Tíminn - 06.01.1973, Side 3

Tíminn - 06.01.1973, Side 3
Laugardagur 6. janúar 1973 TÍMINN Fiskverðs- hækkunin Þö-Reykjavík. Sem kunnugt er þá náöi yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins samkomulagi um nýtt fiskverð þann 30. desember siðastliðinn. Var ákveðið, að al- mennt fiskverð á timabilinu 1. janúar til 31. mai 1973 skyldi hækka um 9% að meðaltali frá þvi verði, sem tók gildi 1. október s.l. Var þessi verðhækkun tekin af fulltrúum fiskseljenda gegn at- kvæðum fulltrúa fiskkaupenda. A fundi yfirnefndar i fyrradag var ákveðið að verð á einstökum fisktegundum breyttist sem hér segir: Þorskur hækki um 10% Ýsa >> ” 11% Langa >> >> 12% Steinbitur >> ” 9% Karfi >> ” 3% Keila >> ” 3% Annar þorskafli oglúða >> >> 9% í yfirnefndinni áttu sæti, Jón Sigurðsson, hagrannsóknarstjóri, sem var oddamaður nefndarinn- ar. Arni Benediktsson og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson fulltrúar fisk- kaupenda og Jón Sigurðsson, for- maður Sjómannasambands Is- lands og Kristján Ragnarsson fulltrúar kaupenda. Glatt á hjalla hjá Mývetning- um um jólin JI-Mývatnssveit. Jólahald i Mývatnssveit var svipað um þessi jól og undanfarin ár. Sóknarpresturinn séra örn Friðriksson messaði i Reykja- hliðarkirkju á jóladag og á gamlárskvöld, og i Skútustaða- kirkju á annan i jólum og á nýárs- dag. Kvenfélag Mývatnssveitar hafði að venju jólatrésskemmtun fyrir börn i Skjólbrekku, og ung- mennafélagið Mývetningur hélt þar sinn árlega jólafund, en það er almenn skemmtisamkoma. Þá gekkst iþróttafélagið Eilifur, sem stofnað var i fyrra- vetur, fyrir áramótafagnaði i Hótel Reynihlið á nýársnótt. Þk var og haldin áramótabrenna i Reykjahlið eins og mörg undan farin ár. Ekki var hægt að kvarta undan jólaveðrinu, þó hefur nokkuð rennt af suðvestri suma dagana, einkum sunnan við vatnið, og færð var farin að þyngjast tals- vert um áramótin. Kisilveginn hafði þá ekki þurft aö hreinsa i hálfan mánuð. w Ovæntir gestir á Mykinesi um jólin Fólkið á Mykinesi i Færeyjum hafði jólagesti, er það hafði ekki gert ráö fyrir. Svo var mál með vexti, að þyrla af danska varð- skipinu Fyllu átti að flytja þaðan jólapóst, en vélin bilaöi, og var ekki annars kostur en taka hana úr þyrlunni og setja nýja i staðinn. Lending er oft og tiðum erfið I Mykinesi að vetrarlagi. Bátar geta ekki lagzt aö bryggju, og er þess vegna enn torveldara en ella að koma þungum hlutum þar á land. Þess vegna varð af fá tvær Sikorskiþyrlur frá Danmörku til þess að flytja nýja vél út i Mykinesi, þar sem hún verður sett i varðskipsþyrluna. Sjólfsbjörg á Akur- eyri byggir stórt — rekur plastverksmiðju og endurhæfingarstöð SB-Reykjavik Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri mun i vor hefja miklar byggingarframkvæmdir á Lunds- túni, en þar hefur félagiö fengið lóð undir starfsemi sina, sem fram að þessu hefur veriö i Bjargi, að Hvannavöllum 10. Það hús er nú löngu orðið of litið, enda er starfsemi Sjálfsbjargar alltaf að aukast. Félagsheimilið Bjarg var byggt fyrir 13 árum og plastiðjan Bjarg tók þar til starfa fyrir fimm árum og siðan Endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar fyrir tveimur ár- um. Er húsið nú svo gjörnýtt, að vélum plastiðjunnar hefur meira að segja verið komið fyrir á snyrtingu. Aðsókn að endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar hefur verið slik, að þar hafa verið 90 manns á biðlista og þrjá til fjóra mánuði tekur að komast að. Aöeins einn sjúkra- þjálfi starfar hjá stöðinni, þvi á þeim er mikill hörgull, sem kunn- ugt er. Sinnir hann 15-20 manns á dag. Plastiðjan er einnig eins konar endurhæfingarstöð, þvi þar starf- ar fólk, sem þarfnast endur- hæfingar til vinnu. Ekki liggja fyrir tölur frá siðasta ári, en árið 1971 störfuðu þar 20 manns meira og minna. Plastiðjan framleiðir ýmsar vörur, svo sem fiskbakka, sem fluttir eru til Færeyja, efni til raflagna, bakka fyrir gróðurhús, snjóþotur af öllum stærðum og skilti ýmiss konar. Þessa dagana er verið að ljúka gerð skilta fyrir SIS fyrir 3 milljónir króna. Byrj- að var að framleiða fiskkassa fyrir skip, en sú framleiðsla ligg- ur niðri i bili, þvi staðla vantar, svo og fleira i sambandi við kass- ana. I athugun er að gera fram- leiðslu plastiðjunnar enn fjölþætt- ari, þegar húsnæðið stækkar. Samkvæmt áætlun, sem gerð var árið 1970, mun nýja byggingin á Lundstúni kosta um 30 milljónir króna. Byggt verður i áföngum, byrjað verður strax i vor á 500 fermetra verksmiðjuhúsi úr strengjasteypu og er ætlunin að flytja plastiðjuna i það um ára- mótin næstu. Siðan verður reist skrifstofuhúsnæði og loks endur- hæfingarstöðin. Jón Geir Agústs- son, byggingarfulltrúi teiknar bygginguna.en byggingameistari er Jón Gislason. Þess má geta, að Kiwanisklúbburinn Kaldbakur, hefur styrkt félagið mjög mikið, nú nýlega færði hann þvi að gjöf sérstakan strekkbekk til endur- hæfingarstöðvarinnar. Slikur bekkur kostar 125 þúsund krónur. Formaður Sjálfsbjargar á Akur- eyri er Heiðrún Steingrimsdóttir. Útfluttar sjávarafurðir 1.5 milljarð meiri 72 en 71 Heildarafli landsmanna 745 þúsund lestir ÞÓ-Reykjavik Allt bendir til þess, að heildar- útflutningsverðmæti útfluttra sjávarafurða verði að minnsta kosti einum og hálfum milljarð meira á árinu 1972, en á árinu 1971. Arið 1971 nam heildarverð- mæti útfluttra sjávarafurða i október lok 9.582 milljarðar, en 1972 namheildarverðmætið 10,710 milljarðar i októberlok. Reyndar vantar tvo siðustu mánuöi ársins við bæði árin, en eftir þeim upp- lýsingum, sem Fiskifélag lslands ‘ hefur aflað sér, bendir allt til þess að verðmætið verði um 1.5 milljarð meira. Þá bendir allt til þess, að heildarafli islenzkra fiskiskipa verði i kringum 745 þúsund lestir á árinu 1972, á móti 681 þúsund lestum 1971. Þessi mismunur á aflamagni liggur eingöngu i lonuaflanum. A siðustu loðnuvertið reyndist loðnuaflinn vera 278 þúsund lestir á móti 183 þúsund lestum árið á undan. I lok nóvembermánaðar var bátaaflinn 321 þúsund tonn, og togarafiskurinn 59 þúsund tonn, en i lok nóvember 1971 var bátaaflinn 335 þúsund tonn og togaraaflinn var þá 68 þúsund tonn. Guðmundur Ingimarsson, full- trúi hjá Fiskifélagi Islands, sagði að i reynd væri ekki hægt að tala um að afli