Tíminn - 20.01.1973, Síða 13
Uaugardagur 20. janúar 1973
l'ÍMINN
13
ttgcfandi: Framsóknarfiokkurinn
ÍiS; Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblafts Timáns)
i:::! Auglvsingastjóri: Steingrimur Gislason.. Ritstjórnarskrif-
jÉS stofur í Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-1830«
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýs-
ingasimi 10523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Askriftargjald
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-
takið. Blaðaprent b.f.
Samningaleiðin er opin
Málstaður íslendinga i landhelgismálinu
hefur viða fengið góðan stuðning, en þó engan
betri en yfirlýsingu fjörutiu og sex visinda-
manna og starfsmanna við hafrannsóknar-
stofnunina i Kiel um, að þeir telji málstað ís-
lendinga réttan. Þeir segjast i bréfi til Sam-
bands flutningaverkamanna, sem hefur lýst
yfir stuðningi við hugsanleg skyndiverkföll við
fisklöndunum íslendinga, að þeir hafi kynnt
sér vandlega alla málavexti og komizt að raun
um,að málstaður íslendinga sé réttur. Fyrir
íslendinga sé það lifsspursmál að tryggja
varðveizlu fiskstofna sinna, sem séu nú i sirik-
ari mæli i hættu fyrir ofveiði.
Á sama tima og málstaður íslands fær þann-
ig óumbeðið stuðning hinna þýzku visinda-
manna berast fregnir af þvi, að deila sé komin
upp i liði hinna brezku andstæðinga okkar.
Togaraeigendur segjast ekki þurfa á herskipa-
vernd að halda, enda sé illgerlegt að stunda
veiðar undir slikum kringumstæðum. Togara-
skipstjórar segjast hins vegar hætta veiðum,
nema þeir fái herskipavernd.
Bersýnilegt er, að Bretar hafa hingað til sett
allt sitt traust á landhelgissamninginn frá 1961.
Þeir virðast gera sér vonir um, að Haagdóm-
urinn úrskurði uppsögn samningsins ólöglega
og felli siðan dóm, er gangi á móti okkur. En
jafnvel þótt svo færi, væru Bretar engu nær.
Það er á valdi öryggisráðsins að ákveða, hvort
slikum ranglætisdómi yrði framfylgt, og vissu-
lega ættu fáir að gera sér þess gleggri grein en
Bretar, að það er næsta óliklegt, að öryggis-
ráðið beiti íslendinga valdi.
Ef Bretar vilja haga sér skynsamlega i þessu
máli og hverfa frá úreltum nýlendusjónarmið-
um, eiga þeir engan annan sæmilegan kost en
að semja við íslendinga um sanngjarnar und-
anþágur. Þetta hefur þeim staðið til boða siðan
i ágústmánuði 1971, er Einar Ágústsson utan-
rikisráðherra fór til London og flutti brezku
stjórninni tilboð islenzku stjórnarinnar um
þetta. Siðan hafa verið haldnir margir samn-
ingafundir, en allir strandað á kröfuhörku og
ósanngirni Breta. Alveg sérstaklega urðu
Islendingar fyrir miklum vonbrigðum af sið-
asta samningafundinum, sem haldinn var hér i
Reykjavik. Af orðsendingum, sem höfðu farið
fram milli rikisstjórnanna, varð ekki annað
ráðið en Bretar væru reiðubúnir til að semja
um tölu og stærð brezkra skipa, er stunduðu
veiðar hér við land, en það hefur verið fyrsta
krafa Islendinga, að samið yrði um þetta at-
riði. Þegar til kom, fengust Bretar ekki til að
ræða um þetta atriði.
Ef til vill fer svo, að Bretar láti oftrú á land-
helgissamninginn frá 1961 og Alþjóðadómstól-
inn leiða sig til þess að reyna að beita
íslendinga vaxandi ofbeldi. íslendingar eru
reiðubúnir til að taka þvi, enda mun það reyn-
ast, að það verður verst fyrir Breta sjálfa. En
samningaleiðin er enn opin á þeim grundvelli,
sem íslendingar hafa lagt, og Bretar ættu að
hugsa sig vel um, áður en þeir hafna henni einu
sinni enn.
A.M. Rendel, The Times:
Viðskipti Austur-Evrópu
við Efnahagsbandalagið
Mikilvægt fyrir kommúnistaríkin að auka þau
Bresjneff
BRESJNEFF flutti hátiða-
ræðu á 50 ára afmæli Sovét-
rikjanna og greip tækifærið
til þess að láta i ljós að við-
skiptatengsl ættu að takast
miili Efnahagsbandalags
Evrópu og Evrópurikjanna i
Comecon. (Aðildarriki að
Comecon eru Rússland, Pól-
land, Austur-Þýzkaland,
Tékkóslóvakia, Ungverjaland,
Rúmenia, Búlgaria, Mongólia
og Kúba( siðan i júli s.l., en
Júgóslavia er óreglulegur
aukaaðili).
