Tíminn - 07.01.1973, Page 5
Sumiudagur 7. janúar 1973
TÍMINN
5
Breyting á mataræði
Japanskeisara?
Einkakokkur Japanskeisara
hefur beðizt lausnar frá starfi.
Hann heitir Tukuzo Akiyama og
gefur þá skýringu á tiltækinu,
☆
að fætur hans og augu séu farin
að gefa sig, og hann óttist, að
sökum elli geti hann farið að
gera afdrifarikar skyssur i
matargerðinni. Akiyama er nú
84 ára að aldri og hefur starfað i
hinu keisaralega eldhúsi i 58 ár.
☆
Ilolls Iloyce með
ílugvélamótor
Hvernig getur nokkrum dottið i
hug sú vitleysa að setja flug-
vélamótor i bil? Það gerði þó
John Dodd, sem býr i Englandi.
Hann fékk sér 27 litra, 700 hest-
afla mótor úr Spitfire-flugvél,
sem notuð var i siðari heims-
styrjöldinni, og setti hann i bil-
inn sinn. Þetta er V-12 mótor
með 6 blöndungum. Billinn á að
geta komizt 300 km á klukku-
stund. En þá er lika betra, að
ekki sé mikil umferð, svo billinn
komist leiðar sinnar.
☆
Vill ekki byrja að
leika á ný
Paulette Goddard, hin fallega
og fullkomna kvikmyndaleik-
kona, sem við munum eftir i
kvikmyndum, sem teknar voru
á fjórða og fimmta áratugnum,
er aftur orðin þekkt meðal yngri
kynslóðarinnar. Ekki af þvi að
hún hafi leikið i nýjum kvik-
myndum, heldur vegna þess að
hún lék i ýmsum þekktum kvik-
myndum meðal annars með
Chaplin i „Nútimanum”, en nú
er komið i tizku að endursýna
þessar myndir, og nýtur hún nú
sem fyrr geysivinsælda.
Paulette hefur verið spurð að
þvi, hvort þessar nýju vin-
sældir hafi ekki vakið hjá henni
löngun til að byrja að leika aftur
i kvikmyndum. Hún hefur
svarað þvi, að hún hafi lifað
alltof mörg sorgleg „come
back” hjá kollegum sinum. Þeir
búast við geysivinsældum ■ en
það verður ekki, aðeins von-
brigði. Það skal ekki henda mig,
segir hún.
Heath hafði ekki áhuga
Kalla varð út aukalið lögregl-
unnar i Lundúnum, þegar hópur
alsnakinna kvenna safnaðist
saman fyrir utan bústað for-
sætisráðherrans, Downing
Street 10. Stúlkurnar sögðu, að
þær hefðu aðeins ætlað að sýna
forsætisráðherranum aug-
lýsingaspjöld, sem þær voru að
dreifa I tilefni af rokk-hátið,
sem stóð fyrir dyrum. Lög-
regluþjónarnir fullvissuðu
stúlkurnar um, að forsætisráð-
herrann hefði enga löngun til
þess að sjá auglýsingaspjöldin.
c>
☆
Börn um heim allan læra
rússnesku
1 haust var haldið i piónerahöll
inni i Moskvu fyrsta alþjóða-
keppni skólabarna, sem leggja
stund á rússnesku 1 keppninni
tóku þátt 75 stúlkur og drengir
frá 16 löndum heims. Þau voru
sigurvegarar i samkeppnum,
sem haldnar voru i heima-
löndum þeirra.
Samkeppnin er haldin sam-
kvæmt aðalfundi Alþjóðasam-
taka rússneskukennara og
kennara i rússneskum bók-
menntum. Dómararnir eru frá
ýmsum löndum og munu gefa
einkunnir eftir fimmtiu eininga
kerfi. Keppendum er skipt i tvo
hópa eftir undirbúningi og eiga
þeir að sýna kunnáttu sina i
sögu, landafræði og menningu
1%
☆
Sovétrikjanna, i daglegu máli,
upplestri og endursögn.
Einnig voru gefnar einkunnir
fyrir viðbragðsflýti, frumleika
og listræna hæfileika. Veitt voru
gull-i silfur- og bronsverðlaun.
☆
Breyttur þankagangur
Nóbelsverðlaunahafinn
Heinrich Böll sagði opinberlega
skömmu eftir móttöku verð-
launanna, að hann ætlaði að láta
hluta upphæðarinnar af hendi
við alþjóðlegan sjóð fyrir rit-
höfunda i fangeslum. Nú virðist
sem Böll hafi breytt þessari
ætlan sinni, þvi að fyrir
skömmu keypti hann sér hús og
landsréltindi á Akkilesarey, en
þar eru slik mannvirki i dágóðu
verði.
STOKKHOLMUR KAUPMANNAHÖFN LUXEMBOURG
MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALU DAGA
FOSTUDAGA SUNNUDAGA
GLASGCW
LAUGARDAGA