togaranna hefði minnkað til muna, þó svo að þess- ar tölur bentu til þess. Þess bæri að gæta, að togarinn Hafliöi hefði legið svo til allt árið, sömuleiðis Marz, og Hamranesið hefði sokk- ið á miöju ári. Þarna væru þrir togarar horfnir og segði það sina sögu. Þá eru togarar eins og Barði, Hólmatindur, og Hegranes ekki taldir með, þar sem þeir ná ekki 500 tonnum. Sildaraflinn varð 51 þúsund lestir, og veiddist öll sildin i Norðursjó, nema nokkrar tunnur, sem fengust i reknet hér viö land. Rækjuaflinn nam 4800 tonnum, á móti 5600 tonnum árið 1971. 1 hörpudisksveiðum átti sér stað mikil aukning, og tvöfaldaðist tonnatalan. A nýliðnu ári veidd- ust 6000 tonn af hörpudiski, en ár- ið 1971 aðeins 2900 tonn. Humar- aflinn hefur aftur á móti dregist saman, hann varð á siðustu vertið 3900, en árið 1971 4600 tonn. Að lokum má bæta við einni fisktegund, sem mikið hefur verið til umræðu, en ekki verið mikið veidd af Islendingum, enn sem komið, en margir hafa áhuga á að veiða. Það er kolmunni, af honum veiddust 623 tonn, og er þetta afli, sem Eldborg GK 13 fékk er bátur: inn gerði tilraunir til aö veiöa kol- munna i nót úti af Austfjörðum. LOÐNA FUNDIN A DIGRANESFLAKI - vel veiðanleg í flotvörpu, segir Jakob Jakobsson ÞÓ-Reykjavik „Jú, þvi er ekki að neita, að við erum búnir að sjá framan i loðnuna,” sagði Jakob Jakobsson fiskifræöingur, er viö ræddum við hann um borð I rannsóknar- skipinu Arna Friðrikssyni en þá voru þeir á Arna staddir 42 sjó- milur austsuðaustur af Langa- nesi, utarlega á Digranesflakinu. Jakob sagði, að ekki væri beinlinis hægt að tala um að loðnan væri kominn i torfur, t.d. hefði verið gisin dreif á svæði, sem var 60 milur frá landi, og hefði dreifin ekki veriö á veiðan- legu stigi. 1 kantinum á Digranes- grunninu hafa fundizt þéttar ræmur, sem örugglega væri hægt' að fá gott úr i loðnuvörpu. Loðnan, sem þeir á Árna hafa fundið hefur haldið sig djúpt, efstu torfutopparnir hafa verið á 30föðmum, en yfirleitt heldur hún sig á 50 faðma dýpi. „Við erum tvisvar búnir að setja flottrolliö út,” sagöi Jakob.- „Loðnan sem við höfum fengið er mjög falleg, mest fjögurra ára gömul, en mikið eldri gerist loönan ekki. Veðrið hjá okkur er ekkert alltof gott, norðaustan- kaldi,” sagði Jakob að lokum. Viðskiptaráðuneytiö hefur um þessi áramót eins og undanfarin ár auglýst innflutningskvóta ársins. Eru að þessu sinni auglýstir innflutningskvótar fyrir sjö vöruflokka, sem ennþá eru háðir innflutningsleyfum. Flestir innflutningskvótarnir eru rýmkaðir nokkuð, enda við það Eldborg frá Hafnarfirði var væntanleg á miöin úti af Langa- nesi i gærkvöldi og ef veðriö hefur haldizt gott, þá má búast við, að Eldborgin hafi reynt loönuflot- vörpu i nótt og i morgun. miðað, að innflutningur þessara vörutegunda veröi yfirleitt gefinn frjáls eigi siöar en 1. janúar 1975. Þá hefur sú breyting verið gerð á frilistanum, um þessi áramót, að linur til fiskveiða og kaðlar og ávextir, varðir skemmdum með sykri, hafa verið settir á frilista. Breytingar á innflutn ingskvóta 3 48% kaupmáttaraukning launþega á 3 árum t áramótagrein sinni