„Við erum fylgjandi jafn-
ræði i efnahagssamskiptum,en
andsnúnir mismunun”, sagði
Bresjneff.
Við þetta hefði Bresjneff
getað bætt tveimur staðreynd-
um, sem leiðtogum Sovétrikj-
anna eru vel ljósar Ibúar niu
aðildarrikja Efnahagsbanda-
lags Evrópu eru 251 milljón og
utanrikisverzlun þeirra (ef
verzlun aðildarrikjanna hvert
við annað er talin með) nemur
um tveimur fimmtu hlutum
utanrikisverzlunar jarðarbúa.
Bandalagið mun þvi von bráð-
ar verða öflugasta viðskipta-
samfélag heims. Hin stað-
reyndin er, að rikisstjórn
Bandarikjanna ætlar að reyna
að koma á vinsamlegum og
hagfelldum viðskiptum milli
bandalagsins og Bandarikj-
anna. Af þessu er ljóst, að
meira en timabært var fyrir
Bresjneff að lýsa yfir velvild
sinni, hvað sem fyrir honum
kann að hafa vakað i raun og
veru.
BRESJNEFF hefir eina
góða og gilda ástæðu til þess
að óska eftir miklum og vin-
samlegum viðskiptum milli
Comecon-rikjanna og
Efnahagsbandalags-rikjanna.
Hagvöxtur kommúnistarikj-
anna hefir verið ör að undan-
förnu, eða að sumra áliti um
7% á ári frá 1951-1969. Nú telja
ýmsir sérfræðingar svo kom-
ið, að þessum öra hagvexti
verði ekki haldið,nema þvi að-
eins að sérhæfingin aukist.
Aukin sérhæfing innan
aðildarrikja Comecon kæmi
að verulegu haldi i þessu efni.
Hitt er þó ljóst, að meira
munar um aukin skipti við
umheiminn, einkum þó þau
svæði, sem náð hafa háþróun i
iðnaði, en þar eru Efnahags-
bandalagsrikin kommúnista-
rikjunum nærtækust og mikil-
vægust.
Hráefnaskortur rikir i
Austur-Evrópu, ef Sovétrikin
eru undan skilin. Þessi riki
hafa þvi orðið að afla sér
hráefna i Sovétrikjunum eða
utan kommúnistarikjanna, og
má i þvi efni meðal annars
nefna eir, bómull, korn, húðir,
ull, nikkel, titanium, molyb-
denum og wolfram.
EVRÓPSK aðildarriki
Comecon, að Rússlandi
meðtöldu, þarfnast i siaukn-
um mæli þess tækjabúnaðar,
sem vestræn tækni byggist á.
Þær framleiðsluvörur, sem
byggjast einkum á miklum og
nákvæmum rannsóknum,
námu árið 1968 tiu af hundraði
heildarútflutnings vestrænu
rikjanna, en hins vegar 18 af
hundraði útflutnings þeirra til
aðildarrikja Comecon.
Tveimur árum siðar, eða
árið 1970, nam gagnkvæmur
útflutningur aðildarrikja
Comecon og rikjanna niu, sem
nú eru aðilar að Efnahags-
bandalaginu, svipaðri upphæð
og áður eða um 1700 milljón-
um sterlingspunda. Þetta var
um það bil 7,5 af hundraði
utanrikisviðskipta aðildar-
rikja Efnahagsbandalagsins,
eða jafnaðist nokkurn veginn
á við viðskipti þeirra við
Suður-Ameriku. Siðustu tvö
árin hefir orðið hér veruleg
breyting á, og aðildarriki
Comecon kaupa meira af
áhöldum, tækjabúnaði og
meira að segja heilar verk-
smiðjur. Mikill halli hefir orð-
iö á viðskiptum þeirra við
aðildarriki Efnahagsbanda-
lagsins og eykst hann hröðum
skrefum.
AÐILDARRIKI Comecon
settu á árunum eftir 1960 á
stofn sérstök fyrirtæki i milli-
rikjaviðskiptum til þess að
annast kaup og sölu iðnfram-
leiðsluleyfa. Tékkóslóvakia,
Pólland, Rúmenia og Sovét-
rikin keyptu 80 slik leyfi á
Vesturlöndum árið 1965. Talið
er, að tala þessara leyfa hafi
verið orðin tvöfalt hærri árið
1970.
