Tíminn - 20.01.1973, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 20. janúar 1972
C3
Tannhvöss eiginkona
Fyrir nokkrum árum giftist
þessi stúlka einum af hinum
stóru i popheiminum, Rollingn-
um Mick Jagger. Hún heitir
Bianca og er frá Nicaragua, en
þangaö fóru þau hjónakornhi
fyrir skömmu til að reyna að
hafa upp á tengdamóður Jagg-
ers. Fyrir nokkru skýrði hún
ameriskum blaöamanni frá þvi,
að forsenda hjónabands þeirra
væri gagnkvæm virðing.
—- Við erum bæöi sterk, sagði
hún. Einu sinni tætti ég allar
silkiskyrtur Micks i sundur
með tönnunum. Okkur finnst viö
alls ekki vera gift. Ég gæti alls
ekki hgsað mér að hafa það á
tilfinningunni að ég væri ófrjáls.
Tilhugalif upp á einn
koss, takk!
Mike Gaxiola, 33 ára og Connie
Marie Velo (nú Gaxiola) 29ára,
fengu náðarsamlega kost á ögn
af tilhugalifi, sem raunar var
ekki annað en einn koss. Það
var allt og sumt, sem hæsta-
réttar dómarinn Laurence
Rittenband i Santa Monica i
Kaliforniu leyfði hjónakorn-
unum, eftir að þau höfðu verið
gefin saman. Dómarinn dæmdi
Gaxiola siðan til 10 ára fang-
elsisvistar fyrir vopnað rán, og
var sakborningurinn þegar
fluttur i fangaklefann.
Gaxiola hefði þrábeðið dóminn
að framkvæma giftinguna og
sagði þetta um Connie Marie:
,,Hún sér eitthvað i mér, sem
hægt væri að virkja til einhvers
miklu betra en fangelsisvistarý
☆
Ilayworth krafin um
tugi milljóna
Skaðamótakrafa upp á um 100
milljónir isl. króna hefur verið
sett fram i hæstarétti Los
Angeles gegn leikkonunni Ritu
Hayworth og umboðsmanni
hennar Curtis Roberts. Krafan
er frá kvikmyndafélaginu
World P'ilm Services ltd. og
segir i henni, að „ungfrú
Hayworth hafi uppfyllt skilmála
samnings við kvikmyndafélagið
á mjög slæga’n og ófullnægjandi
hátt o.fl. o.fl.” Þá hafi hún
einnig með öllu hætt þátttöku
sinni i myndinni „Tales That
Witness Madness”. Hluta
þessarar myndar átti að taka i
Bretlandi.
☆
Ekki bara kvikmynda-
koss
Ryan O’Neal, maðurinn,sem lék
i kvikmyndinni Love Story, vill
enga konu kyssa fremur en
hana Tatum. Tatum er þó ekki
nema niu ára gömul, en Ryan
elskar hana meira en hann gæti
nokkru sinni elskað kvikmynda-
stjörnur, eins og til dæmis
Barbru Streisand, Jacqueline
Bisset, Ali Mc Graw og Miu
Farrow. Og þegar Tatum kyssir
Ryan er þetta miklu meira
heldur en venjulegur kvik-
myndakoss. Þetta er nefnilega
dóttir Ryans, sem leikur nú á
móti föður sinum i kvik-
myndinni Pappirstunglið.
O'Neal segir, að börn séu hreint
og beint fæddir leikarar, og það
megi vel sjá á Tatum.
Ungfú Amerika
Ungfrú Táningur Amerika var
fyrir skömmu kjörin. Fyrir
valinu varð 16 ára stúlka að
nafni Melissa Marie Galbraith.
Hún hafði áður verið kjörin
„Ungfrú Haustlaufahátiðar-
innar”og „Ungfrú Brookville (i
Pensylvaniu)”. Keppnin fór
fram i Forth Worth i Texas, en
sjálf á Marie heima i Clarion i
Pensylvaniu. Eftir að hafa
sungið lag úr „Fiðlaranum á
þakinu” var hún útnefnd sigur-
vegari úr hópi 50 stúlkna, er
þátt tóku i keppninni. 1 verðlaun
fær hún um einnar milljón
króna (isl) námsstyrk við
menntaskóla,sem húnmávelja
sjálf, og auk þess minnst fjögur
hundruð þúsund drónur til eigin
ráðstöfunar á þessu drottn-
ingarári hennar 1973. Marie er
um fimm fet á hæð, 55 kiló að
þyngd og jarphærð, Hún hefur
stundað söng-, gitar-, dans- og
pianótima, og önnur áhugamál
hennareru listir og bókmenntir.
Faðir hennar, James C.
Galbraith majór, starfar um
þessar mundir i herstöð Banda-
rikjanna i Seoul i S-Kóreu.
☆
Nixon beöinn ásjár
Maðurinn, sem telur sig
„iþróttaáhugamann Ameriku
nr. 1” er sjálfur Nixon forseti.
Hann hefur nú verið beðinn um
hjálp til við að fá á ný viður-
kenningu á þeim metum, sem
negrinn Jim Thorpe setti árið
1912, og fá verðlaunapeningana
sömuleiðis. Bill nokkur Stanfil,
fyrirliði Aflraunafélags áhuga-
manna i Iowa-riki i
Bandarikjunum, segir, að
undirskriftalistar með nöfnum
400 þúsund manna hafi verið
sendir Nixon til ihugunar. Jim
heitinn Thorpe, ameriskur
Indiáni, var á sinum tima
sviptur ólympfu-verðlaunum
sinum, eftir að sannað þótti, að
hann hefði þegið borgun fyrir að
leiká sýningarkörfubolta.
DENNI
DÆMALAUSI
„Ég er alveg viss um, að þessi
skóli er bara auglýsingabrella, til
að meira seljist af fötum!”
■