ræðir Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins m.a. um þróun kjaramála og viðleitni rikisstjórnarinnar til að bæta kjör fólksins svo sem tekjur þjóðarbúsins frekast leyfa. Ragnar segir m.a.: „Efnahagsmálin voru fyrir- ferðameiri i þjóðmálaumræð- um á þessu ári, en flest annað: Deilt var um það, hvort verð- hækkanir á fyrrihluta ársins kæmust i samjöfnuð við óða- verðbólguna i tið fyrri stjórn- ar, umbylting skattakerfisins olli talsverðu moldviðri og loks var það spurningin um leiðirnar þrjár: uppfærslu, millifærslu eða niðurfærslu. En eitt var óumdeilt: Lifskjör fólksins I landinu hafa aldrei verið betri og kaupmáttur launa aldrei meiri en einmitt á þvi ári, sem nú er aö kveöja. A seinustu þremur árum hafa kauptaxtar launþega hækkað að meöaltali um 88% og ráöstöfunartekjur hafa vaxiö á sama tiina um 107% (i þessari tölu er m.a. tekiö tillit til hækkunar beinna skatta og fasteignaskatta). Verðlag vöru og þjónustu hefur hins vegar hækkað á þessum árum um tæp 40%. Og þannig má reikna út, að kaupmáttur ráð- stöfunartekna heimilanna hafi vaxið rúm 48% á þessum 3 ár- um. Hér er miöaö við þann þátt framfærsluvisitölunnar, sem fjallar um verðlag vöru og þjónustu, enda gefur það sannari mynd. Framfærslu- visitalan sjálf hefur hækkað minna”. Lífskjarabylting „Þessi lifskjarabylting, sem átt hefur sér stað á seinustu þremur árum, skýrist að nokkru af aukinni framleiðslu þjóðarinnar og auknum þjóöartekjum, enda hafa tekj- ur þjóðarinnar á þessum 3 ár- um aukizt miðað við fast verð- lag um 30% og þjóðartekjur á mann um 26%. En ljóst er af þessum tölum, að kaupmáttur launatekna, hefur þó vaxiö miklu liraöar en þjóðartekjur. Þar sem heildargreiðslu- jöfnuöur viö útlönd hefur verið hagstæöur og ekki verður sagt, að tekjuaukning launa- manna umfram aukningu þjóðartekna sé fengin með skuldasöfnun við önnur riki, er augljóst að launamenn á ts- landi hafa fyrst og fremst bætt lifskjör sin með þvi aö tryggja sér stærri hluta af „kökunni” margumtöluðu. Þessi aukna hlutdeild launamanna i þjóðartekjum er sem sagt tek- in beint af atvinnurekendum, sem fá að sama skapi minni hagnaö i sinn hlut. t sérhverjum kjaraátökum á liðnum árum hafa vinnu- veitendur barmað sér mikiö og gefið i skyn, að vegna þess- ara kauphækkana væru gjald- þrot i stórum stil yfirvofandi. t samræmi viö þessar yfirlýs- ingar ættu þeir allir að vera löngu farnir á hausinn, eftir hinar stórfelldu launabreyt- ingar, sem gengið hafa yfir. En þeir hafa komizt af, þrátt fyrir allt — og margir hagnazt vel. Ctgerð og fiskvinnsla er að visu sér á parti, og væri löngu komin í vanda, ef ekki hefðu komið til stórfelldar verðhækkanir erlendis. En hæfni annarra fyrirtækja til að taka á sig þessar miklu kaup- hækkanir er aftur á móti augljóslega til marks um, hvilikan hagnað þau hafa áður haft i skjóli láglaunakerfisins, sem fyrri rikisstjórn reyndi aö tryggja þeim. Um 73% at- vinnulifsins er utan við land- búnað, útgerð og fiskvinnslu, og þar er um aö ræða þúsundir millj. kr. á ári hverju, sem Framhald á bls. 27

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.