Tíminn - 20.01.1973, Side 28

Tíminn - 20.01.1973, Side 28
Tvær fylkingar brezkra togaraeigenda: HERSKIPAVERND EÐA VOPN Á TOGARANA Rætt við Jón Olgeirsson hjó Boston Deep Fishery í Grimsby Laugardagur 2 ). janúar 1!) 73 Þó-Reykjavík „Mér finnst það ótrúlegt, að brezka rikiss tjórnin veiti brezkum togurum á islands- miðum herskipavernd, þvi að þá er hún algjörlega búin að tapa þorskastriðinu," sagði Jón Olgcirsson i Grimsby, þcgar við ræddum við hann i gær. — Menn hér i Grimsby ræða nú landhelgismálið fram og aftur með þaö eitt i huga að geta haldið áfram veiðum innan 50 sjómflannna. Ýmsar hugmyndir eru á lofti fyrir utan það að fá herskipavernd. Til dæmis hefur komið til álita, að útbúa klippur fyrir togarana, sem þeir eiga siðan til að nota tii að klippa á viraklippur varðskipanna. Einnig hefur verið rætt um að vopna togarana, en það vilja menn siður, en ekki er gott að segja, hvað verður gert i þessu hitamáli, sagði Jón. — Almenningur i Grimsby, býst fastlega viö, að brezka stjórnin verði við kröfum togaraskipstjóra og sendi herskip á tslandsmið, en sjálfur hef ég enga trú á þvi, til þess eru stjórnarherrarnir of skynsamir. En hit er ég viss um, að togararnir fá aðstoð i einhverri mynd. Ef þeir fá ekki aðstoð, þá sigla einhverjir skipstjórar af ts- landsmiðum, eins og þeir hafa hótað. Jón sagði, að mikill hiti væri i almenningi i Grimsby um þessar mundir vegna viraklippinga islenzku varð- skipanna. Meðal annars hefur hópur kvenna, giftar- sjó- mönnum, afhent Anthony Crossland þingmanni i Grimsby, undirskriftalista, þar sem farið er fram á her- skipavernd til handa eigin- mönnunum. — Það er vitað, að allir sjómenn vilja herskipa- vernd, en togaraeigendur eru ekki eins áfjáðir i herskip, og munu þeir hafa skipzt i tvær fylkingar, önnur fylkingin vill herskip, en hin, að gripið verði til annarra ráðstafana. Þegar við ræddum við Jón, sagði hann, að nefnd, sem skipuð hefði verið af sjó- mönnum og togaraeigendum og kölluð væri „togara- verndunarnefnd,” sæti á fundi með fulltrúum utanrikisráðu- neytisins, en ekkert hefði frétzt af gangi viðræðna. Við spurðum Jón, hvort hann sjálfur hefði einhverja trú á herskipaverndinni. Hann sagði, að hann hefði ekki trú á þeirri vernd eins og málin stæðu. — Ef ég lit á þetta með augum brezks sjómanns eða togaraeiganda, þá er brezka stjórnin búin að hörfa alltof mikið i þessu máli. Stjórnin er nú aðkreppt i horni, sem hún kemst ekki út úr. Ég get ekki séð, hvernig stjórnin getur slakað á i samningum við Is- lendinga, ef til kemur,án þess að menn hér i Grimsby yrðu mjög reiðir. Ég held, að brezka stjórnin þori ekkert að gera, fyrr en Alþjóðadóm- stóllinn i Haag er búinn að kveða upp úrskurð sinn, það er aðsegja, ef dómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að hann hafi lögsögu i málinu, sagði Jón að lokum. FYRRVERANDI EIGINMENN KVARTA LÍKA Uppástunga prests: Óvígðir grafreitir við kirkjugarða t Sunnudagsblaði Tímans, sem fylgir dagblaðinu að þessu sinni, ber einn af þekktustu kennimönn- um þjóðkirkjunnar fram nýstár- lega hugmynd: Hann leggur til, að i lög um kirkjugarða verði bætt ákvæði þess efnis, að