Austur-Evrópulöndin þurfa
að sjálfsögðu að borga þessi
leyfi og önnur slik kaup og eru
þvi á höttunum eftir markaði
og lánstrausti i auðvaldsrikj-
unum. 011 hafa þau komið upp
sérstökum stofnunum, sem
annast reglulegar athuganir á
verðlagi á Vesturlöndum og
notfæra sér jafnframt i aukn-
um mæli markaðsrannsókna-
fyrirtæki þar.
TVEIR þriðju þess
gjaldeyris, sem aðildarriki
Comecon afla sér eins og sakir
standa hjá aðildarrikjum
Efnahagsbandalagsins, koma
fyrir sölu landbúnaðarafurða,
hráefna, eldsneytis og
demanta. Rússland, Austur-
Þýzkaland og Tékkóslóvakia
ein selja nokkuð að ráði af iðn-
varningi vestur á bóginn.
Hin sameiginlega stefna
aðildarrikja Efnahags-
bandalagsins i landbúnaðar-
málum hefir eðlilega engin
áhrif á oliu-,demanta- og hrá-
efna-sölu Sovétmanna. Um
sölu Pólverja, Rúmena,
Ungverja og Búlgara á land-
búnaðarvörum gegnir að
sjálfsögðu allt öðru máli, og á
hún I vök að veriast.
Engum þurfa þvi að koma á
óvart þau ummæli, sem Stefan
Olszowski utanrikisráðherra
Pólverja viðhafði fyrir
skömmu i þessu efni. Hann
sagði, að beinir viðskipta-
samningar milli aðildarrikja
Comecon og Efnahagsbanda-
lagsins kynnu að verða veru-
lega gagnlegir.
VITAÐ er, að Austur-
Evrópurikin óska eindregið
eftir, að aðildarriki Efnahags-
bandalagsins veiti þeim
nokkra tilslökun i sambandi
við sölu landbúnaðarafurða
og lækki innflutningstolla á
iðnaðarvörum. Rikin, sem
skammt eru komin i iðnþróun,
þurfa einna mest á þessu að
halda, og má i þvi sambandi
nefna skófatnað og húsgögn
frá Rúmeniu og ef til vill
Búlgariu. Þá óska Austur-
Evrópurikin einnig,að slakað
verði á þeim magnhömlum,
sem enn eru i gildi, svo og
bættra lánskjara, jafnvel þó
að það kosti, að þeim verði að
skipa á bekk með hinum
vanþróuðu rikjum.
Slikar undanþágur hlytu að
draga til muna úr aukningu
halla aðildarrikja Comecon á
viðskiptum þeirra við aðildar-
riki Efnahagsbandalagsins og
milda áhrif hans. Sennilega
nægði þetta þó ekki til þess að
iðnvarningur frá Austur-
Evrópu yrði samkeppnisfær á
markaði Efnahagsbandalags-
rikjanna,nema ef til vill ein-
stakar vörutegundir.
Sennilegt er þvi, að inn-
byrðis viðskipti aðildarrikja
Comecon haldi áfram að auk-
ast hraðar og hraðar, og ætti
það að létta áhyggjur Rússa
að minnsta kosti. Tilslakanir
af hálfu Efnahagsbandalags-
ins ættu þó að minnka þann
mun á vaxtarhraða, sem fram
kemur i gildandi fimm ára
áætlun fyrir árið 1971-1975.
Þar er gert ráð fyrir 10,9%
aukningu innbyrðis viðskipta
aðilúarrikja Comecon, en
ekki nema 4,4% aukningu á
viðskiptum þeirra út á við.
UMMÆLI Bresjneffs seint á
siðast liðnu ári eru einkum
áhugaverð fyrir þá samninga-
menn Vesturveldanna, sem
komu saman i Helsinki 15.
þessa mánaðar til þess að
kanna, hvers konar samvinnu
verði einkum sótt eftir milli
Austurveldanna og Vestur-
veldanna. Markaðurinn i
aðildarrikjum Comecon er
ekkert sérstakt keppikefli
fyrir Vesturveldin. Viðskipti
við aðra aðila, svo sem
Braziliumenn til dæmis, gætu
ef til vill gefið vonir um örari
og hagfelldari aukningu. Hitt
er svo annað mál, að allar
ákvarðanir um tilslakanir eða
afbrigði til aukningar við-
skiptum Austurveldanna og
Vesturveldanna verða efa-
laust teknar með hliðsjón af
stjórnmálunum öllu fremur en
viðskiptahagnaði.
Aðildarriki Efnahagsbanda-
lagsins þurfa að standa saman
i þessu efni. Ef þau gæta þess
vendilega, geta þau efalaust
gert sér vonir um verulega
hagfelld viðskipti á sinn hátt.
Þ.Þ.