver vill nú bjóða Drottni Jesú
inn i hjarta sitt og segja með fullri
alvöru: „Kom þú inn, Drottinn
Jesús, til að vera frelsari minn og
Drottinn. Tak við mér og lifi
minu, svo að það verði Guði til
dýrðar og mönnum til blessunar.
Fyrir þins nafns sakir. Amen.”
Ég veit af reynslu minni og
annarra, að tómleikinn hverfur.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Vinaminni, Akureyri.
Rándýr á sigur-
för um Evrópu
18300
Rándýr, sem mest likist þvotta-
birni með hundslappir, fer nú
sigurför um norður- og austur-
hluta Evrópu. Þvi getur hvenær
sem er skotið upp i Danmörku.
Þetta er marðartegund, sem
upphaflega hafðist við á skógi-
SÓlaÓír HJÓLBARÐAR
til sölu á mjög hagstæðu
verði. Full ábyrgð tekin á
sólningunni. Sendum um
allt land gegn póstkröfu.
Hjólbarðaviðgerðir
Verkstæöiö opiö a lla daga kl. 7.30 til 22
nema sunnudaga.
BARÐIIMNf
Ármúla 7 — Reykjavík — Simi 30501.
vöxnum bökkum fljóta og vatna i
Kina og Asiulöndum Sovét-
rikjanna. 1 upphafi heims-
styrjaldarinnarhinnar siðari, eða
þar um bil, voru fáein dýr flutt
vestur yfir Úralfjöll og sleppt á
fljótsbökkum i Sovétrikjunum.
Þar tók þeim brátt að fjölga og
siðan hafa þau fikrað sig lengra
og lengra vestur á bóginn, land úr
landi. Nú fyrir skömmu varð vart
við eitt á Lúneborgarheiði,
skammt sunnan landamæra
Þýzkalands og Danmerkur.
Þessi skritilegi mörður er
veiddur i heimkynnum sinum, og
á skinnamarkaði er feldurinn
kallaður japanskt tófuskinn.
Þetta dýr étur flest.sem að kjafti
kemur, og nærist jafnt á froskum,
skeldýrum, fuglum og aldinum.
Þess vegna stendur lika sumum
stuggur af útbreiðslu þess. Kven-
dýrið elur af sér sex unga, og
það gýtur iðulega i grenjum, sem
það rænir frá refum.
I Póllandi var fyrsta dýrið
skotið árið 1955. Þar er það nú i
öllum skógum. Siðan hefur það
numið land i Austur-Þýzkalandi,
Vestur-Þýzkalandi, Austurriki,
Ungverjalandi og Rúmeniu og i
Búlgariu hefur það verið siðan
1967. Loks hefur þess orðið vart i
Finnlandi mörg undanfarin ár, og
litill vafi er á, að þaðan berst það
til Sviþjóðar og Noregs með tið
og tima.
Dýrafræðingar i háskólanum i
Varsjá hafa kannað, hversu mikil
landflæmi þetta dýr hefur lagt
undirsig i Evrópu á rúmum þrem
árc ugum. Þeim telst svo til, að
það séu ellefu hundruð þúsund
ferkilómetrar.