Tíminn - 07.01.1973, Side 4

Tíminn - 07.01.1973, Side 4
4 tímiSjx Sunnudagur 7. janúar 1973 QOoj Leikur og pólitík Jane Fonda er önnum kafin kona. Hún þeysir heimshorna á milli og talar um Vietnam á fjöldafundum, og þess á milli leikur hún i kvikmyndum. Hún barðist eins og ljón fyrir sigri McGoverns i forsetakosning- unum siðustu, en þau töpuðu bæði, sem kunnugt er. Nú er frúin komin til Noregs og er að leika þar i kvikmynd.sem gerð er eftir leikriti Ibsens, Brúðu- heimilið. Þrátt fyrir áfram- haldandi styrjaldarrekstur landa sinna i Indókina er Fonda hress, eins og sjá má á myndinni, sem tekin var eftir komu hennar til Noregs. o JACKIE BAÐAR SIG MJÓLK Jackie Onassis er frú, sem veit hvað hún vill. Eða það skyldi sá ætla, sem lesið hefur ný- útkomna bók, skrifaða af her- bergisþjóni hennar eftir að hún giftist Ara gamla Onassis. Hún vill helzt ekki baða sig i öðru en mjólk, og þegar hún var um borð i snekkjunni „Christinu” stóð ætið flaska af bleiku kampavini á náttborðinu. Endurnýja varð isinn, sem flaskan stóð i, á þriggja tima fresti, að þvi er segir i bókinni. Kampavinsbaö Þorsteini Næturlifið i Kaupmannahöfn er rómað fyrir kæti og gleðskap alls konar. Yfir jólin kepptust veitingahúsin um a ð halda sem vegulegust samkvæmi og seldu dýrt inn. Þorsteinn Viggóson, veitingamaður varð ekki eftir- bátur annarra i þessu efni. Hánn efndi til mikillar veizlu i veitingahúsi sinu Bonaparte. Mættu gestir allir i náttfötum og hápunktur gleðinnar var þegar stúlka nokkur var böðuð úr kampavini. ☆ ☆ ☆ & Slétturotta fa nn kolanámu Ekki eru það alltaf jarðfræð- ingar, sem uppgötva auðæfi i iðrum jarðar. Stundum fá þeir óvænta liðveizlu. Það var sléttu- rotta, sem „kom upp um” kola- námurnar stórkostlegu við Ekibastúz i Sovétrikjunum. Þegar hún gróf holu sina, jós hún upp haug af mjúkum skinandi kolum, sem fjárhirðir inn Kosúm Psénbajef rakst svo á af tilviljun. Námurnar gengu manna á milli, frá kazaks- tönskum stórjarðeigendum, svonefndum „bajum’,’ til rúss- neska kaupmannsins Dérofs, og frá honum til Englendingsins Lesley Urkworth. Það var ekki fyrr en eftir Októberbyltinguna 1917, að þær komust i hendur al- mennings. Kolasvæðið hér nær yfir 164 fer- kilómetra og liggja þar rúmlega 12 milljarðar tonna af kolum. Lögin eru allt að 140 m þykk, og þvi er unnt að beita hinum stór- virkustu vélum. A timabili yfir- standandi fimm ára áætlunar munu afköst þessa risavers tvö ‘faldast og gott betur. Vegna hinnar miklu vélvæðingar er framleiðslukostnaður kola frá Ekibastúz helmingi minni en fá öðrum kolavinnslufyrirtækjum i landinu. Hann mun enn halda áfram að lækka, þar eð náma- menn fá æ afkastameiri vélar i hendur. — Viggó minn. Hefurðu ekki lyst á sveppasalati til tilbreytingar. Ég var einmitt að lesa svo sniðuga uppskrift i sakamála- sögu. — Ég var hjá spákonu i dag. Hún sagði, að ég yrði gömul, sagði eiginkona. — Já, mér hefur verið að sýnast þetta lika, svaraði eigin- maðurinn. Jens var afskaplega óánægður með einkunnir sonar sins. — A þinum aldri var George Washington alltaf efstur i sinum bekk, sagði hann við snáðann, sem svaraði af bragði: — Já, og á þinum aldri var hann orðinn forseti. — Sitt hár gerir karlmenn gáfulega, sagði hippinn. — Jæja, sagði móðir hans. — t morgun tók ég sitt hár af jakkanum hans pabba þins og þá varð hann ekkert gáfulegur. „Jú, — manstu ekki, þegar hús- ið fór að leka i þrumuveðrinu, og þú sagðir mér að finna eitthvað i bilskúrnum til að gera við þaö?” DENNI DÆAAALAUSI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.