i tengslum við venjulega grafreiti löggiltra safnaða, verði leyfðir óvigðir grafreitir, þar sem þeir geta hlot- ið leg, er ekki vilja hvila i vigðum kirkjugörðum eða öðrum graf- reitum safnaða. Presturinn, sem ber þessa til- lögu fram, er séra Gunnar Árna- son, sem lét af prestskap i Kópa- vogi nú fyrir skömmu. Hann tel- ur, að þetta geti verið afreitir, annað tveggja innan aðalgirðing- ar eða utan hennar, eftir þvi sem henta þykir. — undan aðgangshörðum fyrrverandi eiginkonum Klp-Reykjavik „Þvi er ekki að neita, að það er mjög algcngt, að menn séu að angra fyrrverandi ciginkonur sinar með hótunum og jafnvel likamsmeiðingum hér i okkar lögsagnarumdæmi”, sagði Hjarki Eliasson yfirlögregluþjónn, er við áttum tal við hann i gær vegna hinna tiðu frásagna um slika at- burði i fjölmiðlum að undanförnu. „Við höfum engar tölur um þetta”, bætti hann við, „en ég get þó sagt, að þetta sé allt of algengt. Það er að visu erfitt að flokka, hvað sé ónæði eða árás, en þetta er á ýmsum stigum þar á milli. Mikið er um alls konar hótanir, sem eru svo ekki framkvæmdar. Er það þá bara venjulegt fylliriis- röfl, og segist viðkomandi venju- lega ekkert muna, þegar við töl- um við hann. I flestum tilfellum er erfitt fyrir okkur að aðhafast eitthvað i málinu. Það verður oft fullyrðing á móti fullyrðingu, þegar til aðgerða á að gripa til varnar þessum konum, mennirn- ir neita þvi að hafa sagt þetta eða hitt og kannast jafnvel ekki við að hafa talað við konuna. Annars er eitt, sem er sérstak- AAannránið á Spáni: Fjölskyldan ætlarað uppfylla kröfurnar lega áberandi við svona mál, en það er, hvað þetta er algengt i svartasta skammdeginu, desem- ber og janúar. Yfir sumar mán- uðina ber aftur á móti mun minna á þessu, þó ekki sé þar með sagt, að menn leggi þetta alveg niður á þeim árstfma”. Við spurðum Bjarka að þvi, hvort nokkuð væri um það, að karlmenn kvörtuðu undan fyrr- verandi eiginkonum sinum til lög- reglunnar. Hann sagði, að það væri ekki algengt, en þó kæmi það fyrir. Til þessa hefði þó karlmað- ur ekki kært fyrrverandi konu sina fyrir likamsmeiðingar, enda gætu þeir i flestum tilfellum varið sig fyrir þeim. Aftur á móti kærðu þeir undan stanzlausum sima- hringingum og heimsóknum um miðja nótt, og væri sizt betra að eiga við það, en þegar kona kærði undan ásókn fyrrverandi eigin- <to£ -Á' f^Kfjjgf Séra Gunnar Arnason. NTB-Pamplona. Fjölskylda auðkýfingsins, sem rænt var i vikunni i Pamplona á Spáni, bjó sig í gær undir að semja við ræningjana og borga lausnargjaldið, sem nemur um 75 milljónum isl. króna. ltæningjarnir höfðu sett frest til kl. 22 í gærkvöldi og vildu fá pen- ingana i dollurum og v-þýzkum mörkum. Önnur krafa ræningjanna var, Brim í margar vikur HLJ-Eyrarbakka Hér hefur veriö stöðugt brim til langs tima og ekki gefið á sjó. I fyrradag skauzt þó einn bátur héðan út úr höfninni, en annars hefur verið illfært um innsiglinguna alla þessa stór- viðratið og oft ófært með öllu. Þessi bátur, Flosi, mun svo leggja net sin i dag, og eru það fyrstu veiðar héðan á þessu ári. Menn fara þvi að vona, að veður hægist og það fari að aflast. Héðan verða gerðir út 8 bátar á vertiðinni, allir á bolfiskveiðar, en loðnuævintýri látum við aðra um, enda eru bátarnir of litlir til þeirra veiða.og þróarrýminu veitir hinum bátunum ekki af. að 114 verkamenn, sem misst höfðu atvinnu sina hjá fyrirtækj- um auðkýfingsins, fengju hana aftur og hærri laun en áður ásamt meiri hlunnindum. 