Tíminn - 06.01.1973, Side 24

Tíminn - 06.01.1973, Side 24
24 TÍMINN Laugardagur (>. janúar 1973 Heilsa þín getur „hristst í sundur,” án þess að þú vitir af því Titringur eöa sveiflu- hreyfingar, frá vélknúnum verkfærum, landbúnaðar- vélum og bílum er að lík- indum hættulegri, en fram að þessu hefur verið haldið. Nýjustu rannsóknir benda til þess, að einnig titringur, sem ekki er hægt að merkja eða heyra, geti verið veru- lega hættulegur heilsu manna og velliðan. Uppgötvun þessi er hins vegar svo ný af nálinni, að varter um að ræða nokkrar verndunarreglur gegn þessari umhverfishættu. Visindamenn eru farnir að átta sig á þvi, að titring- ur getur valdið mannslik- anum engu minni skaða en hávaði. Meðan til er fjöldi öryggisráðstafana varð- andi hávaða eru nánast engar ráðstafanir, til varn- ar gegn titringi. Með notkun keðjusaga við skógarhögg og þ.h. hefur að nokkru leyti verið stefnt i rétta átt. 1 athyglisverðri skýrslu frá einum aðaliðnaðarlækni Bret- lands, dr. P. L. Pelmear, sem starfar innan járn- og stáliðnað'- arins, segir m.a.: „Flestar gerðir vélknúinna handverkfæra eru mikið verri en keðjusagir og brjóta þær einu reglur, sem til eru um það, hve mikið verkfæri megi titra.” Flestir þeir, sem unnið hafa með kraftmiklum borvélum og öðrum verkfærum, er titra mikið, finna, að fingur þeirra verða stifir og dálitið tilfinningasljóir eftir nokkurn tima. Þessi tilfinning hverfur aftur eftir nokkurn tima, en með áralangri, daglegri vinnu með þessum verkfærum getur til- finningaleysið og stifnin orðið stöðug. Þetta getur orðið alvar- legtfyrir marga verkamenn, sem ef til vill verða skyndilega ófærir um að gegna starfi, sem þeir hafa hlotið sérþjálfun i. „Stifir fingur” er að visu sums staðar viður- kenndur atvinnusjúkdómur, t.d. i Danmörk, en sú viðurkenning er sjaldnast notuð. Truflun af völdum titrings getur valdið bilslysum Annars konar skemmdir geta komið upp, þegar allur likaminn verður fyrir titringi frá bilmótor- Loftþrýstingur utan i Grundtvigkirkjuna I Kaupmannahöfn hefur valdið mönnum óþægindum. um, flugvélahreyflum o.þ.h. Það hefur t.d. sýnt sig, að hæfileiki herþotuflugmanna til að hitta ákveðið mark minnkar vegna titringsins frá vélinni. A sama hátt getur titringur frá bilmótor haft það i för með sér, að hæfileiki bilstjórans til að dæma fjarlægð og stefnu rétt truflast, og það er ef til vill orsök margra bilslysa, sem eru annars óskýranleg. í flestum tilfellum er það einnig titringur frá bilmótornum, sem veldur svima og vanliðan farþeganna, hinni svokölluðu bilveiki. Rannsóknir hafa sýnt, að mannslikaminn er næmastur fyrir titringi, sem nemur kring- um 5 hertz (þ.e. titringssveiflum á sekúndu). Flestar vélar einka- bila gefa frá sér nokkru minni titring , vegna mjúkrar einangr- unar. En hvað vörubila snertir er sveiflufjöldin mjög oft um 5 h., ekki sizt er þeir eru ekki full- hlaðnir. ISO (International Standards Organisation), alþjóðleg stofnun, sem útbýr ýmiss konar staðla, hefur á grundvelli mikilla rann- sókna útbúið mælikvarða, er nær frá 1 upp i 90 h. Þessum kvarða er siðan skipt niður i hluta, sem ná yfir viss mörg stig hver. Þeir bera heiti eins og „þægilegt”, „afar þreytandi”, „deyft við- bragð” og,,hættulegt”. En engu að siður mun að likindum liða langur timi enn, unz settar hafa verið hagkvæmar reglur um, hve mikið hreyflar og vinnuvélar mega titra. ISO —mælikvarðinn er ekki nægilega nákvæmur eða