Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 8

Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 8
8 TÍMINN Laugardagur 20. janúar 1973 einu sinni hefur verið byrjað á, og hefur verið reynt að gera þessi mót að árlegum viðburði. Hefur þetta leitt til þess, að fjöldi móta hefur farið hraðvaxandi á undan- förnum árum, þannig að erfitt hefur verið að koma þeim fyrir á þeim stutta tima, sem tiðkazt, hefur að halda skákmótin. Á siðasta ári var i fyrsta skipti keppt i Stéttarfélagskeppninni og Framhaldsskólakeppninni, og ekki er langt siðan, að firma- keppnin og bikarkeppnin voru teknar á mótaskrá T.R. Sagði Hóimsteinn, að sér virtist nauð- synlegt að endurskoða allt móta — og æfingahald T.R. með það fyrir augum að finna einfaldara og fjölbreyttara mótafyrirkomu- lag, og samræma betur æfingar og mót. Af skákmótum félagsins setti Reykjavikurmótið mestan svip á mótahaldið, eins og við var búizt. Stærstu innanfélagsmót félagsins voru Haustmótið, en þar urðu efstir og jafnir Gunnar Gunnars- son og Magnús Sólmundarson Skákþing Reykjavikur, en þar var sigurvegari Jón Kristinsson, Hraðskókmót T.R., sem Björn borsteinsson sigraði og Jóla- hraðskákmótið, en þar var sigur- vegari Bragi Halldórsson. Hólmsteinn sagði, að félagið hefði nú fjárfest fyrir á þriðju milljón i hinu nýja félagsheimili við Grensásveg, og félagið vænti góðs af þeirri samþykkt borgar- stjórnar, og gera skákkennslu að föstum lið i kennslu. Fræðsluráð borgarinnar hefur snúið sér til T.R. og leitað umsagnar um fyrirkomulag skákkennslunnar, og nú þegar hefur Taflfélagið boðið húsnæði_sitt til afnota við kennsluna. Að lokum sagði Hólmsteinn, að byrjað væri að undirbúa sjötta Reykjavikurmótið og yrði það haldið i sambandi við þjóð- hátiðina. Einnig sagði hann, að heimsmeistaraeinvigið hefði aukið skákáhuga mjög mikið, og i vetur hefðu yfirleitt helmingi fleiri sótt skákæfingar féiagsins en undanfarna vetur. Jón Kristinsson varð skákmeistari Reykjavikur árið 1972. Hann geym- ir þvi þetta árið nýjan farandbikar, sem Félag starfsmanna Lands- banka tslands hefur gefið. Þessi fengu verðlaun á skákmótum Taflfélags Reykjavikur á siðastliðnu starfsári. Fremri röö frá vinstri: Jón Þorvaröarson, Þráinn Sigurðsson, Jón Kristinsson, Magnús Sóimundarson, Gunnar Gunnarsson, Bragi llalldórsson og Harvey Georgsson. t aftari röð frá vinstri cru: Viglundur Jónsson, Birgir Ragnarsson, ómar Jónsson, Sigurður Sverrisson, Jón Þ. Þór, Bragi Kristjánsson, Haraldur Haraldsson og Jóanas Þorvaldsson. Eftir heimsmeistaraeinvígið: Helmingi fleiri sækja nú skák- æfingar Taflfélags Reykjavíkur Þeir Magnús Sólmundarson og Gunnar Gunnarsson urðu efstir og jafn ir á haustmóti Taflfélags Reykja víkur. Hér sjáum við þá halda á farandbikarnum stóra, sem þeir unnu, einnig fengu þeir litla bikara til eignar. lialldór P. Dungal afhendir Hólmsteini Steingrimssyni eitt af plakötum þeim, sem hann hcfur látið gera eftir myndum Halldórs Péturssonar. ÞÓ—Reykjavik Fyrir stuttu efndi Taflfélag Reykjavikur til kaffidrykkju á Hótel Esju. Þar voru saman- komnir flestir þeir, sem hlutu verðlaun á skákmótum félagsins á siðasta starfsári, enda var hér um verðlaunaafhendingu að ræða. Það var Hólmsteinn Stein- grimsson, formaður Taflfélags Reykjavikur, sem afhenti ungum sem gömlum keppendum verð- launin. Um leið og þessi verð- launaalhending l'ór fram, kvaddi Halldór P. Dungal sér hljóðs, og færði hann Taflfélaginu að gjöf teikningar Halldórs Péturssonar frá heimsmeistaraeinviginu i fyrra. .En þessar myndir helur Halldór látið prenta i litum og gefið siðan út sem veggplaköt. Lét Halldór þess getið, aö hann hel'ði einnfremur sent Slater hinum brezka myndirnar að gjöf. Slater sendi Halldóri þakkarbréf um hæl, og lýsti ánægju sinni yfir þessari gjöf. Hólmsteinn Steingrimsson, for- maður Taflfélagsins, sagði, að á siðasta starlsári lélagsins tima- bilið 1/5 1971 til 30/4 1972 —hefði félagið staðið fyrir 16 skák- mótum, þar af einu alþjóðlegu, það er fimmta Reykjavikur- mótinu. bá i'óru skákæfingar l'ram fjórum sinnum i viku yfir vetrartimann og voru þær allvel sóttar. Þá sagðist Hólmsteinn vilja láta þess getið, að einn af fremstu skákmeisturum tslendinga, Arni Snævarr, ráðuneytisstjóri, hefði sýnt félaginu þann hlýhug að færa þvi skákbókasafn sitt að gjöf, en i safninu er margt gamalla skák- bóta og timarita. Þá barst félaginu safn timarita og skák- bóka Jóns Halldórssonar, fyrr- verandi skrifstofustjóra Land- bankans, árið 1969, og sama ár skákrit Einar Þorvaldssonar. Hinn kunni skákmaður, Jón Páls- son, hefur undanfarin ár unnið að þvi að koma á stofn skákbóka- safni Taflfélags Reykjavfkur, og er safninu fyrirhugað húsrými i félagsheimili félagsins við Grensásveg, sem væntanlega verður tekið formlega i notkun á þessu ári. Sú stefna hefur verið rikjandi hjá T.R., sagði Hólmsteinn, að fella ekki niður neitt mót, sem

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.