114-menningarnir fengu vinnu sina i fyrradag, en þeir höfðu ver- ið reknir fyrir ólöglega vinnu- stöðvun til að krefjast hærri launa. Jafnframt þvi, að spánska lög- reglan herti leitina að ræningjun- um i fjöllum NA-Spánar, bárust fréttir um, að bróðir auðkýfings- ins hefði farið meö leynd til Biar- ritz i Frakklandi, en þaðan kom krafa ræningjanna bréfleiðis. Sögðu heimildir, að hann hefði lagt af stað, strax og Franco ein- ræðisherra hafði gefið fjölskyld- unni leyfi til að kaupa erlenda gjaldeyrinn. Fjöldamorð í Washington: BÖRNUNUM DREKKT í BAÐI SEKUR UAA MORÐ Á 25 MÖNNUM NTB-Washington. Lögreglan i Washington leitaði i gær átta ungra svertingja, sem grunaðir eru um að hafa myrt sjö menn, þar af fimm börn, i múhameðska hverfinu i Washing- ton. önnur tveggja kvenna, sem særðust að auki, er i lifshættu. Auk barnanna fimm, sem drekkt var i baðkeri, voru tveir- ungir menn myrtir. Talið er, að þarna hafi veriö um trúarlegar deilur að ræða, þar sem Múhameðstrúarmenn eru klofnir i Bandarikjunum. Hreyfing „Svartra Múhameös- trúarmanna” neitar að kannast nokkuð við þetta mál, og fólk i ná- grenninu er tregt til að gefa lög- reglunni upplýsingar, sennilega af ótta við, að morðingjarnir komi aftur og hefni sin á þeim. NTB-Fairfield Juan Corona, verkstjóri á ávaxtaekru i Kaliforniu, var i gær fundinn sekur um að hafa myrt 25 verkam. og grafið likin i garði. Réttarhöldin hafa staðið mánuð- um saman, og allan timann hefur Corona aðeins sagt fimm orð og setiö sem steinrunninn. Þetta eru mestu fjöldamorð i sögu bandariskra glæpamála, og vakti það geysilega athygli, þeg- ar eitt likið af öðru fannst i garðinum fyrir hálfu öðru ári. Kviðdómurinn sat 46 klukku- stundir á fundi til að komast að niðurstöðu, en aðeins einn kvið- dómenda þóttist viss um sakleysi Corona. Það tók hálfa klukkustund að lesa upp úrskurðinn, og allan tim- ann sat Corona, án þess að nokkur svipbrigði sæjust á andliti hans. . Fjölskylda hans féll saman og grét, og einni dóttur hans varð svo mikið um að flytja varð hana á sjúkrahús. Dómur yfir Corona verður kveðinn upp 29. þ.m. Héldu að börnin hefðu fengið reykeitrun Klp-Reykjavik 1 fyrrinótt var slökkviliðið i Reykjavik kallað að húsinu nr. 5 við Njálsgötu, en þar hafði komið upp eldur við glugga, og mikill reykur var i húsinu. Kviknað hafði i út frá innstungu við gluggann, og náði eldurinn að læsa sig i gluggatjöldin. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins, og urðu litlar sem engar skemmdir nema á gluggatjöldun- um og veggnum, auk þess sem nokkrar skólabækur urðu eldin- um aö bráö. 1 íbúðinni voru m.a. tvö börn, 9 og 12 ára, og voru þau flutt á Slysavarðstofuna, þar sem óttazt var, að þau hefðu fengið reykeitr- un. Svo var ekki, og fengu þau að fara heim skömmu siðar. f

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.