itarlega unninn, til þess að véla- gerðarmenn geti hagnýtt sér hann til vænlegs árangurs. Reyndar halda fjölmargir sér- fræðingar þvi einnig fram, að mælikvarðinn sé byggður á rann- sóknum, sem margar hverjar séu mjög mótsagnakenndar. Til dæmis hefur komið i ljós, að sumir visindamenn kalla hæga hröðun með titringi upp á 8 h. „óbærilega”, en aðrir kalla hana „ómerkjanlega”. Þessu til skýr- ingar er það, að niðurstöður sem fundnar eru á rannsóknarstofum, eiga ekki alltaf beint við, þegar á að fara að beita þeim. Til dæmis er titringur ekki alltaf beint af völdum vélarinnar, heldur stafar hann af þvi, að umhverfið, and- rúmsloftið eða fastir hlutir, fara að sveiflast. Fékk svima í prédikunar- stólnum vegna titrings kirkjunnar Titringur, sem nemur frá 1 og upp i 10 h., merkist meira og minna. Það er eingöngu þess kon- ar titringur, sem ISO og fyrr- nefndur dr. Pelmear hafa rann- sakað i sambandi við atvinnu- sjúkdóma og slys. Margt bendir samt sem áður til þess, að titring- ur með hærri sveiflufjölda um 20 h. (20 sveiflur á sekúndu) — hafi langtum meiri áhrif á likam- ann. Þennan titring er ekki hægt að finna eða heyra beint, en hann hefur áhrif á innra eyrað og þar með jafnvægisskynfærin. I sum- um byggingum og stórum her- bergjum getur loftið titrað þannig, að manni liði illa af þeim sökum. 1 Grundtvigkirkjunni i Kaup- mannahöfn þjónaði i mörg ár prestur, sem var hafður að háði og spotti meðal starfsbræðra sinna, vegna þess að hann fékk ætið svima og ógleði, er hann steig i stólinn i turninum. — „Komið hefur i ljós, að þrýstingur vindsins utan frá á kirkjuveggina átti þátt i að hljóðlausar sveiflur mynduðust i kirkjunni, en þær virka afar truflandi á jafnvægis- skynfærin.” Þessi orð eru höfð eftirdönskum prófessor, dr. med. Poul Bonnevie við Heilsufræði- stofnunina i Kaupmannahafnar- háskóla. Hann segir ennfremur: „Margir reyna þetta sama, er þeir fara upp i háa byggingu, t.d eldingavarnarturn eða eitthvert háhýsið. Svima, sem menn fá i slikum tilvikum, álita margir stafa af taugaveiklun eða hræðslu — en, i rauninni er það titringur loftsins i húsinu, einkum dýpstu áttundartónarnir, sem eru orsök svimans. Af sömu ástæðu hverfur sviminn aftur, þegar viðkomandi kemur út i ferskt loft, t.d. út á svalir, enda þótt hann geti séð, hve hátt yfir jörðu hann er.” Titringur getur eyðilagt ja fnvægissky nfærin — Sérfræðingar i Þýzkalandi hafa rannsakað áhrif titrings frá dráttarvélum og öðrum landbún- aðarvélum, — heldur prófessor Bonnevie áfram. — Það hefur sýnt sig, að bæði jafnvægisskyn- færin sem og aðrir hlutar heilans verða fyrir áhrifum. Menn geta orðið órólegir og taugaóstyrkir við að starfa með þessum vélum, vegna þess að truflun verður á hinu liffræðilega jafnvægi af völdum titringsins. Titringsveifl- urnar geta og teygt sig yfir all- stórt svæði umhverfis titrings- gjafann. Langtima áhrif titrings hljóta að geta valdið skemmdum á mannslikanum. Rétt eins og mik- ill hávaði i langan tima getur valdið heyrnarmissi að meira og minna leyti, þannig hlýtur titringur smám saman að eyði- leggja hárfrumurnar i bogagöng- um innra eyrans, svo að skemmdir verða á jafnvægis- skynfærunum. Ef maður verður fyrirslikum skaða, getur það t.d. haft i för með sér, að ef hann hrasar, muni hann byrja að Hér á siðum eru svo myndir frá þrem vinnustööum, þar sem vænta má að titringur sé allmikili.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.