Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 33

Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 33
Sumiudagur 7. janúar 197:! T ,1« •• - r*T TÍMINN 33 Texti: Jón Guðni Myndir: Gunnar °9 Róbert Að stangveiðum. Timamynd: Gunnar. máls var sú, að fyrir nokkrum ár- um var hafin laxarækt i vatninu, og um það leyti var netaveiði tak- mörkuð i þvi með þeim afleiðing- um, að bleikjunni fjölgaði úr hófi fram og varð smávaxin. Þar með var komið upp svipað ástand og ég var að lýsa áðan í Meðalfells- vatni. Það liggja æði margar orsakir til þess, að veiðivötn spillast. Við höfum talað um það, þegar vötn- um er spillt af vangá, með röng- um ráðstöfunum. önnur ástæða er sú, að menn hafa ekki tima til að sinna veiðiskap, eða það borg- ar sig ekki fyrir þá fjárhagslega. Hér valda mestu um breyttir þjóðfélagshættir. Aður fyrr var sjálfsagt að nota hverja þá mat- björg, sem hægt var, og til sveita voru það auðvitað mikil búdrýg- indi að ráða yfir veiðivatni. Nú hefur fækkað svo mikið i sveitun- um að bændur hafa margir hverj- ir ekki tima til að sinna veiði i vötnum sinum. Þeir þurfa þess heldur ekki vegna matbjargar- innar. En jafnvel þótt þeir væru allir af vilja gerðir að nýta vötn sin, borgar það sig ekki fyrir þá, þeir koma ekki fiskinum út. Okk- ur vantar markvissa markaðs- skipulagningu á þessu sviði, þvi ástandið er óviðunandi, hvað þetta snertir. Þetta getur orðið til þess, að möguleikar á stórat- vinnuvegi, a.m.k. á miklum bú- drýgindum fyrir bændur séu látn- ir ónotaðir Mikilvægt að velja rétt veiðarfæri Það er mjög algengt að lita á neteins og eitthvaðtákn fyrir rán- yrkju og ofveiði og kenna þvi um, ef eitthvað fer úrskeiðis i veið- inni. Sannleikurinn er hins vegar sá að með netum er auðveldast að tryggja rétta veiði. Net eru mjög veljandi veiðar- færi, þá á ég við, að með þeim er hægt að ákvarða stærð fiskjar, sem veiða á. Fiskurinn veiðist i net vegna þess, að hann er of stór til að smjúga i gegn um þau. Net veiða þvi bezt þann fisk, sem hef- ur aðeins stærra ummál, þar sem hann er mestur um sig, heldur ef~ ummál netamöskvans. En um- mál fisksins stendur i réttu hlut- falli við lengd hans. Það er raun- ar til mjög hentug minnisregla um stærð netamöskvans, og hún er sú, að til stærðar möskvans i millimetrum svarar lengd fisks- ins i sentimetrum. Það er að segja, að net, sem hefur möskva- stæðina 30 mm veiðir bezt u.þ. b. 30 sm. langan fisk. Athugariir á Þingvallavatni Ég safnaði þar allmiklu af gögnum i sumar, aðallega til að búa i haginn fyrir langtimarann- sóknir. Ég fékk murtusýnishorn hjá Ora hf. og framkvæmdi ald- ursákvarðanir á murtunni og kannaði stærð hennar. Um stærð ina höfum við samanburðartölur frá árunum 1913—52. Bjarni Sæmundsson hóf þær rannsóknir og þeim var siðan haldið áfram af Árna Friðrikssyni. Murtan i Þingvallavatni virðist nú vera u.þ.b. þrem sm styttri en hún var þá, og hún er að jafnaði eldri, þegar hún veiðist, en áður var. Hængarnir byrja að veiðast 6 ára, og megnið af aflanum er á aldrin- um 6—10 ára. Hrygnurnar fara hins vegar ekki að veiðast fyrr en sjö ára og veiðast bezt 8—9 ára Hængarnir vaxa hægar og gæti það verið vegna þess, að þeir yrðu fyrr kynþroska, þvi murtan vex litið eftir að hún verður kyn- þroska. Þessar rannsóknir eru svo skammt á veg komnar, að við getum að svo komnu máli ekkert fullyrt um það hvað valdi þvi, að murtan i Þingvallavatni virðist nú smærri en áður. Það virðist Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12 - Sími 228C sem fæðumagn á hvern einstakl- ing i vatninu sé of litið! Allavega er ekki ofveiði á Þingvallamurt- unni. Mönnum ber saman um, að urriða hafi fækkað, og er það e.t.v. Sogsvirkjuninni að kenna. Væri þvi nauðsynlegt að sleppa urriðaseiðum til að skapa aftur það jafnvægi milli tegunda, sem nú virðist hafa raskazt. — JGK A netaveiðum Myndin er tekin á Vesturhópsvatni Timamynd: Gunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.