Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 11
Noregi er einfaldlega sá, að þar
segja menn sem svo: Nú, það er
sama fólkið, sem er i þessum
tveim félagsmálahreyfingum, og
það er blátt áfram að gæta eigin
hagsmuna með þessari aðferð.
En þess er vert að geta, að ef slik-
ur samningur kæmist á hér á Is-
landi, myndum við ekki þurfa
neitt Vinnumálasamband.
Samvinnu
bankinn
bankann hefur það komið fram,
að útibú hans úti á landi hafa tek-
ið að sér að ávaxta það fé, sem
áður var i innlánsdeildum kaup-
félaganna. Telur þú það eðlilega
þróun?
— Innlánsdeildirnar voru
ágætar á sinum tima, en það hef-
ur orðið ákaflega mikil breyting á
þjóðlifinu siðustu áratugina, og
auðvitað koma þær breytingar
ekki siður niður á peningamálum
þjóðarinnar en á öðrum sviðum.
Ég tel það ekki óeðlilega þróun,
að það verði einhverjar breyting-
ar á formi inniánsdeilda. Þess
vegna hefur sú stefna verið upp
tekin, að innlánsdeildum yrði gert
kleift að breyta starfsemi sinni i
samvinnusparisjóði, þar sem
kaupfélögin óska eftir sliku. En
að sjálfsögðu er það og mun verða
á valdi hvers kaupfélags að
ákveða sjálft, hvort slik heimild
yrði notuð eða ekki. Aftur á móti
eru innlánsdeildirnar gamalt og
merkilegt form, sem hefur verið
og er veigamikill þáttur i starf-
semi samvinnufélaganna, og við i
sam vinnuhreyfingunni erum
þeirrar skoðunar, að þessi merki
þáttur eigi að fá að halda áfram
að þróast. Þegar innlánsdeild
gengur inn i banka, þá er þar i
raun og veru aðeins um að ræða
breytingu á fyrirkomulagi, sem
getur verið meira i takt við tim-
ann en áður var.
Vinnum vel
og ötullega
— Nú hefurgamalt ár enn einu
sinni kvatt og nýtt heilsað. Ég
mætti kannski að lokum spyrja
eins og sagt var i sveitinni i
gamla daga:
Hvernig leggst nýja árið i þig?
— Ég vil reyna að vera bjart-
sýnn við þessi áramót eins og
önnur. Ég held, að það sé mikil-
vægt, að menn reyni að heilsa
hverju nýju ári fremur með
bjartsýni en svartsýni, og með
þvi hugarfari að reyna að yfir-
vinna alla þá örðugleika, sem það
kann að bera i skauti sinu. Ég vil
ekki neinu um það spá, hvernig
afkoma samvinnufélaganna kann
að verða á þessu nýbyrjaða ári,
en ég vil hvetja alla þá, sem með
mér vinna, bæði i Sambandinu og
kaupfélögunum, að vinna vel og
ötullega að vexti og viðgangi
samtaka okkar, svo við getum
staðið okkur sem bezt i sam-
keppninni, þvi að það er aðalatr-
iðið, þegar til kastanna kemur.
—VS.
— Eitt er það, sem ekki má
gleymast, þegar rætt er um sam-
vinnuhreyfinguna á tslandi. Það
er Samvinnubankinn. Hvaö viltu
segja okkur um hann?
— Já. Samvinnubankinn átti
tiu ára afmæli núna i nóvember.
Ég held, að menn megi vera
ánægðirmeð, hvernig hann hefur
þróazt á þeim árum, sem hann er
búinn að vera til. Það er ekki neitt
feimnismál, að með stofnun Sam-
vinnubankans vorum við að feta i
fótspor annarra, en meðai ná-
grannaþjóða okkar er banka-
starfsemi veigamikill þáttur i
starfi samvinnuhreyfingarinnar.
Ég tel.að það sé mjög mikilvægt
fyrir samvinnuhreyfinguna, að
hún geti orðið fjárhagslega sjálf-
stæð i sem allra rikustum mæli.
Það er þess vegna afar mikil-
vægt, að hún geti byggt upp sinar
eigin fjármálastofnanir, þótt
sjálfsagt eigi það nú talsvert
langtiland hér hjá okkur. Að þvi
takmarki hlýtur hún þó að stefna,
enda þótt hún vilji að sjálfsögðu
hafa góð og eðlileg samskipti við
aðrar bankastofnanir; enda eru
viðskipti Sambandsins svo um-
fangsmikil, að ekki kemur annað
til mála en að eiga góð og örugg
samskipti við helztu bankastofn-
anir landsins. En i sambandi við
Samvinnubankann og hið nýaf-
staðna afmæli hans, þá er þess
fyrstog fremst að geta, að á þeim
timamótum var lagt af stað með
þá áætlun að stórauka hlutafé
bankans, eða úr rúmum fimmtán
milljónum i hundrað milljónir.
Þetta eru hvorki meira né minna
en áttatiu og fimm milljónir, sem
afla skyldi, en ég held.að við meg-
um vera ánægðir með árangur-
inn, og að það eigi ekki langt i
land.að öllu þessu fé verði safnað.
— I sambandi við Samvinnu-
i'.;;
1 \ , ,»• y***-:'
? \ | l '
Mælifell við bryggju á Sauöárkróki.
VESTFIRÐINGAMÓT
verður haldið að Hótel Borg n.k. föstudag (12. jan) og
lie'.st með borðhaldi kl. 7.
Kæða, menntamálaráðherra Magnús Torfi Ólafsson
minnist Vestfjarða. Upplestur, Olga Sigurðardóttir.
Skemmtiþáttur, Jörundur Guðmundsson hin landskunna
hermikráka. Tölusett félagsmerki seld sem happdrættis-
miðar (málverk, Kristján Davfðsson). vinningur dreginn
út og afhentur í lok mótsins.Allir Vestfirðingar vclkomnir
incðan húsrúm leyfir ásamt gestum. Aðgöngumiðar seldir
að Hótel Borg, skrifstofunni.
Stjórnin.
Frá Húsmæðrakennara-
skóla íslands
6 vikna dagnámskeið i matreiðslu og hús-
stjórn hefst þriðjudaginn 23. janúar.
Innritun i sima 16145 kl. 10.00 til 15.00
virka daga.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Laust embætti,
nun^Trjincoí u
er forseti Islands veitir
Héraðslæknisembættið i Húsavikurhéraði
er laust til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 1973.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
5. janúar 1973
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SeNDIBILASTÖOIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Austfirðingamótið
verður i Glæsibæ föstudaginn 12. janúar
og hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Miðar afhentir i Glæsibæ miðvikudag og fimmtudag milli
kl. 18-21. Borð tekin frá um leið.
Allir Austfirðingar velkomnir með gesti.
Stjórnin.